Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 23

Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 23
Til umræðu KJARNAFJÖLSKYLDAN OG KVENNAKÚGUNIN Tvöfalt vinnuálag kvenna er staöreynd sem vissulega vekur konur til umhugsunar um hvaö valdi og hvaö megi gera til bóta. Konurnar bera ábyrgöina á heimil- isrekstrinum, uppeldinu og allri umönnun heimilismeðlima, og þetta losna þær ekkert viö þó þær fari í vinnu út fyrir heimilið, þaö bíður allt eftir þeim heima. Nær- tækast er auövitað aö koma á verkaskiptingu heimilismeðlima og vinna sameiginlega aö heimilis- verkunum. Þetta gerir fólk auövit- aö, þó í mismiklum mæli, og oftast þannig aö konan sér um verk- stjórnina og ber ábyrgð á fram- kvæmdum. Hvers vegna? Jú, verkaskiptingin heima hróflar nefnilega ekkert við hugmynda- fræöinni um konuna og „húsmóð- urhlutverkiö". Sú kona, sem nær samkomulagi viö mann sinn um heimilisverkin eftir kl. 5 á daginn, eöa ræöur aöra konu til aö sinna þeim, hefur ekki komið á jafnrétti. Hvers vegna húsnióAir? Eöa hvers vegna fékk hún sér hálfsdagsstarf og hvers vegna er það hún sent skrópar í vinnunni vegna veikra barna? Hversvegna hætta konur námi, vinnu, eða fá alls enga vinnu? Hvaö er þaö sem setur konur í hlutverk huggara og græðara? Hvers vegna eru þær lægst launaðar og með minnstu réttindin úti á vinnumarkaðnum? Hvers vegna eru dómarnir svo harðir yfir konutn, sem ekki „standa sig“ í „húsmóðurhlutverk- inu", þær sem ekki dusta, þvo, bóna, snýta, hugga og snurfusa nógu mikið inni á litlu fallegu heimilunum sínum? Svarið við þessum spurningum er ósköp ein- falt: konur fæðast inn í þetta ákveðna hlutverk, „húsmóðurhlut- verkiö", þær hafa ekkert um að velja! I þessu er einmitt kynbundin kúgun kvenna fólgin, það er þetta sem m.a. er átt við þegar talað er unt reynsluheim kvenna. Konur eiga það sameiginlegt að þær slást viö vofur og forneskjur úr hugmyndafræöi borgarastéttarinn- ar, viöhorf karlveldis til kvenna. Þær eru settar á stall fyrir „kven- lega" hetjulund og fórnfýsi. Þær fá þaö aö launum fyrir aö taka að scr „húsmóðurhlutverkið" möglunar- laust. Það sem tilheyrir húsmóöur- hlutverkinu í dag ákvaröast af hlut- verki kjarnafjölskyldunnar, sem er afar rýrt ef tekiö er miö af annarri tegund fjölskyldu, sem er stórfjöl- skyldan, þar sem fram fer fram- leiðsla og bein samfélagsleg þátt- taka gegnum hana. Kjarnafjöl- skyldan er einangruð frá samfé- lagslegri vinnu, og er aöeins efna- hagsleg eining í markaðsþjóðfélag- inu. Kjarnafjölskyldan er vissulega einnig afdrep einstaklinganna, en ;ills ekki það eina. Hún keppir við alls kyns afþreyingarframboð utan frá, varnarlaus gagnvart auglýs- ingaskruminu. Fjölskyldan ekki cinungis afdrcp.... Það sem fjölskyldan situr uppi meö fyrst og fremst er ábyrgðin, þ. e. ábyrgð á uppbyggingu vinnu- allsins, meölima fjölskyldunnar. Foreldrar bera persónulega ábyrgð á vexti og þroska barna sinna, bera persónulega þá byröi aö koma börnum sínum, framtíðarvinnuafli þjóöfélagsins til manns. Aðstæður hverrar fjölskyldu eru aö sjálfsögðu misjafnar í stéttskiptum þjóðfélög- um eins og á Islandi og þar kemur einmitt inn hin stéttbundna kúgun kvenna, þ. e. konur í verkalýðsstétt sitja ekki aðeins uppi með kynja- fordómana alla, heldur bera þær minnst úr býtum af þeim þjóöfé- lagslegu gæöum, sem í boöi eru og þær hala unnið fyrir hörðum