Vera - 01.10.1982, Page 18
„Eftir lokaglímuna standa böm
og foreldrar í Seljahverfi eitt ár-
iö enn án úrlausnar.“
„Þad léttir baráttuna við kerfið
þegar bæjarbúar sjálfir láta í sér
heyra.“
fórum við svo léttar í skapi og næsta öruggar um farsæl
endalok á síðasta fundinn í félagsmálaráði sem um málið
fjallaði svo og með ábendingar um hvaða liðir í fram-
kvæmdaáætluninni væru ekki nýttir.
En niðurstaðan í félagsmálaráði varð sú sem þegar hefur
verið rakin. Málinu var vísað frá.
Lokaglíman
Nú vill svo til að ég á þetta árið sæti í borgarráði og því
ákvað ég að láta reyna endanlega á málið þar og flutti því
enn tillögu um að borgarráð heimilaði kaup á einni lausri
kennslustofu af því fé sem ætlað er til byggingar dagvistar-
heimila í ár og gerði þannig kleift að koma á fót skóladag-
reynst að fá upplýsingar. Það eru t. d. ótaldir tímarnir sem
það tók mig að fá þau skjöl og bréf sem snertu forsögu þessa
máls.
Annað sem er áberandi er að mál eru þæfð, þau eru send
milli stofnana, embættismanna og nefnda og allt tekur það
óratíma.
Þriðja atriöið er að svo er látið líta út sem embættismenn í
kerfinu séu hlutlausir í málurn, þeir safni einungis upplýs-
ingum og dragi fram allar hliðar máls. Þetta er að sjálfsögðu
goðsögnin einber. Embættismenn hafa skoðanir og skoðan-
ir þeirra hafa áhrif á hvernig þeir leggja málin fyrir og þeir
geta tafið mál. Stundum gengur svo langt að embættismenn-
irnir sjálfir virðast trúa á goðsögnina.
Breidagerðisskóli
Ljósm. Rut
Seljaskóli Ljósm. Rut
heimili í Seljahverfi. Áður hefði félagsmálastjóri upplýst að
fé væri til á fjárhagsáætlun til rekstrar heimilinu.
Þegar þessi tillaga var kynnt á fundi borgarráðs lágu enn á
ný fyrir bréf frá stjórn foreldrafélags ölduselsskóla og
Félagi einstæðra foreldra til stuðnings málinu. Föstudaginn
3. sept. s. 1. hófst svo lokaglíman og þá flutti félagsmálastjóri
skýrslu forstöðumanns byggingardeildar. Allir liðir hennar
höfðu bólgnað út og farið fram úr áætlun á þeim hálfa
mánuði sem liðinn var frá viðtali okkar við forstööumann.
Ekki nóg með það. Kostnaðurinn við að kaupa færanlega
kennslustofu og tíminn sem til þurfti til að byggja hana hafði
tvöfaldast. — Allir vita að mikil verðbólga er hér á landi en
þetta slær þó trúlega öll met.
Er nú skemmst frá að segja að tillaga mín fékk aðeins tvö
atkvæði minni hluta fulltrúa í borgarráði og þar var endan-
lega gengið af þessu máli dauöu. Eftir standa börn og for-
eldrar í Seljahverfi eitt árið enn án úrlausnar á vistun barna
þar.
Lokaorð
Þetta mál var ekki keyrt í gegn af meirihluta á feikna
hraða eir>s og við höfum nýlega reynslu af í skipulagsmálum.
Nei, nú var allt sett í hæga gírinn og velkunnum vörnum
skrifræðiskerfis beitt til þess að hindra að málið næði fram
að ganga.
Er þar fyrst til að nefna hversu seinlegt og erfitt getur
Loks vil ég nefna meðferð talna. Þar gætir sömu blekk-
inga og um embættismennina. Tölur er hægt að túlka á ýmsa
vegu og þær segja í flestum tilvikum ekki nema hálfa sögu.
I þessu máli notuðu meirihlutinn og embættismennirnir
allar þessar aðferðir til að fá málefnalegan svip á ákvörðun
sem gekk þvert á rök og áskoranir þeirra aðila sem málið
snertir og sýnilega þörf á úrlausn þess.
Þetta mál sýnir einnig að rök, sannanleg þörf á þjónustu
og barátta megna lítils í glímunni við kerfið. Það eru þó einu
vopnin sem við höfum og þeim munum við halda áfram að
beita. Það eru margar slíkar orustur framundan og einhverj-
ir munu sjálfsagt telja að þetta sé að berja höfðinu við
steininn, og ekki er nú laust við að hiö sama hvarfli að
undirritaðri öðru hvoru. Það sem vekur von og léttir bar-
áttuna er að borgarbúar sjálfir eru í vaxandi mæli farnir að
láta í sér heyra og til sín taka ýmislegt í stjórn borgarinnar
sem snertir þá og þeirra hverfi.
Eins og dæmin sanna hunsar meirihlutinn, hvort sem
hann telst til vinstri eða hægri, oft álit slíkra hópa. Öflug og
virk íbúa- og hverfasamtök eru sterkt afl og ásamt með
þeim er von til að hægt sé að knýja kerfið til að þjóna
borgarbúum í stað þess aö þjóna sjálfu sér og sínum hags-
munum. Að því marki miðast baráttan.
Guðrún Jónsdóttir,
borgarfulltrúi.