Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 18

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 18
Samningur milli Ljósmæbrafélags Islands og Tryggingastofnunar ríkisins (TR) um greiðslu til Ijósmaebra vegna fæbinga í heimahúsum. 1. gr. TR greiðir Ijósmæðrum fyrir að annast sængurkonur við fæðingar, sem fram fara utan fæðingarstofnana, þar sem greitt er fyrir vistunina. 2. gr. Greiðslur samkvæmt samningi þess- um fara eftir gjaldskrá, sem grundvallast á þvi að ljósmóðir starfi sem verktaki og beri sjálf allan kostnað við nauðsynleg tæki og annað, sem starfi hennar fylgir, þ.m.t. bifreið. Gjaldskráin skal breytast á þriggja mánaða fresti, í fyrsta sinn 1. janúar 1992. Skulu 75% af fjárhæðum gjald- liðanna fylgja breytingum á launavísitölu, en 25% framfærsluvísitölu. 3. gr. Miðað við grunn vísitalna í október 1991 er gjaldskráin þannig: I. Aðstoð við fæðingu, þ.e. eftirlit fyrir fæðingu, móttaka barns og aðstoð í framhaldi af þvi (18,6 klst.) kr. 23.689,00 II. Hver vitjun eftir fæðingu (1,8 klst.) kr. 2.292,00 Miðað er við tvær vitjanir fyrstu fjóra dagana og eina vitjun næstu þrjá, eða hámark 11 vitjanir kr. 25.212,00 III. Bráðaútkall til sængurkonu eftir fæðingu (1,8 klst) kr. 2.621,00 Þurfi ljósmóðir að leita aðstoðar á sjúkrahúsi vegna fæðandi konu á Ijós- móðir rétt á greiðslu fyrir þann tíma sem hún hefur sinnt konunni. 4. gr. Ljósmæður gefa út sérstaka skýrslu um hverja fæðingu. Skal móðirin fá afrit af henni til þess að framvísa hjá við- komandi umboði TR með umsókn um dagpeninga vegna fæðingar í heimahúsi, sbr. f-lið 43. gr. almannatryggingalaga. 5. gr. Reikningar ljósmóður skulu staðfestir af sængurkonu. Þeir skulu sendir TR til greiðslu ásamt skýrslu ljósmóður um heimafæðingu samkvæmt 4. gr. 6. gr. Samningur þessi gildir frá 1. nóvem- ber 1991 til 31. október 1992. Reykjavík, 7. nóvember 1991 16 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.