Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 34

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 34
verið í höndum ljósmæðra frá örófi alda. Þessar ljósmæður vom: Loysa Bourgeois (1563-1636) hún var frönsk og starfaði sem ljósmóðir í París, var þar mjög virt. Gaf hún út sína fyrstu ljósmóðurfræði 1609 en læknar rem þá að því öllum ámm að ganga inn á svið ljósmæðra. Hún greinir þar m.a. frá 12 „stöðum“ sem fós- tur getur borið að í, og segir greinilega hvemig fara skuli að við hverja stöðu. Hún leggur einnig á það áherslu, að við fyl- gjufæðinguna, eigi að láta náttúmna sjál- fa hjálpa sér. Komi fylgjan hinsvegar ekki verði að sækja hana. Og hún lýsir þar þeim háska sem fyrirsæt fylgja hefur í för með sér. Aðgerðina hina einu réttu taldi hún vera að víkka út legopið, gera vendin- gu og framdrátt og stasa þannig fyl- gjubeðið, en á þeim tímum hafði engin kunnátta verið í þeim efnum. Önnur bók hennar kom út 1617 og sú þriðja 1626, með viðauka 1634. Bækur hennar vom einnig gefnar út á þýsku og ensku. Justine Siegemundin (1650-1705) var þýsk og starfaði í Þýskalandi og víðar, hún var mjög þekkt ljósmóðir. Gaf út ljós- móðurfræði 1690, sem var 200 síður og með myndum, sem hún byggði á eigin reynslu. Hún lýsir þar m.a. vendingum og hún var fyrst manna til að reyna að minnka blæðingu frá legi með því að sprengja belgi. Og hún bendir þar einnig á, að þrengsli í mjaðmagrind geti hindrað fæðingu, en fram að þeim tíma höfðu menn ekki áttað sig á því, töldu að grindin gæfi nægilega mikið eftir. Þessi bók var endurprentuð mörgum sinnum og var aðalkennslubók i ljósmóðurfræði, bæði fyrir ljósmæður og lækna í Þýska- landi í nær heila öld. Það finnst mér segja nokkur til um, að þekking hennar hafi verið talin góð á þeim tíma. 32 ----------------------------------- Marie Louise Lachapelle (1769- 1821) var frönsk, hún var dóttir ljós- móður og starfaði í París, kvað hafa séð 40.000 þúsund fæðingar, hún skrifaði ljósmóðurfræði sem hún byggði á eigin athugunum. Ljósmóðurfræði hennar kom fyrst út 1821 og var síðan endurút- gefin 1825. I bók hennar voru góðir kaflar um sitjandastöður, skálegur, tang- arfæðingu, blæðingar við fæðingu, barnsfarasótt, legbrest og hún greinir þar m.a. frá þeim einkennum, sem fylgja „Eclampsíu" og er hún fyrst manna til að tengja saman þau einkenni og lýsa þeim vel á prenti. Þótti mönnum skrif hennar mikill fjársjóður þar sem hún hafði einnig gífurlega mikla verklega reynslu. Marie Anne Victoire Boivin (1733- 1841) var einnig frönsk og starfaði í París. Sagt hefur verið um hana, að hún hafi haft „auga á hverjum fingri“ svo at- hugul þótti hún. Fyrsta ljósmóðurfræði hennar kom út 1812 sem var m.a. með myndum af ýmsum mismunandi stöðum fósturs in utero, og hún lýsir því hvernig hún notar tangir. Bók þessi var sú full- komnasta, sem komið hafði út á þeim tímum. Önnur bók hennar kom út 1817 og var hún þar bæði með 136 myndir og sex statistical töflur af 24.214 fæðingum. Eftir hana birtust síðan bækur og greinar í Frakklandi og víðar 1818, 1819, 1827, 1829, 1833 og 1836. Rit hennar voru vísindalega unnin, hún skrifaði m.a. um blæðingar frá legi og hún var með þeim fyrstu sem birti grein um „hydatidiform mola“. Að lokum skrifaði Madame Boivin doktorsverkefni í sjúkdómafræði sem kom út 1833 i tveimur hlutum, annarsvegar fræðirit og hinsvegar Anatomy-Pathology-Atlas af Uterus, og naut hún aðstoðar við það frá Prófessor LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.