Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 21
Reglur
um skilgreiningar og skráningu fæðinga
á Islandi
Skilgreiningar:
1. Börn teljast þeir burðir, sem
vega 500 gr. eða meira við fæðinguna,
án tillits til þess hvort þeir eru lifandi fæd-
dir eða andvana. Ef fæðingarþyngd er
ekki fyrirliggjandi skal miðað við fulla
22ja vikna meðgöngu og lengri (>154
dagar) frá fyrsta degi síðustu tíða eða skv.
ómskoðun. Ef fæðingarþyngd eða með-
göngulengd eru ekki þekkt, skal miðað
við líkamslengd (haus-hæl) sem er 25 sm.
eða lengri.
2. Burðir sem vega minna en 500
gr. við fæðingu og meðgangan skemmri
en fullar 22 vikur (154 dagar), skv. tíðar-
sögu eða ómskoðun, teljast fósturlát -
hvort sem lífsmörk finnast (skv. lið 3) eða
ekki. Ef fæðingarþyngd er talin óeðlileg
miðað við meðgöngulengd, t.d. vegna
vaxtarstöðvunar fósturs eða hydrops
foetalis, skal lengd meðgöngu ákvarða
hvort burðurinn telst fósturlát eða barn.
Telst burðurinn þá barn ef meðgangan er
lengri en fullar 22 vikur (154 dagar) - að
öðrum kösti fósturlát.
3. Samkvæmt skilgreiningum Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) frá 1950 (endurskoðaðar og
samþykktar óbreyttar 1966 og 1971) -
teljast lífsmörk með nýbura sem hér
segir:
~ Hjartsláttur
~ Öndun
- Æðasláttur á naflastreng
- Hreyfingar í sjálfráðum vöðvum
(þverrákuðum)
Skráning:
1. Skrá skal á fæðingartilkynn-
ingar alla burði, þar sem meðgöngulengd
er talin vera 20 vikur (140 dagar) eða
lengri án tillits til fæðingarþyngdar.
2. Ef burðurinn er undir 500 gr. -
meðganga skemmri en fullar 22 vikur
(154 dagar) og líkamslengd innan við 25
sm. - samkvæmt ofanskráðum skilgrein-
ingum, skal rita fósturlát (abortus) á fæð-
ingartilkynninguna (lið 8).
3. Ef meðgöngu lýkur fyrir fullar
22 vikur (154 daga) með fóstureyðingu
(abortus provocatus, með tilvísun til laga
nr. 25/1975), skal ekki rituð fæðingar-
tilkynning. Hins vegar skal það gert ef
fóstureyðing er framkvæmd eftir þann
tíma.
9. nóuember 1992
Gunnlaugur Snædal
Kvennadeild Landspítalans
G. Biering
Vökudeild Barnaspítala Hringsins
Ólafur Ólafsson
Landlæknisembættið
19
ljósmæðrablaðið