Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Síða 6

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Síða 6
Nú orðið fæðist varla svo gallað barn að maður ráðleggi foreldri að sjá það ekki. 7. Skrifa skal allar upplýsingar fyrir, í og eftir fæðingu. Nauðsynlegt er að sjá um að konan fái lyf vegna brjóstanna ásamt ráðleggingum. 8. Gott er að eiginmaður geti fengið að vera hjá konu sinni á sjúkrahúsinu meðan sængurlega varir, og svo er á Kvennadeild Landspítalans. 9. Oftast dveljast þessir foreldrar á kvensjúkdómagangi en þó stundum á meðgöngudeild, ef konan hefur legið þar áður og vill þá losna við að kynnast nýju fólki. Eg tel heppilegra að flytja konuna á aðra deild en með- göngudeild. Sjaldgæft er að þær liggi á sængur- kvennadeild, þó hefur það komið fyrir. 10. Nauðsynlegt er að upplýsa foreldra fljótt eftir fæðinguna um ýmis konar atriði er varða barnið og ekki má gleyma að fá leyfi foreldra fyrir krufningu. Af hverju dó barnið? Var það van- skapað eða með litningagalla eða fannst ekkert athugavert? Þetta er spurningar sem brenna á öllum for- eldrum. Varast skal að segja við foreldra sem missa vanheilt barn. „Það var best fyrir þetta barn að deyja“, - það má vera - en maður skyldi varast að losa sjálfan sig við erfið svör með slíkri skýringu, því hún nægir foreldrum ekki og þau eru jafn hrygg og hinir, þar sem ekkert finnst óeðlilegt. Fólk sættir sig oft betur við missi vanheils barns í fyrstu, en þegar að næstu meðgöngu kemur verður hún marg- falt erfiðari vegna óttans um að nú fari eins í þetta skipti. En þarna koma allskonar rannsóknir okkur til hjálpar, svo sem sónarskoðun og litningarannsókn og svo góð viðtöl og gott eftirlit á meðgöngutímanum. Við bjóðum aðstoð vegna væntan- legrar útfarar, tölum við útfararstjóra fyrir fólkið og segjum því hvaða möguleikar eru fyrir hendi. En þeir eru að hafa sérstaka jarðarför eða að koma baminu í kistu með öðmm, stundum er þá um ættingja eða venslafólk að ræða. Ljósmóðir - oft- ast sú (eða þær) sem mest hefur sinnt foreldrum í fæðingu og eftir - klæðir barnið að ósk þeirra og leggur það í kistu. Tekur þá gjarnan myndir í leið- inni. Sjúkrahúsprestar sinna þessum foreldrum mjög vel og gott samstarf er á milli þeirra og ljósmæðranna. Félagsráðgjafar tala við foreldra og veita ráðgjöf í sambandi við rétt mæðra til barnsburðarleyfis o.fl. ef óskað er, en réttur til barnsburð- arleyfis fyrir móður sem fæðir and- vana bam er þrír mánuðir. í sam- vinnu starfsfólks kvennadeildar og vökudeildar hafa verið útbúnir 2 bæklingar, sem foreldrum er missa börn sín, em afhentir til eignar. 11. Eftir fæðinguna er erfitt tímabil fram- undan sem skipta má niður í 4 eðli- leg sorgarstig: 1) Lost-stig. Erfitt er að skilgreina og taka því sem komið hefur fyrir, fólk trúir því ekki, skilur það ekki, nær ekki því sem verið er að segja, þannig að allt blandast saman í einn graut. Lost-ástand getur varað frá nokkrum klukkustundum upp í marga daga. 2) Svörunarstig. Konan viðurkenn- 4 UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.