Vera - 01.08.1985, Qupperneq 16

Vera - 01.08.1985, Qupperneq 16
Skjótt skipast veður í lofti, geðrænir örð- ugleikar geta fylgt í kjölfar fæðingar. Örð- ugleikar sem eru miserfiðir og geta varað mislengi. Hægt er að tala um þrjá flokka í því sambandi. [ fyrsta lagi er það svokallað „baby blues“ sem er vægt þunglyndi og sem 50 til 70% kvenna upplifa eftir fæðingu. Það kemur fram í grátköstum og geðsveiflum. f öðru lagi er talað um „post-natal depression" sem ég hef kosið að kalla fæðingarþunglyndi. Það er talið koma fram hjá einni af hverri tíu konum sem hafa nýverið fætt og birtist í þunglyndi, þreytu og líkamlegum einkennum. [ þriðja lagi er alvarlegasti kvillinn. Þeg- ar kona er augljóslega andlega veik og ef til vill með einkenni eins og ofskynjanir og þarf brýnt á sjúkrahúsvist og læknishjálp að halda, þá er talaö um „puerperal psychosis" — fæðingarsykósur en til allrar hamingju er sá sjúkdómur sjaldgæf- Baminu líður vel... Strax að lokinni fæðingu upplifa flestar konur mikla ham- ingju. Það léttir af þeim þungu fargi og þær verða stoltar og tilfinningasamar. Meðgangan, sem reynist mörgum konum erfið, einkum er líður á er að baki. En svo er barnið fætt og hvað tekur þá við? Hamingjuríkir dagar móður og barns? Grár hversdagsleikinn með vaxandi annríki og amstri? ur — talið er að ein kona af hverjum þús- und fái hann. Ég ætla nú að gera nánari grein fyrir hverjum flokki fyrir sig. ÞRIÐJADAGSÞUNGLYNDI Á þriöja eða fjórða degi frá fæðingu er talið að allt að tveir þriðju sængurkvenna verði fyrir vægu þunglyndi. Þetta ástand hefur gengið undir ýmsum nöfnum: „baby blues“, „postnatal blues", þriðjadags- þunglyndi. Elstu lýsingar á þessu fyrir- bæri má finna í læknaritum nítjándu aídar og gekk það þá undir nafninu ,,milk fever" í enskum ritum eða „mjólkurhiti", sökum þess að fyrirbærið gerði vart við sig um líkt ieyti og þegar mjólkin jókst til muna í brjóstum sængurkvenna. Þetta ástand einkennist af grátköstum, óútreiknanlegum skapbreytingum, þreytu, önuglyndi og skorti á einbeitingu. Gráturinn er samt helsta einkennið, konan grætur þegar hún ætti að vera glöð. Hann getur varað mislengi, allt frá nokkrum mín- útum í margar klukkustundir. Þar sem það er ekki til siös, aö fullorönar manneskjur gráti frammi fyrir öörum, þá eru konurnar oft afsakandi og skömmustulegar yfir framferöi sínu. Konur reyna þá að leyna því hvernig þeim er innanbrjósts og marg- ar hafa sagt mér frá því að þaer lokuðu sig af og grétu, eða breiddu sæng yfir höfuð. Það sem grætir þær er oftast smávægi- legt og skiptir þær í raun litlu máli, kona af sömu stofu fór fyrr heim, eiginmaðurinn kom of seint í heimsóknartímann. Þið sem hafiö eignast börn getið ugglaust rifjað upp hvað þaö var sem kom ykkur úr jafn- vægi, brosið að því núna, en geröuð þaö ekki þá. ORSAKIR Ýmsar tilgátur eru á lofti um orsakir þessa þunglyndis. Taliö er líklegra að það komi fram hafi fæðing verið löng og erfið og ef um fyrirburðarfæðingu er að ræða. Þaö er algengara meðal kvenna meö sveiflukennt skap. Þá er því haldið fram að þetta séu eins og hver önnur viðbrögö við átakamiklum og æsandi atburðum, þar sem fæðingin, hápunktur meðgöngunnar, sé afstaðin, barnið fætt, spenna og eftir- væntingin liðin hjá. Erfiðið er að baki og það verður spennufall. Samskonar spennufall á sér stað þegar við höfum unnið sleitulaust í langan tíma og ætlum að slappa vel af eftir langa vinnutörn, en það gerist ekki, við verðum hálf ómöguleg og niðurdregin í einhvern tíma á eftir. Enn aðrir telja að „þriðjadagsþung- lyndið" verði vegna minnkandi oestrogens sem leiði til þess að brjóstin fyllast skyndilega af mjólk með þeim óþægindum og erfiðleikum sem því fylgja. FÆÐINGARÞUNGLYNDI „Post natal depression" eðafæðing- arþunglyndi er alvarlegra eðlis og varir lengur en „þriðjadagsþunglyndi". Þaö er ekkert nútímafyrirbæri, á fjórðu öld fyrir Krist lýsir Hippókrates því í þriöju bók sinni um faraldra. Þar segir hann frá konu einni sem varð mjög óeirin skömmu eftir fæð- ingu, missti úr svefn, fékk óráð og féll svo í dá. Skömmu síðar andaðist hún. Hippó- krates hefur tvær skýringar á sjúkdómn- um. [ þeirri fyrri telur hann aö blóð frá legi hafi stigið til höfuðsins meö fyrrgreindum afleiðingum, í þeirri seinni telur hann að ef blóð safnist fyrir í brjóstunum leiöi þaö til geðveiki. Næstu tvöþúsund árin taka menn þess- ar skýringar góöar og gildar. Það er ekki fyrr en á síðustu áratugum að menn rann- saka sjúkdóminn á kerfisbundin hátt og komast að annarri niðurstööu. 16

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.