Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Qupperneq 45

Ljósmæðrablaðið - 31.12.1979, Qupperneq 45
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 157 EINKENNI Það er einkum þrennt, sem gefur til kynna að ungbarn hafi meðfceddan hjartagalla: 1. Blámi (cyanosis). 2. Einkenni um hjartabilun. 3. Óeðlileg hjartahlustun. Blámi Blámi er alvarlegt einkenni hjá ungbömum og krefst umsvifalausrar athugunar. Oft getur verið erfitt að meta litarhátt ungbama. Ýmsir þættir umhverfisins geta haft áhrif á þetta mat, t.d. litir og lýsing. Best er að gera sér grein fyrir litarhætti bamsins í dágsljósi og/eða hvítmáluðu her- bergi. Orsakir bláma hjá nýfæddum börnum geta verið margvís- legar. Blámi getur verið þáttur eðlilegrar aðlögunar barnsins fyrst eftir fæðinguna og er þá einkum bundinn við útlimi. Blámi á vörum, tungu og munnslímhúð bendir til skertrar súrefnismettunar slagæðablóðs. Algengustu orsakir em: sjúk- dómar í lungum, hjarta- eða miðtaugakerfi. Mikilvasgt er að reyna að gera sér grein fyrir hvað um er að ræða hverju sinni. Ef barnið hefur lungnasjúkdóm er öndun gjarnan stynjandi og hröð og útöndun lengd. Stafi bláminn af truflun á starfsemi miðtaugakerfis, liggja gjaman fyrir upplýsingar um óregluleg fósturhljóð eða erfiða fæðingu. Öndun slíkra barna er oft óregluleg eða periodisk. Börn með cyanotiska hjartagalla anda oft eðlilega í fyrstu, en þeim getur versnað mjög skyndilega með aukinni öndun- artíðni og öndunarörðugleikum. Þegar reynt er að gera sér grein fyrir orsök bláma hjá ungbarni getur súrefnisgjöf gefið mikilvægar upplýsingar. Sú meginregla gildir, að böm með cyanotiska hjartagalla fá ekki betri litarhátt við súrefnisgjöf. Hins vegar er unnt að bæta litarhátt bama með sjúkdóma í lungum og miðtaugakerfi með súrefnisgjöf. Ástand barna með cyanotiska hjartagalla getur verið lífshættulegt og tekið snöggum breytingum til hins verra. Mörgum þessara barna er unnt að bjarga, ef hjartarannsókn og viðeigandi aðgerðum er beitt án tafar.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.