Vera - 01.08.1985, Blaðsíða 32

Vera - 01.08.1985, Blaðsíða 32
Laugaborg Hagaborg hagsiegar til aö halda uppi metnaðarfullu starfi. Bæði innan dagheimilanna sem utan er til mikiö af hæfu fólki með faglegan metnað sem ekki hefur efni á því að vinna við þessi störf. — i viötall viö NT nú nýlega sagöl Anna K. Jóns- dóttir formaöur stjórnarnefndar dagvistunar að nefndin gæti í sjálfu sér „lítlö annað gert en aö safna upplýsingum um máliö og vinna úr þeim og niöur- stöðunum yröi síðan komið á framfæri viö félags- málaráð og borgarstjórn." Er þetta þá alveg vonlaus nefnd sem getur ekkert beitt sér? Auövitað gæti hún gert það. Borgin er atvinnurekand- inn og nefndin á að stjórna þessum málum í umboði borgarstjórnar. Þess vegna á hún aö setja þrýsting á þá sem ráða buddunni. Þrýstingurinn verður aö koma alls staðar frá. Því meiri þrýstingur, því líklegra til árangurs. í þessum launamálum má náttúrlega segja aö dagvist- arstofnanirnar sóu ekkert einsdæmi. Fólk er aö vinna á ómanneskjulegum kjörum út um allt en kvennastóttirn- ar eru sérstaklega illa settar. — Borgarstjóri sagöi í viðtali við NT þann 2. ágúst s.l. aö hann sæi „enga aöra iausn á þessu máli en aö auglýsa eftir annars konar starfskrafti“ en vinnur á dagheimilunum í dag. Hvað heldur þú aö hann eigi viö? 0 P | S ðj) ð W I & 1 Ég veit þaö ekki. Ég veit ekki hvaða dýrategund hann ætlar aö finna og hvar hann ætlar að grafa hana upp. Þaö er ósköp einfaldlega staðreynd að það sækir eng- inn um þessi störf. Þaö er þensla um allt og ekki nokkur vandi aö finna störf sem er mikiu betur borguö en störfin á dagheimilunum. En kannski hugsar hann sér aö fara líkt að og með Tjarnarskóla. Afhenda einkaaðilum full- búin dagheimili og láta þá um að reka þau. Undir núver- andi stjórn er þjóðfélagið að verða svo ameríkaníserað að þetta væri eftir öðru. — En hvaö er til ráöa í þessum málum? Sú vonleysistilfinning sem fylgir því aö sitja í svona nefnd er alveg yfirgengileg. Meöan Kvennaframboðið er í svona veikri aðstöðu í borgarstjórn getur það af- skaplega lítið gert annað en haldið uppi andófi. Hins vegar fæ ég ekki betur sóð en aö eins og ástandið er nú orðiö i félags- og heilbrigöismálum þá séu konur komn- ar í lykilaöstöðu. Þetta kerfi mun aldrei ganga nema fyrir tilstuðlan kvenna og þær verða hreinlega að notfæra sér þetta ástand til að knýja fram betri kjör. Þær geta þaö ef þær standa saman. — isg. Vegna ummæla borgarstjóra lagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir fram fyrirspurn: „N.T. föstudaginn 2. ágúst var haft eftir borgar- stjóra vegna manneklu á dagvistarstofnununum aö hann sæi „enga aðra lausn á þessu máli en að aug- lýsa eftir annars konar starfsfólki en vinnur þarna núna". Spurt er: Hvað á borgarstjóri við með þessum um- mælum?" Svar borgarstjóra: „I ummælum mínum felst, að borgaryfirvöld verða að leita þeirra úrræöa, sem f þeirra valdi standa til aö leysa þann vanda, sem er aö skapast í dagvistarmálum borgarinnar vegna vöntunar á starfsfólki. Ljóst er, aö þeir hópar, sem við þessar stofnanir hafa starfað, hafa að undanförnu fengiö rýmri launa- hækkanir en aörir viðsemjendur borgarinnar, sem sambærilegir geta talist. Laun þessara starfshópa hafa því í samanburöi viö laun annarra starfsmanna borgarinnar ekki verið hagstæðari í annan tíma. Því er Ijóst, að sá vandi, sem nú er uppi, verður ekki leystur nema með nýjum úrræðum. í því sam- bandi þarf að hugleiða, hvort til að mynda sé hægt með sérstökum auknum námskeiðum fyrir ófaglært fólk að skapa starfsstétt, sem geti komið sem milliliður milii ófaglærðs fólks og fóstra. Þetta er einn af þeim þáttum, sem athuga þarf.“ Foreldrar barna á dagheimilum Reykjavíkur- borgar hafa á undanförnum vikum látiö til sín heyra vegna þess ástands sem þar er komið upp vegna manneklu. Eftirfarandi er yfirlýsing frá for- eldrum barna á Hagaborg en í öörum yfirlýsing- um foreldra kveður mjög viö sama tón. „Ástand þetta er ekki einskorðað við Haga- borg. Sama gildir um flesta leikskóla og dag- heimili borgarinnar. Það verður neyðarástand 1. september vegna skorts á fóstrum og starfs- stúlkum. Þarna er um að ræða starfsmanna- flótta vegna smánarlegra launa þessara stétta. Þetta er engin ný bóla og það hefur viðgengist í mörg ár að barnaheimili séu rekin með starfs- fólki sem staldrar mjög stutt við og manna- skipti eru stöðug. Ástandið er þó verra nú en áð- ur. Foreldrum finnst það einkennilegt verð- mætamat að störf þeirra sem fást við umhirðu barna skuli vera svona illa metin. Þessi mál verður að leysa á einhvern varan- legan hátt með því að meta störf fóstra og ófag- lærðra til hærri launa. Annars getur þetta ástand haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar og erfiðleika í för með sér fjrrir börn, foreldra og atvinnurekendur. ‘ ‘

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.