Vera - 01.08.1985, Síða 23

Vera - 01.08.1985, Síða 23
. .^ráegt að lækna nánast allt með jurtum“ Ég heimsótti Ástu einn dumbungslegan morgun ekki alis fyrir löngu og þegar ég kom inn úr dyrunum hjá henni mætti mér ilm- andi lykt af suöuþvotti. Ásta var í kjallaranum aö þvo þvott en gaf sér engu aö síður tíma til aö setjast niöur meö mér og segja mór undan og ofan af sjálfri sér. Og af því aö ég er borgarbarn sem þekkir grös og plöntur fyrst og fremst sem auanayndi en ekki sem nytjajurtir, datt mér ekki annað í hug en aö Ásta væri alin upp til sveita eins og svo margir miöaldra Reykvíkingar. „Nei, nei óg er fædd og uppalin í Reykjavík. Ég er fædd I Haukalandi vestanvert í Öskjuhlíðinni en bærinn stóð skammt þar frá sem Loftleiðahótelið er núna. Á þeim tlma voru þrír bæir þarna I Vatnsmýrinni, Haukaland, Litlaland og Breiðabólsstaöur. Pabbi og mamma settust þarna aö á árunum 1918—1919 og óg er fyrsta barn þeirra sem þarna fæöist þann 12. júní 1920 i glaða- sólskini. Og þaö er alltaf sólskin þann dag a.m.k. man ég varla eftir vondu veöri þann 12. júní. Pabbi mundi svo vel eftir veörinu þennan dag og ástæöan fyrir því var sú, að I Vatnsmýrinni var ágætis mótekja. Og þegar óg var fædd, níunda barniö af tólf, þá sagöi hann aö þaö dygöi ekki annað en aö fara aö taka upp mó úr því aö þaö væri fædd ein stelpan enn. Svo tók hann upp mó allan þennan dag í glaöasólskini. Landið sem pabbi haföi yfir aö ráöa þarna I Vatnsmýrinni var 12 dagsláttur og hann ræktaöi tölu- vert á því, en austurpartur jaröarinnar var óræktaður og þar tók hann mó. Þaö gerði ansi mikið, skal óg segja þér, því þá var mór svo víöa notaöurtil húshitunar. Hann seldi sinn mó i Kennaraskól- ann og Sláturhúsið og fékk bæöi peninga og kjöt fyrir.“ Ásta horfir út um gluggann og hlær með sjálfri sér að endur- minningunum frá þessum tíma. ,,Ég man vel eftir því þegar óg var pínulítil, varla stærri en þúfurnar, aö bögglast með mókögglana. Þeir voru svo stórir aö þeir náðu mér upp aö höku og niður að hnjám en þetta var maður að buröast meö og svo voru þeir lagöir niöur tveir og tveir saman og þurrkaðir. Fyrir utan móinn ræktaöi pabbi mikiö af jaröávöxtum — kartöflum, rófum, grænkáli o.fl. því hann haföi mikinn áhuga á þessu enda læröur búfræðingur. Mór- inn og jaröávextirnir gáfu af sér allt sem viö þurftum meö og viö lifðum alveg af þessu. En hann haföi lika dálítinn garð þar sem hann ræktaði jurtir, m.a. hvítsmára og rauðsmára, og svo jurtir sem hann gat hirt ræturnar af." Ég grlp þetta á lofti og spyrÁstu til hvers hann hafi notaö smár- ann. ,,Ég gæti vel trúaö aö hann hafi nýtt hann i lög gegn því sem á þeim tíma var kallaö innanmein og gat náttúrlega veriö ýmislegt t.d. krabbamein. En hann hólt llka mikiö upp á hvönn og notaði ýmsar tegundir af þeirri ætt og svo ræktaði hann talsvert af vall- humli. Hór áöur voru heilu breiðurnar af honum I Vatnsmýrinni þar sem nú er flugvöllurinn. Og þaö var ýmislegt fleira sem mátti fá þarna s.s. njóla, njólafræ, flfla, hrafnaklukku og margt fleira. Öskjuhllöin var náma af jurtum og lyngi en nú er algerlega búiö að eyðileggja hana, þaö er allt falið I alls konar trjám. Þarna eru svo margar flngeröar plöntur s.s. Ijónslöpp, geldingahnapp- ur, lyfjagras, sóleyjar og hrafnaklukka sem ekki sjást fyrir trjám. Sömu sögu er aö segja um öll þessi fallegu björg og klappir sem þarna eru.