Vera - 01.02.1985, Blaðsíða 2
VERA
1/1985
Útgefendur:
Kvennaframboöiö í Reykjavík
og Samtök um Kvennalista.
Símar: 22188, 21500, 13725
Með nýsamþykktum lögum á Alþingi um tekju- og eigna-
skatt er stigið skref í átt til aukinnar samsköttunar hjóna. Er
þetta gert til að jafna þann mismun sem er á samaniögðum
sköttum þeirra hjóna þar sem annar aðilinn er aðalfyrirvinnan
og hinn þar sem báðir aðilar sjá um tekjuöflun heimilisins.
Þessi skattabreyting kostar ríkissjóð 200 milljónir.
Hafi verið ætlun ríkisstjórnarinnar aö koma til móts við kon-
ur með þessu frumvarpi þá hefur það mistekist. Flest kvenna-
samtök í landinu, sem láta sig frelsi kvenna einhverju varða,
hafa lýst sig mótfallin þessum lögum enda ganga þau þvert
á þá skoðun að hver einstaklingur skuli vera efnahagslega
sjálfstæður án tillits til hjúskaparstöðu.
Lagasetning sem þessi er einn liður í fjölskyldupólitík ríkis-
valdsins rétt eins og mæðralaun, barnabætur, bygging dag-
vistarstofnana, fæðingarorlof o.fl. Allt kostar þetta sitt, en
þegar litið er á framlag ríkisvaldsins til einstakra liða kemur
í Ijós hvert það stefnir með fjölskyldupólitík sinni. Á fjárlög-
um þessa árs er ráðgert að leggja 30 milljónir í byggingu
nýrra dagvistarstofnana og láta mun nærri. að Trygginga-
stofnun ríkisins greiði um 200 milljónir í barnabætur á þessu
ári. Ein af forsendum þess að konur geti verið efnahagslega
sjálfstæðir einstaklingar, og þar með ein af forsendum sér-
sköttunar, er að nægilegt framboð sé á góðum dagvistar-
stofnunum og að ríkið greiði raunhæfar barnabætur. Skatta-
afsláttur til þeirra karlmanna, sem búa með heimavinnandi
húsmóður, leysir ekki vanda kvenna. Þvert á móti, hann við-
heldur ríkjandi hlutverkaskiptingu kynjanna og getur, ef
lengra er haldið, orðið til þess að ýta konum inn á heimilin
aftur þó ekki væri til annars en að sinna þörfum eins karl-
manns. Þeim 200 milljónum, sem þessi skattaafsláttur kostar
er því ekki varið til að bæta stöðu kvenna.
Húsmóðurstarfið hefur vissulega verið vanmetið og rétt-
indaleysi þeirra kvenna sem því hafa sinnt er nær algert.
Þessu verður að breyta en það má ekki gera það á kostnað
þess sjálfstæðis sem við höfum verið að berjast fyrir um lang-
an aldur.
isg.
t n ['o: k r/t/"
390832
ÍSIAHIIS
Ritnefnd:
Gyöa Gunnarsdóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kristín Blöndal
Guðrún Ólafsdóttir
Guörún Erla Geirsdóttir
Magdalena Schram
Útlit:
Malla, Solla, Gyöa, Stína, Kicki
Starfsmaöur Veru:
Kicki Borhammar
Mynd á forsíðu:
Asrún Kristjánsdóttir
Auglýsingar og dreifing:
Hólmfriöur Árnadóttir
Ábyrgö:
Gyða Gunnarsdóttir
Setning og filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Solnaprent
Ath: Greinar í Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna
og eru ekki endilega stefna útgefenda.