Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 19
FRAMTÍÐARBYGGÐIN
og fulltrúar Kvennaframboðsins
Eins og flestum mun sjálfsagt kunnugt, hefur núverandi
meirihluti borgarstjórnar hafist handa við að skipuleggja
framtíðarbyggð Reykvíkinga í landi norðan Grafarvogs.
Kvennaframboðið hefur lýst sig andvígt áframhaldandi út-
þenslu borgarinnar til austurs, meðan innan borgarmarka
eru stór ókönnuð svæði fyrir íbúðabyggð (sjá grein hér í
blaðinu um Vatnsmýrina), en við gerum okkur fyllilega Ijóst
að það mun ekki breyta stefnu Sjálfstæðisflokksins. Framtíð-
arbyggöin verður við Grafarvoginn, og það sem skiptir máli
núna er að reyna að hafa áhrif á innihald þeirrar byggðar.
Til þess að geta fjallað um 7 þúsund manna byggð svo
einhverju viti gegni, þurfa borgarfulltrúar á leiðbeinandi
faglegri umsögn um skipulagstillögur að halda. Slíka umsögn
fá þeir að öllu jöfnu frá Borgarskipulagi Reykjavíkur, þeirri
stofnun borgarinnar sem hefur með skipulagsmál að gera.
Þar sem Sjálfstæðismenn hafa aldrei borið sig eftir slíkri
unisögn um svæðið norðan Grafarvogs, þá hafa fulltrúar
Kvennaframboðsins í skipulagsnefnd, borgarráði og borgar-
stjórn ítrekað farið fram á umsögnina en þessari beiðni alltaf
verið hafnað af meirihlutanum. Venjulegast hefur þessari
beiðni verið hafnað án þess að fyrir því séu færð nokkur
fullgild rök. Er manni næst að halda að meirihlutinn vilji ekki
faglega umfjöllun um skipulagstillögur sínar, kannski stand-
ast þær ekki slíka umfjöllun?
Lesendum til fróðleiks og skemmtunar ætla ég aö birta hér
smá yfirlit yfir þaö hversu oft farið hefur verið fram á umsögn
Borgarskipulags og hversu oft því hefur verið hat'nað.
5. júlí — Fulltrúi Kvennaframboðsins í skipulagsnefnd fer
fram á umsögn um „forsögn að deiliskipulagi" en hún er n.k.
leiðarvísir arkitektanna við skipulagsvinnuna. Þessu var
hafnað.
6. júlí — Fulltrúi Kvennaframboðsins í borgarráði tekur þar
upp tillöguna frá deginum áður og hún er felld.
16. júlí — Enn er tillagan tekin upp, og nú í borgarstjórn, og
hún felld.
9. ágúst — Skipulagsnefnd samþykktir einróma tillögu um að
fá umsögn Borgarskipulags um íbúðasamsetningu á Grafar-
vogssvæðinu.
27. ág(B/-Samþykktskipulagsnefndarfrá9. ágúst tekin upp
í borgarráði af meirihlutanum til þess eins að fella hana. Þetta
er gert án nokkurs rökstuðnings.
6. sept. — Fulltrúar minnihlutans í skipulagsnefnd fara fram á
umsögn um þá skipulagstillögu sem arkitektar svæðisins
lögöu fram á fundinum. Hafnað.
/ 4. sept. — í ljós kemur á borgarráðsfundi að formaður skipu-
lagsnefndar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur beðið for-
stöðumann Borgarskipulagsins að gefa frá sér einhverja um-
sögn um málið. Það gerir forstöðumaðurinn á fundi skipu-
lagsnefndar 20. sept. Það eru sem sagt dyntir formanns
skipulagsnefndar sem ráða íerðinni en ekki „lýðræðislegar
leikreglur stjórnmálanna".
