Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Blaðsíða 39
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
151
Albumen binding bilirubins
í serum er bilirubin bundið albumen. Bilirubin bundið
albumeni kemst ekki inn í taugafrumur, hins vegar ef frítt
bilirubin er til staðar, getur það komist inn í taugafrumur og
valdið skemmdum. I þessu sambandi er- rétt að vekja athygli
á því að það er ekki absolute gildi bilirubins í serum, sem
segir okkur til um hvort hætta sé á miðtaugakerfisskemmd-
um eða ekki, heldur er það bindigeta albumens og þá um
leið hvort frítt bilirubin er til staðar.
Albumen hefur tvenns konar bindistöðvar fyrir bilirubin.
Primer bindistöðvar ein á hverju mólekúli, þar sem bili-
rubin er fast bundið. Og sekunder bindistöðvar, þar sem
bilirubin er laust bundið. Þær eru margar á hverju mólekúli.
Lyf svo sem sulfa og salicylöt hafa áhrif á bilirubinbind-
ingu svo og fríar fitursýrur, hemamatin o.fl. Eftir þvf sem
meira af bilirubini er bundið við sekunder bindistöðvar því
meiri hætta á fríu bilirubini í serum.
Rannsóknir
Fari bilirubin magn í serum fram úr 12 mg% er af flestum
talið nauðsynlegt að framkvæma vissar rannsóknir til að
komast að raun um hvort um sé að ræða einungis nýbura-
gulu eða hvort um er að ræða eitthvað annað vandamál sem
gæti orsakað gulu. Eftirfarandi listi gefur hugmynd um
helstu nauðsynlegar rannsóknir, en er alls ekki tæmandi.
1. Blóðstatus. Hgb. Hct., — blóðmynd, hvít blóðkomataln-
ing. Differential talning hvítra blóðkoma.
2. Bilirubin. Direct — indirect.
3. Blóðflokkun. Móðir — barn.
4. Coombs próf. Direct — indirect.
5. Ser protein.
Bindigetu albumens er hægt að mæla á sérhæfðum
rannsóknarstofum. Vonandi verður þess ekki langt að bíða
að slíkar mælingar verði framkvæmdar á almennum
rannsóknarstofum.