Vera - 01.08.1985, Síða 17

Vera - 01.08.1985, Síða 17
Þunglyndi er sjúkdómur sem herjar á fólk á öllum aldri. Hann einkennist af missi. Sá þunglyndi missir oft allan áhuga á því sem honum varáöur kærf, fjölskyldu, vinnu, áhugamálum. Hann leggst í hiröu- leysi, einnig einkennir sjúkdóminn missir af líkamlegri virkni, svefni, matarlyst, og kynhvöt minnkar. Flest þessara einkenna geta birst í fæð- ingarþunglyndi, en þó er taliö aö þaö beri ýmis einkenni sem aðgreini þaö frá þung- lyndi sem kemur fram á öörum tíma í lífi fólks, þunglyndi sem viö nefnum ,,dæmi- gert“ þunglyndi. Það má fyrst nefna aö í „dæmigeröu" þunglyndi á sjúklingur erfitt um svefn. Hann nær aö sofna en vaknar upp fyrir all- ar aldir og sofnar ekki aftur. Þessu er ööru- vísi farið hjá konu með fæðingarþung- lyndi, hún virðist geta sofiö endlaust, fær aldrei nógan svefn. Þá má nefna aö morguninn er sá tlmi dagsins sem reynist þeim sem þjáist af „dæmigeröu" þunglyndi hvaö erfiöastur, en líðan þeirra skánar eftir því sem líöur á daginn. Konur í fæöingarþunglyndi eru aftur á móti oft uppá sitt besta snemma á morgnana en svo hallar undan fæti er líða tekur á daginn. MÆÐRASPIK OG VANMÁTTUR „Dæmigert" þunglyndi einkennist líka af því að sjá sjúki missir alla matarlyst. Þessu er öfugt fariö um fæöingarþung- lyndi, þá eykst matarlystin alla jafna og stundum svo rækilega að konan getur á skömmum tíma fariö upp í þá þyngd sem hún var í skömmu fyrir fæöingu. Þetta gengur undir nafninu mæöraspik — „maternal obesity" —sökum þess aöfit- an sest aöallega utan á kviöinn en öklar og handleggir haldast gjarnan grannir. Kona í fæðingarþunglyndi finnur sig vanmáttuga, sérstaklega hvaö varöar um- önnun barnsins, sem hún trúir staðfast- lega aö sér farist illa úr hendi en finnst þaö leika í höndunum á öörum mæörum. Hún er oft meö óraunhæfar áhyggjur af heilsu barnsins. Konur eru ólíkar aö upplagi, hafa ólíka reynslu aö baki, búa viö ólíkar aðstæður, þannig aö fæöingarþunglyndi kemur fram hjá konum á ólíkan hátt. Þó sum þessara einkenna séu til staöar hjá einni konu þá þurfa þau ekki að koma fram hjá annarri. Eftirfarandi er lýsing einnar móður á ástandi sínu: Mér finnst ég ekki fá nógu mikinn svefn á nóttunni, svo mér finnst ég geta sofiö allan daginn. Ég er algerlega kraftlaus og bara þaö aö vaska upp vex mér í augum. Ég hef ekki áhuga á að taka mér neitt fyrir hendur, enda hef ég ekki kraft til eins eöa neins. Ég er alveg viss um að þaö er eitthvaö að mér, ég er aum í öllum skrokknum og fæ oft svimaköst. Ég fór í rannsókn, en þaö kom ekkert út úr því. Þegar maður heyrir þunglyndi nefnt, vísar það oftast til andlegs ástands, en þunglyndum finnst oft sem þeir séu líkam- lega veikir, þeim líöur oft þannig. Þaö er ekki óalgengt að heyra konur í fæöingar- þunglyndi kvarta yfir líkamlegum krank- leikum, svima, beinverkjum, eymslum i vöðvum, og svo framvegis. Það hefur líka komið fram hjá konum að þær leita frekar til læknis vegna líkamlegrar vanliöunar en andlegrar. VEIKINDIN Fæöingarþunglyndi byrjar yfirleitt skömmu eftir heimkomuna af spítalanum. Erfitt er aö tímasetja hversu lengi ástandiö varir en oft er talað um sex mánuði. Ekki eru menn sammála um hversu al- gengt fæöingarþunglyndi er, því bæöi er að konan gerir sér ekki grein fyrir hvaö er á feröinni og þó svo hún gerði það, þá er ekki víst aö hún leiti sér hjálpar. Þaö er nú einu sinni svo aö fólk er tregt aö leita sér hjálpar, nema þaö hafi eitthvaö áþreifan- legt aö styðjast við. En hversu títt er fæð- ingarþunglyndi? Talið er að ein til sex af hverjum tíu konum þurfi aö stríöa við þetta vandamál. Því miður hafa rannsóknir ekki verið ýkja árangursríkar í aö einangra þá þætti sem eru orsakavaldar fyrir fæöingarþung- lyndi eða greina þær konur sem eru líkleg- artil að þróa með sér þessategund þung- lyndis. En áður en ég fer nánar út í mögulegar orsakir, þá langar mig að skýra frá alvar- legasta flokki þessara veikinda. FÆÐINGARPSYKÓSUR Þær eru alvarlegasti sjúkdómur sem konur geta fengiö eftir fæðingu, alvarlegri 17

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.