Vera - 01.10.1982, Síða 12
„Ég er heima vegna þess aö ég
get ekki hugsað mér aö missa af
þessum árum meö börnunum,"
sagöi Hanna. „Þetta er því ef til vill
fyrst og fremst eigingirni. Ég vil
hafa mótaridi áhrif á börnin mín
sjálf en ekki láta öörum þaö eftir."
Að vera sinn eigin verkstjóri
— Hvaðu kosti hefur það að ykkar
mati að vera húsmóðir?
Elinóra: „Tvímælalaust þaö að
geta verið heima hjá börnunum
sínum og sinnt þeim. Jú, og svo þaö
aö þá er maður sinn eigin herra og
ræöur aö mestu sínum vinnutíma
og skipuleggur hann aö eigin vild,
Svo hcfur maöur líka ágætan tíma
til aö gefa gaum að ýmsu því sem er
að gerast í kringum mann."
Jónína: „En svo erum viö nú
bara svo ólíkar hvaö þetta varöar.
Ég er t. d. þannig gerö aö ég fer
helst ekkert út nema ég sé búin aö
ganga frá öllu. Ég vil ekki þurfa aö
eiga eftir að vaska upp, ganga frá
eöa laga til þegar ég kem heim. Ég
get ekki farið út vitandi þaö aö ég
eigi eftir aö gera svo margt þegar
ég kem heim."
Hanna: „Ég hef nú heilmikiö
læknast af þessu. Ég veit aö upp-
vaskiö hleypur ekki frá mér. Og í
dag finnst mér ég fá vítamínsprautu
12
,,Það þykir ekki verðmætá
Viðtal við þrjár húsmæður
viö þaö eitt aö fara út. Ég fæ þá
alveg fítons kraft þegar ég kem
heim aftur og er búin að fá svolitla
tilbreytingu."
Elinóra: „Ég er alveg sammála
þessu. Maöur stendur yfir húsverk-
unum, segjum allan morguninn og
getur aldrei náö því aö sjá fyrir
endann á því sem rnaður þarf aö
gera. En fari maður út í smá stund,
þá er maöur svo ánægöur aö koma
heim aftur aö maður er helmingi
duglegri fyrir vikið.
Hanna: „Já, þaö er líka eins og
börnin róist viö aö fá tilbreytingu."
— Bresku húsmœðurnar í rann-
sókn Ann Oakley voru flestar sam-
mála um að það besta við húsmóð-
urstarfið væri einmitt að þá vœri
maður manns eigin verkstjóri. En
þœr sögðust allar veru það strangir
verkstjórar að þœr ættu nær aldrei
frí. Pær vissu nefnilega alltaf 'af ein-
hverju sem þær gátu farið að gera.
Jónína: „Þetta kannast ég við.
Hugsiö þiö ykkur. Ég er hér heima
kannski alla fimmtudaga og föstu-
daga til aö reyna aö vinna mér frí
fyrir helgina. Ég tek yfirleitt í gegn
hjá mér annan daginn og svo baka
ég hinn daginn. Ég er aö skapa mér
frí ef ske kynni að það kæmi sól
eöa viö myndum fara eitthvað. Svo
kemur laugardagurinn og sunnu-
dagurinn og þá æði ég um eins og
vitlaus manneskja, finnandi mér
eitthvaö til að gera, því þá get ég
hugsanlega átt meira frí í næstu
viku."
Hanna: „Þetta er kannski spurn-
ingin um að skipuleggja og aga
sjálfan sig."
Jónína: „Já, en ég er bara svona
ferlega kröfuhörö viö sjálfa mig.
Mér finnst ég aldrei standa mig
nógu vel í stykkinu."
Hanna: „En að gera eitthvað. Er
þaö bara að vinna heimilisverk? Er
þaö ekki alveg eins aö setjast niður
meö bók og slaka svolítið á?“
Jónína: „Jú, það finnst mér ofsa-
lega gott aö gera á kvöldin. Eftir kl.
9 á kvöldin heimta ég aö eiga frí."
— Og tekst þér að eiga alltaf frí
eftir kl. 9 á kvöldin?
Jónína: „Mér finnst þaö vera frí
ef yngri strákurinn minn er sofn-
aöur, og ég er búin aö vaska upp og
ganga frá öllu sem ég þarf að gera.
Þá er ég búin aö vinna mér frí og
get sest niður og td. saumað eöa
straujaö."
— En sértu að strauja eða jafnvel
að sauma, þá ertu ekki komin í frí.
Pú ert ennþá að vinna.
Jónína: „Já, en mér l'innst ágætis
afslöppun að sauma cöa strauja."
Flestum faunst þeim sjálf
húsverkin leiðinleg
— 70% hresku kvennanna fannst
leiðinlegt að vinna sjálf húsverkin.
Hvað segið þið um það?
Jónína: „Það eina sem mér
finnst virkilega leiöinlegt í sam-
bandi við húsverkin er að ryk-
suga."
Elinóra: „Mér l'innst alveg
óskaplega leiðinlegt að skúra. Ég
get kviðiö fyrir því í fleiri tíma að
fara að skúra."
„Mér finnst uppþvotturinn nteð
því allra leiðinlegasta sem ég geri,"
sagöi Hanna hins vegar og Elinóra
tók einnig undir það. „Og allur frá-
gangur," heldur Hanna áfram.
,,Mér linnst matargerðin og þaö að
baka mjög skemmtilegt, en að
ganga frá öllu leiðist mér alveg
hræðilega, þrífa ofninn og eldavél-
ina...“
Elinóra: „Það yrði etv. örlítið
skemmtilegra að skúra ef ég vissi
ekki aö þaö yrði allt jafn óhreint
strax daginn eftir. Ég fyllist svo
miklu vonleysi oft þegar ég er að
skúra."
Hanna: „Já, þarna kemur helst
fram hjá manni vonleysið um aö
ckkert gangi. Þaö sést aldrei neitt
eftir mann í þessum verkunt."
Hanna Níelsdóttir