Vera - 01.10.1982, Side 28
hliðar á manneskjunni. Margir karl-
menn flytja mjög blíða og tæra tón-
list og margar konur framleiða
þungan og aggressívan gauragang."
(NME, ágúst 1981.)
En í tónlist sinni bregðast þær við
ríkjandi hefðum og gildismati og
þær leggja áherslu á að gera hana
manneskjulega og höfða til tilfinn-
inganna. f>að er þeirra stefna og að
þeirra sögn tengist það því að þær
eru konur. Textar þeirra fjalla
gjarnan um tilfinningar kvenna,
einmanaleikann, ástina og nauðsyn
þess að brjóta hefðina. Pær syngja
um konuna séða með augum kon-
unnar.
The Feminist
Improvising Group
The Feminist Improvising
Group var stofnuð árið 1977 og
hefur lengst af starfað sem kvintett
enda þótt stærð hljómsveitarinnar
hafi verið mismunandi gegnum tíð-
ina. Meðlimir hennar eru: Lindsay
Cooper - fagott, sópran sax, óbó,
flautur, Georgie Born - celló,
bassi, Maggie Nichols - söngur,
Irene Schweizer — píanó, slagverk
og Sally Potter - söngur, alt sax.
Allar þessar konur voru meira
og minna atvinnukonur í tónlist og
höfðu kynnst af eigin raun hvernig
það er að starfa í tónlistarbransan-
um þar sem karlmenn ráöa lögum
og lofurn. The F.I.G. var stofnuð
sem andsvar við þessu karlveldi í
tónlistarheiminum og vegna þess
aö konur höföu takmarkaða mögu-
leika til að starfa í spunatónlist.
Markmiðið var líka að reyna ann-
ars konar vinnutilhögun, að reyna
að vinna á algjörum jafnréttis-
grundvelli án innbyrðis samkeppni.
Jafnframt líta þær á starf hljóm-
sveitarinnar sem innlegg í femin-
íska menningarpójitík.
The F.I.G. spila, eins og nafnið
gefur til kynna, tónlist leikna af
fingrum fram þar sem öllum mögu-
legum og ómögulegum tónlistar-
HEICO
Vinnu
sloppar
Kjólar
Jakkar
Hvítt
Mislitt
Stærðir 34—48
r^)íella
Bankastræti 3
s.13635
Póstkröfusendum
stílum og tegundum bregður l'yrir.
T'he F.I.G. leggur aðaláherslu á
sjálfa tónlistina, reynir að þróa tón-
listarform sem sprengir ramma
borgaralegrar tónlistarmenningar.
Pær skilja ekki við áheyrendur í
minningu um notalegt tónlistar-
kvöld, þar sem tónlistin fer inn um
annað eyrað en út um hitt, og
bjóða ekki upp á þægilegan kliö-
mjúkan lokasamhljóm sem endan-
lega lausn á konsertinum.
Til þess að koma pólitískum
boðskap sínum á framfæri beitir
The F.I.G. leikhússpuna og gjörn-
ingatækni. Formið verður þannig
samsuða af tónlist, textum og leik-
rænni tjáningu. Spuninn gerir það
að verkum aö áheyrendur veröa
virkir þátttakendur í tilurö tónlist-
arinnar og ráða miklu um hver út-
koman verður. Andrúmsloftið á
staðnum hefur þannig mikil áhrif á
tónlistina.
Meölimir hljómsveitarinnar
leggja mikla áherslu á að ná sam-
bandi við áheyrendur og þar með
koma pólitískum boðskap sínum á
framfæri án þess þó aö sveigja frá
markmiðum sínum um framsækið
tónlistarform.
HEIMILDIR SEM VI I'NAÐ ER í:
Lindsay Cooper: Women, Music,
Feminism — notes
Musics no. 14, okt. I977
Karen Benson: Typical Girls
Z G no. I. I98l
Dave Laing: Interpreting Punk Rock
Marxism Today apríl I978
Viötal viö The Slits
Sounds okt. I976
Viðtal viö The Au Pairs
New Masical Express júlí 1981
Viötal viö The Raincoats
New Musical Express ágúst 1981
HELSTU HLJÓMPLÖTUR:
The Slits:
Cut- Island ILPS 9573
Return of the Gianl Slits - CBS 85269
The Au Pairs:
Playing with a Different Sex - Human I
The Raincoats:
The Raincoats - Rough Trade - Rough 3
Odyshape - Rough Trade - Rough
I3
The Fcminist Improvising Group:
The Feminist tmprovising Group -
kassetta The F.I.G.
Lindsay Cooper:
Rags - Arc records RRF 001
KYNNIST
HINNI NÝJU
VERU!
Fæst á blaðsölustöðum
um allt land. Verð: 40.-
í lausasölu, áskrift 315.-
fi28