Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Side 8

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Side 8
120 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Faraldursfræði athugar dauðahlutfall og tíðni sjúkdóma. Talað er um „algengi” sjúkdóma eða hve mörg sjúkdómstil- felli eru til á vissum stað og tíma og „nýgengi”, hve mörg ný tilfelli koma upp á ákveðnu tímabili. Það er nauðsynlegt að fylgjast með því hvernig sjúkdómar dreifast eftir búsetu, aldri, kyni, þjóðfélagsstöðu og fl. innan hvers þjóðfélags og gera sér grein fyrir að dreifingin er ekki tilviljunum háð. Klassiskar rannsóknir á dauðahlutfalli fjalla um ung- bamadauða. Dauðahlutfall er mjög hátt fyrstu ár ævinnar en lækkar síðan fram til fertugs að það hækkar aftur. ,Árið 1961 var fjöldi ungbarna í Svíþjóð sem dóu fyrir eins árs aldur 15,8% af 1000 fæddum. Ungbarnadauði er breytilegur eftir aldri, kyni, stöðu og búsetu, hærri hjá strákum en stelpum. Árið 1967 í Banda- ríkjunum þá dreifðist dauði 79.028 barna sem dóu á fyrsta árinu þannig: 43% dóu fyrsta sólarhringinn, 24% á 1.— 7. degi, 7% á næstu 3 vikum, 20% á 2.—6. mánuði og aðeins 6% á seinni 6 mán. 1. árs. Rannsóknir í Bandaríkjunum og Skotlandi hafa sýnt að lágar tekjur foreldra og lítil menntun er tengt háum ungbamadauða. Mjög afgerandi þættir í lífslíkum bams er aldur móður- innar og þyngd þess við fæðingu. Ónóg fæða móðurinnar er tengd lágri fæðingarvikt. I fjölda vestrænna landa hefur það sýnt sig að aldur við fæðingu fyrsta barns er tengdur stöðu móðurinnar, því hærri stöðu og meiri menntun sem hún hefur, því eldri er hún sem frumbyrja, en æskilegasti aldur bamshafandi konu er (18) 20—34 ára. Staða og menntun hefur einnig áhrif á fæði móðurinnar. III „Social Ethiologi” „Ethiologi” fjallar um orsðk sjúkdóma og „social ethio- logi” um félagslega orsök sjúkdóma. Oft eru félagslegir þættir jafn mikilvægir í sjúkdómsorsökinni og líkamlegir þættir.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.