Freyr - 01.03.1927, Qupperneq 38
56
F R E Y R
Eldra fé feitt, lif. vigt, kg. — 0.86—0.87
Rýrara fé, lifandi vigt, kg. — 0.69—0.80
Fitaðir nautgr., lif. vigt, kg. — 1.70—1.93
Fín ull, 1 kg...........— 8.00—9.00
Gróf ull, 1 kg..........— 4.60—4.85
Taða, 1 kg..............— 0.07—0.08
Hænuegg, st.........•••• — 0.16
Smér 1 kg...............— 3.52
Árskaup vinnumanna er 4—5 hundruð
krónur.
íslenskir hestar á húsmannabýlunum í
Danmörku. í hinu danska búnaðarblaði
„Vort Landbrug“ er grein um það, hvert
dráttarafl sé hentast fyrir húsmannabýlin
dönsku. Höfundurinn er húsmaður Chr.
Sörensen. Eftir að hafa talað um, að á hús-
mannabýlunum séu notaðir bæði jóskír,
rússneskir og íslenskir hestar skýrir höf-
undurinn frá sinni reynslu í þessum efnum,
og segir að islenskir hestar séu fyrir allra
hluta sakir hinir hentugustu á húsmanna-
býlunum. Þeir séu nægjusamir með fóður,
þolnir og sterkir. Tveir íslenskir hestar
þurfi ekki eins mikið fóður og einn jósk-
ur, en geti þó afkastað töluvert meiru, eink-
um við plægingar. Þessir hestar séu líka
þægir, þá búið sé að venja þá við vinnu.
Sörensen hvetur landa sína til að kaupa
islenska hesta, svo framarlega sem þeir fá-
ist við sanngjörnu verði. Annars geti ver-
ið spursmál um að ala íslenska hesta upp
í Danmörku.
Þannig segist hinu danska blaði frá, en
hvað gerum vér til að vinna oss traustan
markað fyrir hesta vora í Danmörku, eða
annarsstaðar?
Kaupið
„HANDBÓK FYRIR BÆNDUR“.
jarðyrkju-
verkfæri:
Brotplógar, garðplógar, arfa-
plógar.
Diskaherfi, Hankmo-spaða-
herfi, fjaðraherfi, rúlluherfi,
ávinsluherfi.
Steingálgar. - Hestarekur.
Hemlar og dráttartaugar.
Vagnar og vagnhjól.
Forardælur, kranar og
dreifarar.
Handverkfæri allskonar.
Herkules- og Milwaukee-
sláttuvélar, rakstrarvélar
og snúningsvélar.
Brýnsluvélar. - Stálljáir (ein-
járnungar). Heymælaro.fl.
Verðið til muna lægra en áður
SAMBAND ÍSLENSKRA
SAMVINNUFÉLAGA.
Prentsmiðjan Gutenberg.