Vera - 01.05.1994, Side 11
MJOLK
ER SVÓ
GÓÐ
Auglýsendur hafa notað fegurðarímynd Ungfrú ís-
landskeppninnar í auglýsingum sínum og er þá
spjótum ekki aðeins beint að ungu kynslóðinni.
Æskudýrkun og megrunarkúrum er haldið að ís-
lenskum konum, undir yfirskyni heilbrigðis og
vellíðunar. Auglýsing Mjólkursamsölunnar á
sýrðri léttmjólk, sem birtist m.a. í Morgunblaðinu
sumarið 1991, var í þessu sambandi illa dulbúin
holdarfarsleg ábending, og gott dæmi um kenn-
ingar um uppskipt sjálf kvenna. Konan horfir á
aðra horfa á sig, hún hlutgerir sjálfa sig.
Umrædd auglýsing sýnir þriflega konu sem
horfír í spegil og sér þar grannan tvífara. „Meira af
henni, minna af mér“ segir sú þrýstnari og horfir
brosandi inn í framtíðina. Að baki liggur ekki að-
eins fyrirlitning á vaxtarlagi þorra þeirra kvenna
sem kaupir vörur frá MS, heldur endurómun á
þeirri hugmynd að líkaminn sé sköpun hvers og
eins. Hann sýnir sjálfsstjórn og persónu eigandans
betur en nokkuð annað.
Þó svo að fæstir næringarfræðingar myndu
treysta sér til að mæla með megrunaraðferðum
Ungfrú Islandskeppninnar, birti MS aðra auglýs-
'ngu þar sem keppendum var stillt upp á sundbol
við hlið léttmjólkurfernu. Yfirskriftin var „ræktaðu
líkamann - en gleymdu ekki undirstöðunni".
Eitthvað hefur skolast til hjá MS í þessu tilliti.
Undirstaðan í ræktun líkamans hlýtur að felast í
virðingu fyrir honum, í öllum hans stærðum og
gerðum, þar hefúr fegurðarsamkeppni vafasamt
fordæmisgildi.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Handavinna fyrir alla
Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegi 2
Sími17800
Varmahlíð
Ferðafólk á Norðurlandi!
í bjartri og rúmgóðri veitingastofu
bjóðum við ferðafólki hraðrétti
og heitar máltíðir.
Verslunin hefur allar dagvörur og
ferðavörur og við seljum einnig benzín,
olíur og allt fyrir bílinn.
Verið velkomin í Varmahlíð.
Við tökum vel á móti ykkur.
Starfsfólk KS Varmahlíð.