Vera - 01.10.1982, Side 14

Vera - 01.10.1982, Side 14
dag ynni ég frá kl. 10 á morgnana til uþb. 10 á kvöldin." — Nú eru uþb. 80% allra giftra kvenna setn vinna utan heimilisins. Hvaða skoðttn hafið þið ú þessari attknu útivinnu kvenna? Jónína: „Það þarf alls ekki að vera neitt verra fyrir heimilið og börnin þótt konan vinni úti. Ég geri td. ekkert minna-af heimilis- störfum eftir að ég fór að vinna úti. En mér finnst þó ekki eigi að setja börn í pössun fyrr en þau eru orðin 2ja ára. Ég fór út að vinna því ég hafði orðið svo mikla þörf fyrir til- breytingu. Svo var yngri strákurinn orðinn allt of háður mér og eigin- gjarn á mig." Elinóra: „Það er mikið atriði að mæður sinni börnum sínum bæði andlega og líkamlega og því held ég að mjög langur vinnudagur utan heimilisins sé ekki heppilegur. En sé konan í vinnu sem henni þykir skemmtileg þá finnst mér alls ekki hægt að ætlast til þess að hún gefi hana upp á bátinn eftir að hún eignast barn. í þeim tilvikum finnst mér sjálfsagt aö hún noti dagvistar- stofnanir. Mér finnst líka þessar konur alveg geta gert þá kröfu til eiginmanna sinna að þeir minnki við sig sína vinnu og beri ábyrgð á uppeldinu á móti þeim. En það sem gerir þetta því miöur erfitt er að konur fá í flestum tilvikum mun verr launaða vinnu en eiginmenn þeirra. Því er það oft hrein og bein efnahagsleg ákvörðun sem ræður því að karlmaöurinn vinnur fyrir tekjunum en konan er heima." Hanna: „Mér finnst það skipta heilmiklu máli í sambandi við úti- vinnu kvenna á hvaða aldri börnin eru og hversu lengi unnið er. Ég er eins og Elinóra og Jónína á móti því að börn séu frá 3ja mánaða aldri á stofnun og séu þar frá kl. 8 á morgnana til kl. 6 á daginn. En ég er alveg jafn mikið á móti því að konan sé alveg einangruð inni á sínu heimili og karlinn vinni allt upp í 12—16 tíma á sólarhring. Það hlýtur að vera millivegurinn sem er bestur fyrir alla, það er aö báöir aöilar vinni utan heimilisins og báðir taki ábyrgð á börnunum. En til að svo megi verða þarf svo margt að breytast td. dagvistunar- málin, þar vantar allan sveigjan- leika.“ Röng stefna í dagvistunar- máluin Hanna: ,,Þegar ég var í Englandi kynntist ég barnaheimilum sem voru þannig rekin aö maður átti ekki fast ákveðið pláss fyrir barnið, heldur var hægt að koma meö það á hvaða tíma dags sem var og þar gat það verið eins langan eða skamman tíma og maður þurfti á að halda. Síðan var aðeins borgað fyrir þann tíma sem barnið dvaldi á barnaheimilinu hverju sinni. Mér finnst vanta hér á landi eitthvað þessu líkt. Þaö þarf einnig að breyta þeirri stefnu íslenskra stjórnvalda að byggja eins stórar og dýrar steinhallir og nú er gert þegar verið er aö byggja dagvistunar- heimili. Það er auðveldlega hægt að leysa brýnasta vandann með því að setja upp færanleg hús í þau hverfi þar sem þörfin er brýnust. Börnin þurfa engan íburð í kring- um sig. Þeim duga nokkrir penslar, litir, leiktæki og góð fóstra sem sinnt getur andlegum og líkamleg- um þörfum þeirra. Mér finnst líka orðið nauðsynlegt að fá umræðu inn í skólana um uppeldismál. Það þarf að mennta fóstrur í 3 ár til aö annast börn, en það geta allir orðið foreldrar án nokkurrar fræðslu í sambandi við uppeldi barna.” — Petta tóku þœr Elinóra og Jónína undir. Pœr voru einnig nokkuð sammála um að það hefðu allir feður gott af því að taka þútt í uppeldi og þroska barna sinna. Pað mundi jafnvel breyta körlunum