Vera - 01.08.1985, Síða 19

Vera - 01.08.1985, Síða 19
Skrafskjóðan Edda Jóhannsdóttir Vinur minn og samstarfsmaður segir að ég sé seinheppn- asta kona sem hann þekkir. Það er sennilega soldið til I þessu hjá honum, allavega er ég seinheppnasti bakari sem sögur fara af. Og því nefni ég þetta hér, að nú fer í hönd afmælisver- tíð á mínu heimili. Við erum sex í fjölskyldunni og eigum öll af- mæli siðari hluta árs, eða frá með og júní, til og með desember. Fyrstu sex mánuði ársins ber ég það aldrei við að baka. Þessa seinni sex neyðist ég til þess. Og það væri synd að segja aö baksturinn léki í höndunum á mér. Mér liggur oftast við taugaáfalli „daginn áður“ þegar ég er með tvær klesstar og fallnar, eina brennda að ofan og hráa að neðan, og eggin búin og smjörlíkið. Þá er ég vön að gráta smá skvettu og fá ég-er-gjörsamlega-ómöguleg-kast og svo hringi ég í mömmu. Mamma bjargar þessu venjulega og mætir með tertur í afmælið. í veislunni er mér svo hrósað og hælt fyrir frábærar tertur. Ég brosi og þakka og finnst ég hinn versti krimmi. Sjálfri finnst mér þetta ekki einleikið með baksturinn minn. Nágrannakona mín í Hafnarfirði hafði ákveðnar meiningar um þetta mál. Hún sagði að ofninn minn væri of gamall, enginn getur bakað í gömlum og ónýtum ofni, sagði hún. Fyrir jólin þetta ár keypti ég mér nýjan ofn og hóf jólabakstur af ótrúleg- um eldmóð. Mamma sá okkur fyrir smákökum þau jól sem endranær. En nágrannakona mín í Hafnarfirði hafði skýringu á þessu eins og — öðru, og sagði að nýi ofninn væri of nýr. Við næðum ekki saman enn, ég og ofninn. En nú er ég flutt og bý viö venjulegan miðaldra ofn sem virðist vera jafn vondur og hinir tveir ef ekki verri. Eins og t.d. þegar ég fékk uppskrift af döðluköku sem átti að vera svo auðveld að börn gætu bakað hana blindandi. Mín döðlukaka kom úr ofninum hörð eins og grjót. Ég braut hana niður á disk og krakkarnir höfðu orð á að þetta væri „rosa gott hrökkbrauð". Eða einn sunnudagseftirmiðdagihn. Mig langaði aö vera soldið húsleg og baka eitthvað verulega gómsætt handa fjöl- skyldunni. Ég fann uppskrift í sænsku blaði, og svo fylgdi líka mynd af herlegheitunum. Nema hvað — eftir smá stund ilmaði allt húsið af þessum myndarlegheitum. Og akkúrat þá hringdi dyrabjallan. Úti stóðu Anna móöursystir mannsins míns og maðurinn hennar. Þau höfðu aldrei heimsótt okkur fyrr, svo þaö hlakkaði soldið í mér. Ég var viss um aö nú gerði ég meiriháttar gott „intrykk". Ég gat næstum heyrt þaö fyrir mér: „Myndarleg konan hans Jóns, þarna komum við aldeilis óvænt á sunnudegi, og þar var sko allt hreint og strokið og heimabakað með kaffinu." Vá! En ná- kvæmlega svona einfalt er lífiö ekki. Þegar ég stuttu seinna kom í eldhúsið til aö huga aö kökunni féllust mór næstum hendur því kakan kom æðandi á móti mér í orösins fyllstu merkingu. Hún vall út úr ofninum í stríðum sraumum og virtist ekkert lát þar á. En þennan nýja ósigur kærði ég mig ekki um að viðurkenna, hvorki fyrir sjálfri mér né Önnu móðursystur. Svo ég skóf kökuna af gólfinu í ruslið, en það sem eftir var f forminu setti ég í desertskálar og þeytti rjóma út á. Gestunum sagði ég að þetta væri sænskur eftirréttur, þaö vinsælasta þar um slóöir um langa hríö. Gestirnir lofuðu desertinn í hástert og ég held eftir allt saman að ég hafi fullkomlega haldið haus. En í þessum mánuði eru tvö barnaafmæli — og mamma í Skaftafelli. Ekki skrýtið að ég sé slöpp á taugum. Stefnan var reyndar að kaupa bara is og súkkulaðikex, börn gera ekki svo miklar kröfur. En ég veit ekki. Kannski birtist Anna móðursystir. . .

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.