“ Ég bæti þvl viö aö hún hljóti aö þekkja Öskjuhlíðina mjög vel þar sem þetta hafi veriö leiksvæöi hennar sem barns. ,,Já, óg geröi það en svo fór óg þangað fyrir tveimur árum og þá þekkti óg ekkert aftur. Allar þær breytingar sem þarna hafa oröiö eru til hins verra. Ég veit ekki hvort þú trúir því en ég fór ekki upp I Öskjuhlíð- ina, þ.e. aö vestanverðu, frá því aö herinn kom I Vatnsmýrina og þar til nú fyrir tveimur árum. Ég gat ekki hugsað mór þaö, það hefur svo margt verið eyöilagt." Þetta er rauður þráður í ættinni Þó þaö sé vissulega heillandi aö láta hugann reika um sólbjarta daga I óspilltrl Öskjuhlíð og Vatnsmýri, þá færir þaö mig engu nær þeirri spurningu sem mór brennur á vörum, þ.e. hvernig þekking- in á grösunum hafi borist til hennar. Ég veit reyndar aö hún hefur hana frá fööur sínum, en óg spyr Ástu hvort þaö geti veriö aö hann hafi fengið hana úr kvenlegg. ,,Já, hann læröi af Þórunni ömmu minni en svo las hann líka mjög mikið sjálfur. Það má rekja þessa þekkingu I ættinni I tvö hundruð ár eða allt aftur til formóöur minn- ar í sjöunda eöa áttunda lið, Þórunnar Scheving sem var gift Jóni eldklerki. Á hennar heimili var þetta mikiö notaö. Það kom svo eiginlega af sjálfu sór aö þaö voru konurnar sem læröu þetta því þær voru Ijósmæöur og yfirsetukonur langt aftur í ættir. Þetta er sem sagt rauöur þráöur I ættinni og þaö væri óstjórnleg synd ef þetta dytti upp fyrir með einni manneskju. Ég held aö ég só alveg búin aö tryggja aö þetta deyi ekki út meö mér. En þá er bara aö þeir sem óg hef kennt lifi lengur en ég.“ En hvernig stóö á því að þaö var einmitt Ásta sem tók upp þráö- inn frá fööur sínum en ekki eitthvert hinna systkinanna? ,,Æ, þaö var nú eiginlega óviljandi en hins vegar þótti mér afskaplega gaman að tína jurtir og vera með pabba þegar hann var að laga seyði, enda sá ég að þetta gat gert kraftaverk. Þaö var þó alltaf hálfgerður púki í mór og undir niöri fannst mór ótrúlegt aö þaö gæti læknað fársjúkt fólk aö sjóða þetta saman." Ásta segir þetta hálfbrosandi en veröur svo alvarlegri á svip og segir: „Ég er viss um aö ef ég heföi ekki átt þennan fööur og fæöst inn I þetta umhverfi þáværi ógekki til ídag. Ég fékkliðagigt fimm ára gömul upp úr ktghósta og hnén á mór voru oft eins og stokkur. Ég gat stundum ekki sofiö fyrir kvölum enda tíökaöist þá ekki aö- gefa börnum magnyl eða annað sllkt viö verkjum. Pabbi gaf mér oft einhverjar inntökur og bar smyrsl á hnón og alltaf lagaöist þetta fyrst á eftir. Ég þurfti samt ekki annaö en aö fara út og renna mér á sleða og þá sótti allt í sama fariö aftur. Pabbi var líka vanur aö segja við mig: „Þetta lagast ekki fyrr en óg fæ aö leggja á þetta bakstur og brenna þetta." Hann brenndi oft fólk sem átti aö fara á Hælið vegna berkla eöa brjósthimnubólgu og tók það þá oft inn á heimilið á meöan. Ég var því búin aö sjá þetta gert oftar en einu sinni og vildi ekki leyfa honum þetta. Þegar óg var 16—17 ára gömul ákvað ég nú samt aö láta hann brenna mig með spansk- flugu því einhverja hugmynd haföi ég þá um aö hún brenndi ekki eins djúpt og steinolían. Ég sá aö þaö var engin meining í aö ganga svona eins og meö staurfót þaö sem eftir væri ævinnar. Ég lagaöist mikiö viö þetta en þaö var þó ekki fyrr en ég lét hann brenna mig meö steinolíu aö ég fékk fullan bata. Þaö varö mikill bruni eftir steinolíubaksturinn, hann náöi langt upp fyrir hné og niöur fyrir. Þaö komu stórar brunablöðrur og í þeim var mikill og þykkur vessi. Blöörurnar greru á tíu dögum og upp frá því hef óg ekki fundið til í hnjánum, raunar haft mjög góöa fætur og aldrei fengið æöahnúta þó ég hafi eignast 6 börn og haft bara talsvert fyrir llfinu." 23

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.