Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Side 8
arsdóttur. Hún vekur athygli á því að
gaman væri að setja upp Ljósmæðra-
safn í Nesstofu á Seltjarnarnesi, en þar
er verið að setja upp Læknasafn
Eva S. Einarsdóttir og María Björns-
dóttir hafa tekið að sér að vinna að
þessu. Ef þið ljósmæður vitið um ein-
hverja gamla muni og annað sem teng-
ist ljósmóðurstarfinu vinsamlega hafið
þá samband við þær.
í janúar sl. kom út Handbók ljós-
mæðra. Ritstjóri bókarinnar er Helga
Birgisdóttir. Þetta er skemmtilegt fram-
tak og fyrirhugað er að bókin verði gef-
in út árlega.
LMFI fékk til umsagnar þingsályktun-
artillögu um íslenska heilbrigðisáætlun.
Gerðar voru athugasemdir við tillög-
una, m.a. við grein nr. 20 sem varðar
mönnun á heilsugæslustöð. I nýju til-
lögunni er talað um að lágmarksmönn-
un sé læknir og hjúkrunarfræðingur,
en við viljum að ljósmóðir sé líka tekin
inn í myndina eins og var í eldri lögum.
Síðastliðið sumar kærði Sigurbjörg
Ólafsdóttir ljósmóðir til Landlæknis
heilsugæslulækni fyrir ranga meðferð á
brjóstameini. í framhaldi af því barst
LMFÍ bréf frá landlækni þar sem hann
leggur til að ljósmæður sendi frá sér fag-
lega grein um meðferð brjóstameina.
Þessu hefur verið komið til ritstjórnar
Ljósmæðrablaðsins.
Lífeyrissjóður ljósmæðra hefur verið
til umfjöllunar við Fjármálaráðuneytið.
Stjórn LMFÍ leggur til að sjóðurinn verði
lagður niður og lífeyrisþegar gangi inn í
Lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna. Stjórn
sjóðsins hefur ekki komið saman síðan
1978. Því þarf að kjósa nýja stjórn og
ber LMFÍ að tilnefna 2 fulltrúa.
Ljósmæðranemar vinna nú að rann-
sóknum. Ákveðið er að kanna mat ljós-
mæðra á hinum ýmsu verkjalyfjum
sem notuð eru í fæðingu. Nemarnir
fóru fram á styrk frá LMFI. Veitt var
15.000. Ennfremur fá þær þann að-
gang að skrifstofu félagsins sem þær
þurfa. Rannsóknin þarf að ná til 100
ljósmæðra. Það eru tilmæli félagsins
að ljósmæður sem fá sendar óskir um
þátttöku í haust sinni því vel.
Ólafía Guðmundsdóttir var fulltrúi
LMFI á Norðurlandaþingi ljósmæðra,
sem haldið var í Finnlandi sl. vor.
Stjórnarfundur Norðurlandasambands
Ljósmæðra, NJF, verður haldinn í
Reykjavík um hvítasunnuna. LMFI
býður þessum erlendu gestum til kvöld-
verðar í Viðey laugardagskvöldið 2.
júní. Þær ljósmæður sem hafa áhuga á
koma með eru velkomnar.
Alþjóðasamband ljósmæðra, ICM,
heldur heimsþing í Japan í haust. Búið
er að auglýsa það vel í blaðinu okkar
en áhugi virðist lítill.
LMFÍ tók þátt í ,,heilsudögum“, en
þeir voru haldnir í Kringlunni í mars
með svipuðu sniði og undanfarin 2 ár.
Samtök um kvennaathvarf leituðu
eftir stuðningi félagsins. Ákveðið var
að LMFI gerðist styrktaraðili og greiðir
fimmfalt árgjald, sem nú er kr. 6.000.
Símanúmer á skrifstofu félagsins
verður breytt með útkomu nýrrar síma-
skrár. Verður 617399.
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIP