Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 30

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 30
og systkini höfðu alls staðar frjálsan heimsóknartíma. Nokkuð er orðið um það að ljós- mæður eru ekki fastráðnar á tiltekna deild heldur flytjist á milli deilda með reglubundnum hætti. Þetta hefur lengi verið baráttumál sænskra ljósmæðra sem nú er að komast í höfn. Sjúkrahúsið í Ystad I Svíþjóð heimsóttum við sjúkrahús í Ystad og Lundi. Sjúkrahúsið í Ystad hefur gefið út bók um fæðingardeildina og þá hugmyndafræði sem starfið þar byggist á. Mikið er lagt upp úr að fæð- ingar gangi sem náttúrulegast fyrir sig, en fæðingar eru um 1100 á ári. Konur eru látnar liggja í baði á 1. stigi fæðing- ar og notkun deyfandi lyfja, t.d. glað- lofts, er mjög í hóf stillt. Ef eitthvað ber út af við fæðinguna er konan eða börn- 28 _______________________________ in flutt yfir til Lundar en þangað er um 45 mínútna akstur. Engin vökudeild er í Ystad. Fæðingarstofur og sængurlegustofur eru mjög heimilislegar. Sömu ljósmæð- ur hugsa um konuna í fæðingunni og í sængurlegunni. Auk þess koma við sögu margir sérmenntaðir sjúkraliðar. Heimsóknartími er frjáls og konum er heimilt að taka börnin með sér inn á setustofurnar. Sængurkonurnar geta hellt upp á könnuna fyrir sig og gesti sína í sérstökum eldhúskrók. Feður geta fengið að sofa á sængurkvennagangi á meðan sængulega varir. Engin barnastofa er á stofnuninni og börnin eru böðuð í bala. Venjuleg sængurlega er fimm dagar. Sængurkonum er þó í sjálfsvald sett að fara fyrr heim, enda komi þær þá aftur með börnin í PKU-prufutöku. ________________ ljósmæðrablaðið h

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.