Ritmennt - 01.01.2001, Page 60

Ritmennt - 01.01.2001, Page 60
GUNNAR SVEINSSON RITMENNT Sögur þessar þýddi Sigmundur úr dönsku eða norsku eins og fyrstu þýddu smásögurn- ar. Hann náði aldrei tökum á enskri tungu, og hefur það líklega ekki verið honum neitt kappsmál, enda var fjöldi Islendinga slíkur í Winnipeg að móðurmálið hefur getað nægt honum nokkurn veginn og hann fengið að- stoð í skiptum sínum við enskumælandi fólk. Hann kynntist lítið tengdasyni sínum, fyrsta manni Fríðu, „þar við ekki skildum hver annan." (28/112). Hann varð að hafa Bergsvein bróður sinn með sér sem túlk þegar hann ræddi við annan tengdason sinn eftir næstum fjórtán ára veru vestra árið 1903. (29/194). Árið 1919 verður sú breyting á að Sig- mundur þýðir fyrstu löngu söguna sem birt- ist sem framhaldssaga í Heimskringlu, Skuggar og skin, sem var sérprentuð í Winnipeg 1920. Eftir það rak hver sagan aðra. Hann hafði nýlokið við að þýða síð- ustu söguna þegar kallið kom eins og segir í dánarfregn hans í Heimskringlu: Sigmundur var að ljúka við að þýða sögu þá, sem nú um tíma hefir verið að koma út í „Hkr.", er hann andaðist. Hefir hann þýtt flestar sögurnar, er blaðið hefir flutt nú á síðari árum. Var það hið helzta, er hann gat gjört þessi síðustu ár sér til uppihalds, að afrita eða þýða, því líkamskraftarn- ir voru löngu ofþrotnir til þess, að hann mætti vinna fyrir sér með öðru móti. Þó gat þetta síður en svo talizt atvinna. Til þess eru íslenzku blöð- in hér of fátæk, að þau geti launað nokkurt verk, sem fyrir þau er unnið, svo laun geti heitið.73 Þó að Sigmundur hafi eklci farið að fást við þýðingarstörf sín að marki fyrr en hátt á átt- ræðis aldri þótti honum takast þau vel. í af- mælisgrein um hann áttræðan segir um þýddar sögur hans að á þeim sé víðast lipur og góður frágangur.74 Síðasta sagan sem Sigmundur þýddi fyrir Heimskringlu, „Litla stúlkan hans", endar þannig að ljúfar saknaðarminningar hljóta að hafa sótt að gömlum þýðanda sem kunni mætavel að meta vífsyndi á yngri árum. Þetta eru lokaorðin: Hann vafði hana í örmum sér og þrýsti henni að sér, eins og hann ætlaði aldrei að sleppa henni, og hellti viðkvæmum, eldheitum ástarkossum yfir kinnar hennar, enni, augu og munn. „Ætlaðirðu að segja mér, að - að þú elskir mig svona heitt?" hvíslaði hann. „Já - svona elska ég þig", svaraði hún blíðlega og kyssti hann aftur - „þú vildir hvert sem var ekki segja mér það - því ástin er mest í heimi - og ég gat ekki látið hamingjuna frá mér". „Nei, við skulum ekki sleppa henni, elskan mín", sagði hann. „Við skulum halda fast í hana að eilífu - litla stúlkan mín - drottningin mín - konan mín!"75 Þegar ellin sótti að sat Sigmundur löngum stundum við fræðistörf sín. Hann skrifaði upp og dró saman í syrpur sínar þjóðsögur, sagnir og kveðskap af ýmsum toga. Sumt af þessu er hvergi til annars staðar. Má þar til nefna kveðskap eftir Jón Guðmundsson lærða í Lbs 2131 4to76 og þjóðfræðilegt efni, sjá bls. 33 hér framar. Helstu syrpur Sig- mundar eru: „Safn af ljóðmælum ýmislegs efnis", tíu bindi, Lbs 2125-34 4to; Sagna- safn, níu bindi, Lbs 2114-22 4to; „Rusla- skrína, sitt af hverju satt og logið", fimm bindi, Lbs 2141-45 4to. Loks skulu hér nefndar samfelldar dagbækur hans í rösk 63 73 Heimsktingla, 3. desember 1924. 74 Tilv. rit, 7. september 1921. Mun vera eftir ritstjór- ann, Björn Pétursson únítaraprest. 75 Tilv. rit, 18. febrúar 1925. 76 Einar G. Pétursson. Eddurit fóns Guðmundssonar lærða I. Reykjavík 1998, bls. 143-44. 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.