Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 22

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 22
brauð, sykur, smjör og stundum fiskilif- ur, var tugginn og settur í léreftsrýju, síðan var bundið fyrir ofan tugguna og þessu síðan stungið upp í hvítvoðung- inn, og hann síðan saug og tottaði. — Afar snemma, jafnvel á fyrstu dægr- unum var farið að tyggja í börnin, og það hvaða mat, sem til féll, kjöt, fisk, brauð o.s.frv. Slíkt mataræði var börn- unum ekki heppilegt eins og gefur að skilja, og mun fjöldi barna hafa dáið af þessum ástæðum. Hvort tveggja, að tyggja í börn og dúsan, er nú fyrir löngu úr sögunni, en mun þó hafa þekkzt fram á þessa öld. Horrebow (um miðja 18. öld) segir, að börn séu höfð í reifum 9—10 vikna tíma, en slíkt mun a.m.k. ekki hafa ver- ið algengt, og víðast munu þau ekki hafa verið höfð í reifum lengur en viku til hálfan mánuð og var þá farið að klæða þau. Víðast voru börnin þvegin nokkrum sinnum fyrstu vikurnar, en nokkur misbrestur mun samt víða hafa verið á því, að hreinlætis væri gætt svo sem skyldi. Börn þjáðust því víða af skinnleysi og húðveiki. Við því var höfð barnamold eða Pétursmold til að dreifa á húðleysurnar og þerra vætuna úr þeim. Moldin var hreinsuð og búnar til úr henni kökur og þær síðan muld- ar, þegar nota þurfti. Sumir segja, að barnamold af Skaga væri bezt. Þá var einnig notuð í þessu skyni svokölluð mánamjólk, en það er gráhvít leirlög úr mó, og var nefnd barnaaska, þegar hún var notuð í þessum tilgangi. Bezt þótti að bera sauðarjóma á hörundið undir öskuna, að sögn Eggerts Ólafs- sonar. Þá mun það hafa tíðkazt, eink- um í Þingeyjarsýslu, að maka líkama 20 _______________________________________ ungbarna daglega í nýju smjöri. Hefir það átt að styrkja þau og gera hlýrra. I tilskipun um húsagann á Islandi frá 1746 er svo fyrir mælt, að ekkert barn megi skíra nema í kirkju, nema líf barns- ins væri í yfirvofandi hættu, og lá sekt við, ef skírnin dróst lengur en 7 daga. Þessu boði mun lengi vel hafa verið hlýtt af samvizkusemi, en ekki munu slíkar kirkjuferðir að vetrarlagi hafa ver- ið hvítvoðungunum heilsusamlegar, og mun mörgum hafa orðið það fyrsta og síðasta ferðin í lifandi lífi. Með tím- anum fór það samt að tíðkast, að börn- in væru skírð heima, enda var það leyfilegt, ef börnin voru veik, enda hefði presturinn skírnarfatið úr kirkjunni með sér. Smám saman var þá einnig farið að skíra börnin heima, þótt heilbrigð væru. — Oft voru börnin skírð á fyrsta eða öðrum sólarhring ævi sinnar, og var það þá gert við rúmstokk móður- innar, eftir að sú venja komst á að skíra heima. Var þá venjulega um leið hald- in skírnarveizla, ef nokkur tök voru á slíku af efnaástæðu. Boðið var vinum og vandamönnum, etið og drukkið og gert sér glatt í geði. Borin var fram steik eða heitt hangikjöt og brennivín drukk- ið með. Um nafngift er ekki margt að segja, almanaksnöfn hafa aldrei komizt í tízku hér á landi. Börn voru tíðast nefnd eftir öfum sínum og ömmum eða öðrum ættingjum, og þannig við- haldið gömlum ættarnöfnum, eins og venja er enn í dag. Ef foreldrar misstu barn og fæddist síðan annað sama ljósmæðrablaðið

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.