dú- lítið, gera þá blíðari og skilnings- ríkari um mannlegar þarfir. Hanna: ,,En áöur en þaö getur átt sér stað í einhverjum mæli, þarl' lífsgæðakapphlaupið að minnka, vinnutíminn að styttast og verða sveigjanlegri en hann er í dag.” Eiginmaöurinii á peningana og skammtar þá — Nú er húsmóðurstarfið eina starj'ið í þjóðfélaginu sem er algjör- lega ólaunað. Finnst ykkur það þurfi að breyla þessu? Hanna: ,,Já, ég er þcirrar skoð- unar að vilji húsmæður vinna innan heimilisins meðan þær eru með börn undir skólaskyldualdri þá eigi þær aö fá greitt fyrir það. Slíkt gæti t. d. átt sér stað í gegnum skatta- kérfið. Á þann hátt væri búið að viðurkenna þetta sem vinnu.“ — Pað besta við að vinnu utan heimilisins að mati margra kvenna er að þú verða þœr efnahagslega sjálfstœðar. Finnst ykkur erfitt að Við tilkynnum adsetursskipti og nýtt símanúmer: 8 59 55 Með stórbærrri aðstcjðugerum við btxðið srórbætra bjonustu, því enn höfum við harðsnúið hð,scm bregður skjórr við ! Nú Parf enqinn aó bióa lengi eftir viógeröamanninum. bú hringir og hann er kominn innan skamms. Einnig önnumst vió nýlagnir og gerum tilboó. ef óskaö er. •RAFAFL tramleiðslusamvinnu- félag iðnaðarmanna SMIÐSHÖFÐA 6 - SÍMI: 8 59 55 líta á þú peninga sem eiginmenn ykkar fá greidda fyrir sína vinnu, sem ykkar eigin peninga? Hamta: „Mín reynsla er ekki sú, en ég þekki þess mörg dæmi að hjón líti svo á aö eiginmaðurinn eigi peningana einn, því það er jú hann sem fær útborgað. Ég held að það sé sérstaklega erfitt fyrir marg- an karlmanninn aö líta svo á að konan hans eigi peningana líka. Ég veit að það er algengt að eiginmað- urinn skammti konu sinni ákveðna peningaupphæð t. d. á viku sem hún verður að láta sér nægja við rekstur heimilisins." Jónína: „Og þessir karlmenn gera sér á engan hátt grein fyrir því hvað það er orðið dýrt að versla til heimilisins. Enda eru þeir alltaf hissa á því hvað konan eyðir mikl- um peningum." — Þegar klukkan var langt geng- in í eitt að nóttu vorum við farnar að tala um vandamálið sem skapast samfara þeim tómleika sem upp kemur hjá húsmœðrum þegar börnin eru flutt að heiman og verk- efnum heima fyrir fækkar til muna. Sú' vatuli er m. a. tengdur þeim skorti ú sjálfstrausti sem svo oft er áberandi hjá eldri konum er þær standa frammi fyrir því að langa til að sœkja út á vinnumarkaðinn eftir jafnvel úratuga vinnu innan heimil- isins. Hvernig fjölskylda framtíðarinn- ar kemur til með að vera er ekki gotl að spú J'yrir um. Eitt er þó víst að minnkandi hlutverk fjöl- skyldunnar í nútíma þjóðfélagi og hin aukna útivinna kvenna mun fremur veikja hana en styrkja. Pví á fjölskyldan t dug í nokkrwn vanda gagnvart breyttum þjóðfélagshátt- um. Hvernig þeim vanda verður mœtt mun framtíðin ein skera úr um. Ýmsir hafa þú trú að með ör- tölvubyltingunni sem siglir nú hrað- byri inn í íslenskt þjóðfélag, getum við stytt vinnudaginn án þess að skerða launin. Verði sú raunin mun verða auðveldara að koma á jafnri foreldraábyrgð samfara jafnvel 5-ó tíma útivinnu beggja foreldra. Þetta rceðst þó allt af því í þctgu hverra tœknibyltingin mun verða skipu- lögð. Hvort það verður í þágu al- mennings og þá með styttingu vinnudagsins, eða hvort það mun aðeins hafa í för með sér aukið at- vinnuleysi. Ef til atvinnuleysis kem- ur, þá vitum við af reynslu hverjum verður fyrst sagt upp. Auðvitað konunum. G. L. R.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.