hönd- um. Þessi staða kjarnafjölskyld- unnar í þjóðfélaginu bindur einmitt konurnar heinta, við heimilisverk- in, inni á heimilunum eru konurn- ar, hálft mannkynið, að sinna á persónulegum grundvelli þörfum fjölskyldunnar, sem vel væri hægt aö sinna á félagslegum grundvelli. Þaö hefur sýnt sig vel hér á íslandi síðustu 50—80 árin aö ef vinnu- markaöurinn þarfnast vinnuafls kvennanna er mjög auövelt að framkvæma samfélagslega þau störf sem þær sinntu áður. Tökum matar- og fatagerð sem dæmi. Konur fást varla lengur við að súrsa og salta, né við aö sauma föt á tjölskylduna. En því er svo mikil tregöa yfirvalda að útvega næg og góö dagvistarrými fyrir börnin meöan mæöurnar vinna úti, það tekur því varla að tala um þessar fáu barnageymslur sem borgin rek- ur nú. Samfélagsleg umönnun allra barna svo og einhverskonar samfé- lagsleg lausn á húsnæöi fólks og þá heimilisverkum mun að sjálfsögðu ríða kjarnafjölskyldunni í núver- andi mynd að fullu. Samfélagsleg lausn á heimilisverkunum er grundvallarskilyrði þess að konur lostii nokkurn tímann úr viðjum hinnar kynbundnu kúgunar. En samfélagslegar og sameiginlegar aðferöir í barnauppeldi og heimil- isrekstri er ekki aðeins ávinningur vegna þátttöku fleiri, heldur fyrst og fremst vegna þess að ábyrgðin á velferð barnanna og afkorna ein- staklinganna verður sameiginleg ábyrgð samfélagsins og vandamál leyst sem slík en ekki scm einkamál hverrar konu, hverrar fjölskyldu, einangruð innan fjögurra veggja heimilisins. Eigum við að þegja??? Það er nú einu sinni svo að ekki má hallmæla kjarnatjölskyldunni þrátt fyrir augljósa ágalla. Karlar og konur segja gjarnan: „A nú að hrúga öllum saman, — taka af manni sjónvarpið, — einkalífið, — svei." Að sjálfsögðu hafa margir hag af ríkjandi fjölskylduformi. Það stendur m. a. undir gróða yfir- stéttarinnar. Einstaklingarnir, fjöl- skvldurnar bera byrðarnar er kreppir aö, — ekki má skeröa gróöa yfirstéttarinnar. Margar litl- ar fjölskyldur auka á neyslu. Á meöan konurnar hafa húsmóður- hlutverk þarf ekki að hugsa fyrir vinnu handa þeim á atvinnuniark- aðnurn. Þar þjóna þær sem ódýrt hlaupavinnuafl. Að lokum er ekki hægt annað en geta þess að karl- menn hafa vissulega ákveðinna hagsmuna aö gæta, þar sem kjarna- fjölskyldan er. Konur liafa barist fyrir því árum saman að fá karla til að taka þátt í heimilisverkunum, og þeir sjást nú æ meir með börn og viskustykki, en það gekk ekki átakalaust. Stór hópur karla hatar allt sem heitir breyting á sínum högum, kvenréttindakerlingar eru skamntaryrði í þeirra munni og verstu andstæðingar. Konur eru tvímælalaust vinsælli ef þær þegja um hugmyndir sínar um jafnrétti, en þær sitja jafnframt áfram í sínu gamla fari. Konur eru ekki nærri nógu duglegar við að l'orma og móta raunhæfar hugmyndir og að- gerðir sem breyta myndu hinu hefðbundna formi sambýlis karls og konu, sem bæta myndi stöðu þeirra. Konur viðhalda ríkjandi kerfi misréttis og kvennakúgunar með þögn sinni og „kvenlegri" þátttöku, m. a. hvað snertir upp- eldi barnanna, en þar gætu þær haft áhrif. Þó heimilið sé eini vinnustaður margra kvenna og erf- itt aö hugsa sér upplausn þess í ein- hverri mynd, er óhjákvæmilegt að ráöast á vandann og marka stefnu og leiðir í samræmi viö hið raun- verulega mein og orsakir þess. Kristjana Bergsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.