Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Side 23
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
135
líta á eða mæla hvert eitt efni mjólkurinnar fyrir sig og ætla
að draga af því einhverjar ályktanir. Mjólkin er mjög flókið
biokemiskt kerfi, þar sem hin ýmsu efni verka hvert með
öðru (interaction). T.d. er þrisvar til fjórum sinnum meira
kalk í kúamjólk en í brjóstamjólk, en þrátt fyrir það sér
maður aldrei hypocalcemiu hjá brjóstamjólkurbörnum
vegna þess, að önnur efni til staðar í mjólkinni auðvelda
frásog (absorption) kalksins. Sem annað dæmi má nefna
járnið. Kúamjólk og brjóstamjólk innihalda mjög svipað
járnmagn, en járnskortsblóðleysi, sem er svo algengt hjá
pelabörnum þekkist varla hjá brjóstmylkingum. Aðeins
10—20% af járni frá kúamjólk nýtist börnunum, en aftur á
móti absorberast allt að 50% brjóstamjólkurjárnsins. Fyrir
utan þetta eru verulegar einstaklingsbundnar sveiflur á
magni og innihaidi brjóstamjólkur, auk þess sem hún
breytist frá einni viku til annarrar og jafnvel frá degi til
dags.
Sérstaklega eru breytingarnar áberandi m.t.t. fituinni-
halds, sem er meira á morgnana en á kvöldin og eftir því
sem tæmist úr brjóstinu í hvert mál, þá eykst fituinnihaldið.
Við þetta breytist bragðið og að áliti sumra fær barnið
þannig merki um að nú sé nóg komið og mál að hætta. Barn
sem drekkur úr pela fær nákvæmlega útreiknað magn í hvert
sinn, hvort sem því líkar betur eða verr. Verður þar enginn
náttúrulegur ventill að störfum og er ofeldi og offita mun
algengari meðal pelabarna. Ef barni er gefið að vild að
drekka úr pela brjóstamjólk frá brjóstamjólkurbanka, getur
mánaðargamalt barn þannig torgað allt að 800 ml. og 6
mánaða gamalt allt að 1000 ml. á dag, en athuganir hafa
sýnt, að 600—700 ml. af brjóstamjólk á dag nægi börnum á
þessum aldri til að dafna og þroskast eðlilega. Heilbrigð
móðir, sem fær eðlilega næringu og hefur næga mjólk, á ekki
að þurfa að bæta neinu við næringu barnsins fyrstu 4 og
jafnvel ekki fyrstu 6 mánuðina, nema D-vítamíni og ef til
vill C-vítamíni og fluor. Vandamálin koma ekki í ljós fyrr en
gefa þarf barninu eitthvað annað en brjóstamjólk, hvort sem
það er hin hefðbundna kúamjólkurblanda eða nýtískulegri
aðferðin með þurrmjólk.