Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 27

Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 27
Á þeim sex árum sem liðin eru frá upphafi þessarar kvennatónlistar- vakningar hefur þróunin verið ör og árangurinn lætur ckki á sér standa. Brautryðjendur hreyfingarinnar eru orðnar vanar í bransanum, hafa öðlast dýrmæta reynslu og þjóna sem mikilvægar fyrirmyndir þeirra sem á eftir koma. I’essar hljóm- sveitir eru þó æði ólíkar, ekki bara hvað varðar tónlistina sjálfa, heldur einnig viðhorf til viðfangsefnisins, bakgrunn, reynslu, menntun, póli- tískar skoðanir o.fl. o.fl. Ég vil nú til kynningar fjalla örlítið um fjórar af þessunt brautryðjendahljóm- sveitum. The Slits Hljómsveitin The Slits var stofn- uð árið 1976 af þeim Vivian Alber- tine — gítar, Tessa Pollock — bassi, Palmolive - trommur og Arianna Forster - söngur, sent þá var aðeins 14 ára gömul. The Slits var fyrsta kvennapönkhljómsveitin og var starfandi þar til í janúar 1982. Þær stúlkurnar í Slits voru rétt nýbúnar að fá hljóðfærin í hendurnar þegar þær byrjuðu að koma fram og voru þær til að byrja með umtalaðar sem lélegasta pönkgrúppan í Englandi. Vivian segir frá hugmyndinni að stofnun hljómsveitarinnar í viðtali frá 1976: „Allir gæjarnir í kringum mig voru að stofna grúppur og þeir höfðu fyrirmyndir aö líta upp til. En ég hafði enga. Ég vildi ekki líkjast eða vera Joni Mitchell... Pá rann það skyndilega upp fyrir mér að ég þyrfti ekki að hafa fyrirmynd, ég gæti tekið upp gítarinn og bara spilað. Spurningin er því ekki svo mikið af hverju ég fór að spila held- ur af hverju ég byrjaði ekki fyrr.“ (Sounds, okt. 1976.) Tónlist The Slits var í fyrstu mjög hrá og einföld. Þær sömdu engar grípandi laglínur og spiluöu bæði falskt og órytmiskt. En smám sam- an þróaðist tónlist þeirra. Með æf- ingunni og reynslunni náðu þær valdi yfir hljóðfærunum og tónlist- arforminu. Þær urðu fyrir miklum áhrifum frá reggae-tónlistinni sem hefur sett æ meiri svip á tónlist þeirra. Umfjöllunarefni textanna var oftast sótt í eigin reynsluheim og umhverfi sem þær rcyndu að lýsa innanfrá. Þær lýsa heföbundnum kynjahlutverkum á írónískan hátt sem og útjöskuðum klisjum um ást og rómantík. Á sex ára starfsferli sínunt hafa The Slits fjarlægst ntjög uppruna sinn í pönkinu. Þær náðu töluverð- um vinsældum og þaö hafði sín áhrif á gang mála. Þær sneru baki við litlu plötuútgáfufyrirtækjunum, sem þær voru í samstarfi við til að byrja með, og gengu á mála hjá CBS. Kannski var það frægðarljóminn sem blasti við, en það varð hinsveg- ar skammgóður vermir því hljóm- sveititi leystist upp skömmu síðar eða í janúar 1982. The Au Pairs The Au Pairs koma úr pólitískt meðvituðum pönkkreðsum í Birnt- ingham. Hljómsveitin var stofnuð árið 1979 af tveim konum og tveim körlum. Þau eru: Lesley Wood - söngur og gítar, Poul Foad - söngur og gítar, Jane Druntmonds - bassi og Pete Hammond - trommur. Tónlist þeirra má skilgreina sem hefðbundið hrátt rokk nteð textum sem hafa feminískt yfirbragð en þeir eru flestir samdir af söngkon- unni Lesley. Tónlistin og textarnir tjá oft bæði reiði og aggression og Lesley leggur áherslu á þaö í kvennapólitík sinni að þetta séu þættir sein konum er venjulega for- boðið að tjá: „Nei, konum er ekki kennt að láta reiði sína í Ijós. Ef kona gerir það er henni sagt að hún sé bæði móðursjúk og taugaveikl- uð. Konur vantar leiðir til að tjá hvernig þeirn líöur í þessu þjóðfé- lagi. Þær hafa engin fordæmi til að fara eftir... engin tækifæri til að berja frá sér." (NME, júlí 1981.) Textarnir fjaila urn samskipti kynjanna, kynferðislega kúgun, um eiturlyf og pólitíska kvenfanga og fletta á írónískan hátt ofan af órétt- læti því sem hefðbundin kynjahlut- verk hafa í för með sér. Þar snerta þeir oft viðkvænta strengi eins og kom fram þegar BBC ritskoðaði lagið „Come Again" sem fjallar um konu sem blekkir mótleikara sinn í kynlífi rneð því að þykjast fá full- nægingu vegna þess að hún er þjök- uð af viðteknum gildum um kynlíf. The Au Pairs leggja rnikla áherslu á að „eiga sig sjálf" þ.e. að halda fullunt sjálfsákvörðunarrétti ylir tónlist sinni og þverneita að vera keypt af stórútgáfufyrirtækj- unt sem sýnt hafa hljómsveitinni áhuga. Slíkt mundi að þeirra mati ntinnka svigrúm þeirra til gagnrýni. 'l'he Raincoats „Að vera kona - það er bæði að skynja og tjá hið kvenlega í sér og (enn sem komið er a.m.k.) vinna gegn því hvernig konunni er sagt að hún „eigi" að vera. Þessi mótsögn skapar ringulreið í lífi okkar og ef við ætlum að vera heiðarlegar verð- um við að hafna því sem troðið hefur verið upp á okkur, við verð- um að haga lífi okkar á annan veg. Það er mikilvægt að reyna að forð- ast af fremsta megni að leika þau hlutverk sem reynt er að þröngva okkur inn í." (Ana da Silva.) The Raincoats byrjuðu að spila saman árið 1977. Tvær regnkáp- anna, þær Gina Birch og Ana da Silva, kynntust þegar þær stunduðu báðar nám við listaskóla 1976-77. Þær voru báðar ákafir pönk-aðdá- endur og fóru saman á fjölda pönk- konserta. Þær heyröu m.a. í The Slits og það varð kveikjan að því að þær fóru sjálfar að spila. Síðan bætt- ist fiöluleikarinn Vieky Aspinall í hljómsveitina en hún var áður í kvennarokk-jass hljómsveitinni Jam Today. Að lokum slóst trommu- leikarinn Palmolive í hópinn en hún var fyrsti trommuleikari The Slits. Tónlist þeirra hefur breyst ntikið á þeim árunt sem hljómsveitin hefur starfað. I byrjun var hún undir tölu- verðum áhrifum frá pönkinu en hefur þróast yfir í tónlist scnt er mun meira kontpóneruö og fjöl- breytilegri að stíl og hljóðfæraskip- an. Samspilið er orðiö meira fljót- andi og oft bregður fyrir jassáhrif- um. Tónlistin einkennist af mýkt og tærleika og hefur oft yfirbragð ang- urværðar. Margir telja tónlist The Raincoats vera „kvenlega" en þeim er ekki um slíkar alhæfingar gefið. Þegar Gina var spurð urn muninn á karla- og kvennatónlist sagöi hún: „Ég er ekki viss urn að það sé raun- verulegur rnunur þar á, þ.e. að kon- ur skapi endilega „kvennatónlist". Ég held að það séu misntunandi

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.