Vera - 01.02.1985, Blaðsíða 4
Það t.d. að láta óhreinu fötin sín sjálfur í
óhreinatauskörfuna er ekki „hjálp” við ein-
hverja þjónustukonu heldur framiag til
sameiginlegra verkefna, sem sinna þarf á
heimilinu. Að annast börnin sín á meðan
mamma þeirra er ekki heima er ekki að
passa fyrir hana heldur það, að vera með I
uppfóstran þeirra og tilveru — eða passar
mamman kannski /yrir pabbann meðan
hann er ísinni vinnu eða stundar sín áhuga-
mál? Karlmenn, sem telja sig sýna örlœti
þegar þeir sjá sjálfir fyrir líkamlegum þörf-
um sínum eða umgangast sín eigin börn vita
ekki enn, að „það lengsta sem hœgt er að
nudda körlum I jafnréttisátt” er að koma
þeim í skUning um að konur eru ekki þjón-
ustustúlkur og barnapíur bara af því að þœr
eru konur og að þátttaka karla I heimilis-
störfum og barnaumönnun er ekki þakkar-
verð örlœtisverk heldur eðlilegur skerfur til
heimilisins ogfjölskyldunnar. Það er nú allt
og sumt. Og þú ert sjálfsagt alveg sammála
okkur — a.m.k. gefum við þér þann sjéns,
þótl þú likt og margir skoðanabrceður þínir
notir enn orðin, sem við lærðum að nota en
erum að reyna að „af-lœra”. Þakka þér bréf-
ið og kœrar kveðjur, Vera.
Útvarp. . .
Hér er, af gefnu tilefni — tillaga handa
útvarpsráði:
,,Útvarpsráð samþykkir að leggja þá
vinnureglu til við umsjónarmenn umræðu-
þátta í sjónvarpi og hljóðvarpi, að konur
skuli vera minnst helmingur þátttakenda í
slíkum þáttum. Nemi fjöldi þátttakenda
oddatölu, skal sástaki veraaf öðru kyni en
stjórnandinn.”
ímyndum okkur mótrök gegn slíkri til-
lögu. ímyndum okkur líka svör:
EN ÞETTA MYNDI ÞÝÐA AÐ KONUR
KÆMUST AÐ BARA VEGNA ÞESS AÐ
ÞÆR ERU KONUR!
— Auðvitaö. Þaö er akkúrat það sem
þarf!
— Er eitthvað einkennilegra viö það að
kona komist að bara af því aö hún er kona,
en hitt, aö karlmaður komist aö bara vegna
þessað hann er karl? (Pælið í þessu. Þetta
er ekki eins fráleitt og sýnist.)
EN SVONA REGLA GÆTI HAFT í FÖR
MEÐ SÉR AÐ KONUR YRÐU í MEIRI-
HLUTA í UMRÆÐUÞÁTTUM!
— Já, einmitt.
— Og hvað með þaö?
EN ÞAÐ ERU EKKI TIL NÓGU MARGAR
KONUR, SEM ERU SÉRFRÆÐINGAR!
— Ertu alveg viss?
— Hvað er það að vera sérfræðingur?
— Fínt, þaö er allt of mikið af sérfræð-
ingum í útvarpinu hvort eð er! Hvernig
væri að heyra einu sinni álit þeirra, sem
þurfa að lifa við bankakerfið í stað hinna,
sem búa það til. Þessi regla gæti valdið
stórkostlegri byltingu í gerð umræðuþátta!
ÞAÐ ER SVO ERFITT AÐ FÁ KONUR TIL
AÐ TAKA ÞÁTT:
— Hvað ertu búinn að reyna lengi?
— Ertu að spyrja réttar konur?
— Ef konasegir nei, gæti það mögulega
verið vegna þess aö þátturinn þyki ekki
þess virði? Þarf kannski að hugsafleti um-
ræðuefnisins upp á nýtt?
— Skyldi það vera nokkuð skrýtnara
hvað allir karlar telja sig alltaf hæfa til að
tjá sig um allt milli himins og jarðar?
EN T.D. í STJÓRNMÁLAUMRÆÐUM
VILJA FLOKKARNIR FÁ AÐ RÁÐA ÞVÍ
HVER KEMUR OG ÞEIR SENDA EKKI
KONURNAR.
— Hver stjórnar þessum þætti, þú eða
flokkarnir?
EN ÞAÐ ER HEIMTUFREKJA AÐ ÆTL-
AST TIL ÞESS AÐ KONUR KOMI FRAM í
SJÓNVARPI OG ÚTVARPI TIL JAFNS
VIÐ KARLA. HREINASTA ÓSVÍFNI OG
EKKERT ANNAÐ EN KYNFERÐISLEG
AÐSKILNAÐARSTEFNA.
— Rök bíta rök!
— Guð minn almáttugur!
— ímyndum okkur að lokum, að svona
tillaga yrði samþykkt og að þessi vinnu-
regla yröi í heiðri höfð:
Hún myndi útiloka að hægt væri að
byggja Kastljós, sem ætlað væri aö fjalla
um ástand og horfur í upphafi nýs árs, á
viðtölum við u.þ.b. tiu íslendinga, sem allir
væru karlmenn.
Hún myndi útiloka að fram færi um-
ræðuþáttur um stjórnmálaástandiö án
þess að nokkur kona fengi að leggja orð í
belg.
Hún myndi útilokaað í umræðuþætti um
ofbeldi gegn konum fengi aðeins einn karl-
maður að lýsa þeim viðhorfum, sem barist
er gegn.
Hún myndi verða til þess að gera útvarp-
ið að betri fjölmiðli.
Ms
VILTCi VERNDA BAKIÐ?
Framleiddir hjá Stálhúsgagnagerö Steinars h/f og Stál og Stil.
Þeim leiðist ekki að auglýsa Kvennalist-
ann! Svava.
Ástin
Ástin hefur alla tíð
yljað mína daga,
þung var stundum þrautahríð
en það er önnur saga.
Börnunum og bóndanum
bjó hún allt í haginn.
Nú kyndir hún upp í kofanum
krappan elli daginn.
Ellilaunin eru smá
allt er klippt og skorið
En ástina mína enn ég á
eins og blessað vorið.
Alls staöar eru arðránsklær
eins og gamli skrattinn
en ástinni minni enginn nær
upp í ríkisskattinn.
Elli kerling engu nær
að eyða af hennar sjóðum
Frosti gamli fjúk og snær
fölna á hennar glóðum.
Þegar þyngist hugurinn
og þín er höndin lúin
þá er besti bjargvætturinn
bænin, ástin, trúin.
Ástarþakkir ástin mín
og allt úr þinni hendi
láttu björtu Ijósin þín
lýsa minum endi.
Laufey