Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 3

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 3
Frá skrifstofunni Reikningar félagsins voru lagðir fram á aðalfundinum og samþykktir þar. Fé- lagsmenn sem ekki komust á fundinn geta fengið eintak sent, og eru þær beðnar að hafa samband við skrifstofuna. Reikningarnir bera með sér verri fjár- hagsstöðu félagsins en verið hefur und- anfarin ár. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að allmargir fagfélagar hafa ekki staðið skil á félagsgjöldum sínum. Skv. félags- lögum teljumst við ekki félagar í LMFÍ ef við höfum ekki greitt félagsgjald í 2 ár. Líklega eru langflestar áhugasamar um félagið okkar - svo blessaðar gerið þið nú skil sem fyrst. Góðu fréttirnar eru reyndar þær að kiarafélögum fer nú aftur fjölgandi og hafa allmargar bæst við á síðustu vikum. Og vondu fréttirnar: Það var brotist >nn í BSRB húsið 12. júní. Af skrifstofu LMFÍ var stolið tölvu og prentara, sem ekki hefur spurst til þegar þetta er skrif- að. Fleiri félög urðu fyrir svipuðum skaða. I BSRB húsinu standa nú miklar breytingar og endurbætur. Ljóst er að skrifstofa LMFÍ verður flutt í sumar eða haust, en hvert við flytjum er ekki vitað enn annað en það að það verður innan húss. Frá formanni: Kæru Ljósmæður Eg vil þakka ykkur fyrir hina miklu þátttöku sem varð á ráðstefnu Ljós- mæðrafélagsins um „Öryggi við barns- burð“. Við vorum sérstaklega heppnar með gestafyrirlesara, hana Caroline Flint, en segja má að hún hafi komið, séð og sigrað hug og hjörtu íslenskra ljós- mæðra. Við fengum einnig góða islenska fyrirlesara, sem stóðu sig með prýði. Það er mikið átak fyrir svo lítið félag sem Ljósmæðrafélagið að halda svona mikla ráðstefnu, en þátttaka og undir- tektir ljósmæðra er mikil hvatning til þess að halda áfram á sömu braut. Caroline Flint benti okkur á að mikil- vægt væri að rödd okkar ljósmæðra heyr- ist og að tekið verði tillit til okkar sjónar- miða, þegar ákvarðanir eru teknar um fæðingarþjónustu á íslandi. Við þurfum því að vera óhræddar við að koma okkar skoðunum á framfæri, bæði til stjórn- valda og almennings. Ingibjörg S. Einisdóttir. 1 LlÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.