Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Page 43
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
155
Klinisk greining
meðfœddra hjartagalla
Ólafur Stephensen
Hjartagallar eru algengastir allra meiriháttar meðfæddra
galla. Tíðni þeirra hefur verið könnuð víða um heim, og
niðurstöður hafa hvarvetna verið mjög svipaðar. Það hefur
komið í Ijós, að 1% lifandi fasddra barna hefur einhvers
konar hjartagalla. Tíðni þessara galla hefur ekki verið
athuguð hér á landi, en það er ekki ástæða til að ætla að hún
sé að neinu verulegu leyti frábrugðin því, sem lýst er í
nágrannalöndum okkar. Ef tíðni er sú sama hér á landi og
annars staðar, má búast við því að árlega fæðist hér á landi
30—40 böm með slíka galla. Þegar tíðni meðfasddra hjarta-
galla er könnuð, eru allir hjartagallar meðtaldir, allt frá
alvarlegum meiriháttar göllum, sem valda miklum sjúk-
dómseinkennum strax eftir fæðingu til lítilfjörlegra hjarta-
galla, sem kannski uppgötvast fyrir hreina tilviljun síðar á
lífsleiðinni og hafa hvorki áhrif á heilsufar né lífslengd
einstaklingsins. Hér eru þannig flokkaðir saman afar mis-
munandi einstaklingar með mjög mismikla skerðingu á
hjartastarfsemi.
Sennilega er ekki fjarri lagi að ætla að um það bil V*
þessara bama hafi hjartagalla, sem er það alvarlegur, að
ekki er unnt að bæta hann með aðgerð og bamið deyr að
lokum af hans völdum. Um það bil helmingur mun
einhvem tíma á ævinni gangast undir hjartaaðgerð og um
það bil lA verður alla tíð einkennalaus og mun aldrei
þarfnast neinnar meðferðar. Um helmingur þeirra bama
sem deyja af völdum meðfasddra hjartagalla gera það á
fyrstu viku ævinnar og langflest deyja á fyrstu 4 vikunum.