En af hverju er Kvennaframboðinu svo mikið í mun að fá
þessa margumræddu umsögn? Því er fljótsvarað. í fyrsta lagi
teljum við það sjálfsagðan rétt okkar að fá slíkar umsagnir, -
rétt eins og aðrar upplýsingar, — frá embættismönnum borg-
arinnar og það er ekki í verkahring kjörinna fulltrúa meiri-
hlutans að standa í vegi fyrir slíku. Í öðru lagi erum við
ekki menntaðar á sviði skipulagsmála fremur en aðrir borg-
arfulltrúar, og við teljum hvorki okkur né þeim stætt á því að
taka afstöðu til svo mikilvægra mála án þess að setja sig inn í
hina faglegu hlið þeirra.
Til þess eru vítin að varast þau og af nógu er að taka í
skipulagsmálum borgarinnar. Ef við viljum byggð sem er
börnum, konum og körlum framtíðarinnar hliðholl, þá er
vissara að fara varlega því umhverfið skapar manninn rétt
eins og maðurinn skapar umhverfið.
20. september 1982
Sólrún Gísladóttir
TILLÖGUR FLUTTAR AF FULLTRÚUM
KVENNAFRAMBOÐS í NEFNDUM OG RÁÐUM
Okkur þykir eðlilegt að gera grein fyrir þeim tillögum,
sem við höfum flutt síðan við tókum sæti í borgarstjórn í maí
sl.
I borgarstjórn og borgarráði höfum við flutt tillögur í
eftirfarandi málum:
1. Um valddreifingu og breytingar á stjórnkerfi borgarinn-
ar. Þessari tillögu var frestað, en hún verður tekin til
umræðu um áramót.
2. Um flutning Reykjavíkurflugvallar. Um þetta mál er
fjallað á öðrum stað í blaðinu.
3. Um að koma upp skóladagheimili í Seljahverfi. Afdrif
þessarar tillögu eru rakin í sérstakri grein í blaðinu.
4. Um húsnæðismál. Við höfum flutt tvær tillögur í þessu
máli og eru þær raktar nánar á öðrum stað í blaðinu.
5. Um að settar verði reglur fyrir nýbyggingar í eldri hverf-
um borgarinnar sem liafðar verði til hliðsjónar við út-
hlutun byggingarleyfa. Þessi tillaga er fram komin vegna
síendurtekinna mistaka í nýbyggingum í gamla bænum
vegna þess að enn er ekki til útfært deiliskipulag fyrir
stóra hluta hans. Nýjustu dæmin eru nýbyggt hús á horni
Þórsgötu og Njarðargötu og nýbygging ein feiknarleg við
Oðinsgötu 16. í því máli fluttum við tillögu um að bygg-
ingarleyfi yrði afturkallað vegna brota á skipulags- og
byggingarlögum. Sú tillaga var felld af meirihlutanum í
borgarstjórn.
Tillagan um reglur varðandi nýbyggingar er nú til
umsagnar í skipulagsnefnd.
6. Meðflutningsmaður að tillögu um að starfsemi eins og
þeirri er fyrirtækið Eimur rekur að Seljavegi 12, verði
hætt á þeim stað og henni fundinn staður annarsstaðar í
borgarlandinu. Þessi tillaga fékk meirihluta í borgarráði.
Þar með náðist áfangi í 30 ára baráttu íbúa í nágrenni við
verksmiðjuna, en þeir hafa bent á og stutt rökum þá
hættu og mengun, sem af verksmiðjunni stafar. Nýlega
hefur verið rakinn í blöðum allur aðdragandi þessa máls
og verður því ekki fjallað frekar um það hér.
í félagsmálaráði hefur fulltrúi Kvennaframboðs vakið
máls á nokkrum atriðum, sem virðast geta stuðlað að betri
Skyldu borgarfulltrúar þurfa á
ad halda faglcgri unisögn um
skipulagstillögur?“
Vid teljum ekki stætt á því ad
taka afstöðu til skipulagsmála án
þess að setja sig inn í hina fag-
legu hlið ...
að byggingarleyfi verði aftur-
kallað vegna brot á skipulags- og
byggingalögum
19 f