Vera - 01.10.1982, Page 21
ERLENDAR FRÉTTIRERLENDAR FRÉTTIRERLENDAR FRÉTTIR
Rússland:
Natalya Lazarcva, stofnandi
fyrstu kristilegu kvennasamtaka
Sovétríkjanna, hefur veriö hand-
tekin og bíður dóms. Natalya
stofnaði ,,Club Maria“ í mars 1980
ásamt með átta öðrum konum.
Hópurinn gaf m. a. út „Almanak
fyrir konur um konur" og tímaritiö
María, en þá komu stjórnvöld í vcg
fyrir frekari útgáfustarfsemi.
Nokkrar kvennanna átta fluttu úr
landi, aörar lentu t útistöðum viö
valdhafa. Natalya Lazareva var
handtekin í september 1980 og
dæmd til tíu ára þrælkunarvinnu.
Hún slapp þó úr klóm laganna en
var handtekin aftur í mars s. 1. og
ákærð fyrir and-sovéskan áróður.
Sönnunargögnin voru tímaritið
Maria. Hún mun nú bíða dóms.
Kvenréttindakonur í Bretlandi og í
Þýskalandi eru nú að skipuleggja
bréfaskriftir til sovéskra sendiherra
í viðkomandi löndum til að mót-
mæla handtöku Natalyu.
England:
1 Falklandseyjadeilunni blésu
dagblöö og aðrir fjölmiðlar hetju-
dáðir bresku hermannanna upp
eins og blöðrur á forsíöunum. Tár-
votar kærustur aö kveðja hetjurnar
sínar á hafnarbakkanum voru
myndaöar í bak og fyrir og haft
el'tir þeim hversu stoltar þær væru
af strákunum! Ef marka má fregnir
úr útbreiddasta kvennablaði Eng-
lands (og við meinum ekta kvenna-
blaði!), Spare Rib, var hér enn þá
einu sinni um að ræöa falsaða
mynd af konum, því flestar eigin-
konur og kærustur voru síður en
svo stoltar af hetjunum sínum og
síður en svo hressar með stríðið.
Konur í Plymouth, hafnarborginni,
þar sem flestir sjóliðar breska hers-
ins búa, efndu til fjölmennra mót-
mælafunda gegn stríðinu. Konur
yfirhöfuð voru í miklum meirihluta
þeirra, sem andmæltu framgöngu
Breta á Falklandseyjum og voru
einna duglegastar við aö benda á
hræsnina, sem stjórnvöld sýndu
með því að þykjast vera að berjast
gegn fasisma Argentínu á sama
tíma og þau selja fasista-stjórnum
annars staðar í heiminum vopn. Og
konurnar mótmæltu þeim ísmeygi-
legu lygum fjölmiðla aö stríö væri
hetjudáð og spurning um þjóðar-
stolt. Þær sögðust meta mannslífin
meir en slíkan þvætting.
Bandaríkin:
Efnahagsaðgerðir Reagan-
stjórnarinnar hafa komið einkar
illa niður á konum, segir sveitar-
stjórnarkonan Barbara Boggs Sig-
ismund í New Jersey í viðtali við
þarlent blað. Eitt af því sem ríkis-
stjórnin hefur komið til leiöar, er
að láglaunakonur með börn á
framfæri fá ekki lengur barnameð-
lög og ókeypis heilbrigðisþjónustu,
sem þær fengu þó áður. Slíka að-
stoð er nú aðcins hægt að fá ef
einstætt foreldri er atvinnulaust
með öllu. Síðan þessi breyting var
gerð, láta æ lleiri mæður skrá sig
atvinnulausar svo þær ntegi áfram
hljóta barnastyrkinn, því án hans
geta þær ekki framfleytt sér og fjöl-
skvldunni.
Barbara þessi Sigismund mun
hai'a látiö málefni kvenna sérstak-
lega til sín taka i stjórnmálastörfum
sínum og segir í því sambandi, að
„svo lengi sem aðeins 12% stjórn-
málamanna séu íulltrúar 51%
þjóðarinnar, verða þær konur að
einbeita sér að kvennamálunum".
Hún bendir m. a. á þá skrýtnu
staðreynd að konur, sem eru at-
vinnurekendur geti dregiö kostnað
vegna barna yngri en 15 ára frá
skatti rétt eins og annan rekstrar-
kostnað en á sama tíma fá launa-
stéttir engar niöurgreiðslur á
barnagæslu! „Eg er þeirrar skoð-
unar," segir Barbara, „að konur
verði að sameinast þvcrt á stétt og
fjárhagsstöðu. fyrr verður ekki um
að ræða efnahagslegt réttlæti til
handa konum í þessu landi." Bar-
bara Sigismund bauð sig fram fyrir
Demókrataflokkinn við öldunga-
deildarkosningar í vor. Á flokks-
þinginu tapaði luin fyrir milljóna-
mæringi nokkrum sem varði
900.000 dollurum í sjónvarpsaug-
lýsingar einar saman í kosninga-
baráttunni!
Pólland:
Eiginkonur stuðningsmanna
Solidarnosc hafa horfið í fangelsi
hver af annarri. Aðrar hafa verið
reknar úr vinnu, börn hafa verið
tekin að heiman og matar-
skammtakort liafa verið tekin af
konunum. Pólsk kvennasamtök í
London hafa í sínum fórum nöfn
300 kvenna sem hafa horfiö spor-
laust, líklega í vinnubúðir. Kvenna-
samtökin heita Polskie Feminitsky,
fara fram á þaö við kynsystur sínar
um allan heim, að þær sendi föt til
kvennanna í fangelsunum. þar er
mjög kalt og tækifærisföt eru vel
þegin aö sögn. Einnig er beðið um
að konur skrifi pólsku stjórninni og
mótmæli fangelsun kvennanna án
dóms eða laga. Hægt er að skrifa
bréfin til kvennanna í London og
þær koma bréfum áleiðis til Pól-
lands. Heimilisfangið er: Polskie
Feminitsky, c/o 374 Gray’s Inn
Road, London WCl.
Dunmörk:
Sveitafélögin í Kaupmannahafn-
arumdætni hafa farið þess á leit við
danska þingið að fæðingarorlofs-
greiðslur verði lengdar í 12 mán.
Fram til þess tírna sem þingið sam-
þykkir þetta hafa sveitarfélögin
boðist til að taka greiðslurnar á sig.
Pessi lenging fæðingarorlofs er
liður í því að koma til móts við hið
mikla atvinnuleysi í Danmörku.
Rökin eru sem sagt ekki heilsufars-
ástand móður og barns eða félags-
legur réttur foreldra. Það sem vakir
fyrir mönnum er að rýma til á
vinnumarkaðinum og koma þeim
atvinnulausu í þessar stöður sem —
í nær öllum tilfellum — konur hafa
gegnt.
Skv. núgildandi landslögum er
greitt 4ra vikna orlof fyrir fæðingu
og 14 vikna orlof eftir fæðingu.
VERA
VERA kemur næst út miðvikudaginn 10. nóvember.
Aðalefnið þá verður OFBELDI.
FRESTUR TIL AÐ SKILA GREINUM ER 27. OKTÓBBER.
Styðjið VERU! — Skrifið VERU!
21 £