Vera - 01.08.1985, Blaðsíða 13

Vera - 01.08.1985, Blaðsíða 13
körlunum sé hlíft meira. Ég held líka aö þaö mætti undir- búa fólk betur undir þann möguleika, aö þaö muni ekki geta eignast barn saman, kannski ætti á einhvern hátt aö vera búiö að undirbúa mann strax sem ungling, undirbúa mann undir aö það gildir ekki bara ein regla. Og svo held ég aö þaö sé ráðlegra aö vera ekki aö pukra meö þetta heldur i segja sannleikann. Ég á þá ekki viö aö maður ætti að vera aö ræða þetta alls staöar og alltaf, þaö höfum viö aldrei gert — en reyna á einhvern hátt að láta a.m.k. þá nánustu vita hvernig málin standa. Það ger- ir hlutina auðveldari einhvern veginn. Ms skerða frelsi" £ ,,Böm Viömælandi minn er 24 ára gömul kona. Hún hef- ur nýlokið námi og hefur verið í sambúð síðast liðin 5 ár. í dag segist hún ekki hafa áhuga á því að eign- ast barn en tekur þó jafn- framt fram að það geti vel breyst. Hverjar eru ástæOurnar fyrir því adþú hefur ekki hugsaO þér aö eignast barn, a.m.k. ekki í nánustu framtíö? Af hverju eru konur alltaf spurðar aö því af hverju þær vilji ekki eignast börn, en ekki af hverju þær vilji eignast börn? Mér finnst óg sjálf ekki tilbúin til þess aö helga mig barni og líka vil ég geta boöið barni upp á betri aöstæður. Þaö er margt sem óg á eftir að gera, feröast, vinna og ýmislegt fleira. Mór finnst börn skeröa frelsi kvenna, mig langar t.d. aö flakka um heiminn og ekki er það hægt meö lítiö barn. Ég ætla að taka ákvörðun um þaö aö eignast barn ef mig fer að langa til þess. Ég held nefni- lega aö það sé furöu algengt að konur slaki á kröfum um getnaðarvarnir þegar þær eru farnar aö hugsa um að þaö væri allt í lagi að eignast barn og firra sig þeirri ábyrgö sem fylgir því aö taka ákvöröun um þaö. Hvernig er þaö meö maka þinn, er hann sama sinnis og þú, eöa langar hann til aö eign- ast barn? Nei, viö erum alveg sammála um þessa hluti. Fyrir nokkrum árum slöan varö óg ólétt, þaö var þá aldrei spurning um hvort ég vildi eignast barnið, en óg haföi þá aldrei hugsaö neitt um fóstureyðingar aö ráöi. Þaö tók mig dálítinn tíma að sigrast á fordómum í sam- bandi viö fóstureyöingar. Ég var þá (námi, haföi aö vísu tek- ið mér frí frá þvl þennan vetur, en ætlaöi aö halda áfram. HefurOu einhvern tímann séö eftir þvi aö fá fóstureyöingu? Nei, alls ekki. Ég hugsa oft um allt sem ég hef gert siöan og heföi ekki getaö gert, ef ég ætti barn. Ég heföi alls ekki getaö sætt mig við aö missa af því. Hvaö finnst fjölskyldum ykkar um þaö aö þiö sóuö ekkert á þeim buxunum aö fara aö eign- ast barn? Móðir mín minnist ekkert á þetta, en faöir minn er svoddan barnakarl, hann gat ekki verið meö sínum börnum þegar þau voru aö alast upp og bætir sór þaö með barnabörnunum sem eru oröin nokkur. Hann vildi gjarnan fá fleiri. Tengdafor- eldrar mlnir eiga aftur á móti engin barnabörn og tengda- manna hlakkar til aö eignast barnabörn. Hún reiknar alveg meö því að viö sjáum henni fyrir þeim. Hefuröu fundiO fyrir utanaö- komandi pressu um aö eignast börn? Nei, nú orðið er þaö viður- kennt aö konur fari I nám, eöa sinni sjálfum sér á annan hátt en byrji ekki á þvl að eignast börn um leiö og þær hafa myndað fast samband. Hafa félagslegar aöstæöur skipt einhverju máli I þessu sambandi? Ég hef nú ekki komist svo langt aö hugsa um þaö. En ef konum væru allar leiöir opnar þá gæti vel verið aö ég myndi eignast barn. Þaö hefur nefni- lega alltaf veriö einkamál kvenna aö eignast og ala upp börn, þjóöfólagiö hjálpar ekki. Á timabili I fyrra vorum viö að spá í aö faratil útlanda að læra. Þá stóö óg sjálfa mig aö því aö hugsa um aö líklegast væri nú betra aö vera ( Kaupmanna- höfn ef maður ætlaöi aö vera meö barn. Viö ætluðum aö vísu aö vera bæði viö nám, en það var einhvernveginn þó ákveðn- ara hvað hann ætlaði að læra heldur en óg. Ég var ekki alveg búin aö gera upp hug minn hvaö ég ætlaöi að fara í. En þarna sá óg ómeðvitað tíma sem ég gæti notað til aö eign- ast barn. Ég sá reyndar að mór og viö hættum svo viö aö fara. Nú geri ég ráö fyrir aö ein- hverjar af kunningjakonum þin- um hafi eignast börn, finnst þér sambandiö viö þær hafa eitt- hvaö breyst? að vilja ekki eignast börn Já, mér finnst sambandið hafa breyst, þaö er minni sam- gangur og ööruvísi. Líf þeirra stjórnast náttúrlega mikið af barninu og þaö sameiginlega verður minna. Þær vilja kannski vera meira útaf fyrir sig og eru ekki eins duglegar aö hafa samband og þaö á reyndar viö um mig Ifka. Ég held að viö hugsum alltof mikið þannig aö þegar kona er komin meö barn, bá veröur hún svo bundin og aö hún hætti ein- nvern vegin aö vera einstak- lingur og verður þess I staö móöir. GK. 13

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.