Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 40

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 40
SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Ijósmóðir ÁSLAUG HAUKSDÓTTIR, ljósmóðir: Glasafrjóvgunardeild Landspítalans Fyrir um það bil tveimur ámm hófst ný starfsemi á Kvennadeild Landspítalans, „glasafrjóvgun". Hafði þá undirbúningur og aðdragandi verið talsverður áður. Islendingar höfðu áður átt kost á slíkri aðstoð, en frá árinu 1987 greiddi Trygg- ingastofnun glasafrjóvgunarmeðferð er- lendis og fóru flestir til Bourn Hall klinik í Bretlandi. Það var einmitt þar sem fyrsta glasabarnið í heiminum varð til og fæddist þann 25.7. 1978. Síðan hafa nokkur þúsund slík börn fæðst í heim- inum. Fyrsta íslenska glasabarnið fæddist þann 31.7. 1992, þ.e.a.s. fyrsta barnið sem getið var á islensku glasafrjóvg- unardeildinni. Síðan hafa fæðst nokkrir tugir barna en um 20-30% af þeim eru tviburar. Á glasafrjóvgunardeildinni starfa nú tvær ljósmæður i 50% starfi, auk annars fagfólks. Deildin er staðsett á fyrstu hæð kvennadeildarinnar og starfar hún í nán- um tengslum við rannsóknardeild Kvennadeildar og hormónarannsóknar- deild Landspítalans. Starfsemi deildarinnar er að mestu leyti sniðin eftir starfsemi glasafrjóvgun- ardeildar Hammersmith sjúkrahússins í London. Það er ein af stærstu glasa- frjóvgunardeildum í Englandi ásamt Bourn Hall og hafa náð hvað bestum ár- 38 _______-_____________________________ angri þar. Við fórum í kynningu til Hammersmith sjúkrahússins í apríl 1991 og fylgdumst með starfseminni þar í nokkurn tíma. Ekki hafa verið sett lög frá Alþingi um glasafrjóvganir á íslandi en deildin starfar eftir vissum reglum og eru þær helstu eftirfarandi: - Karl og kona sem fara í glasafrjóvgun skulu hafa verið í fastri sambúð í a.m.k. þrjú ár. Konan skal vera undir fjörutiu og tveggja ára aldri. Þau skulu gangast undir þær rannsóknir sem læknar Kvennadeildar Landspítalans telja nauðsynlegar. - Veita skal þeim sem óska eftir glasa- frjóvgun fullnægjandi upplýsingar um fyrirhugaðar rannsóknir og aðgerðir. Þau skulu staðfesta ósk sína skriflega. - Tekið skal við tilvísunum frá kven- sjúkdómalæknum og sérfræðingum sem fjalla um ófrjósemi karla. - Helstu læknisfræðilegu ábendingar i glasafrjóvgun eru: Skemmdir á egg- jaleiðurum, blóðæxlismyndun (leg- slímhúðarkvilla) skert frjósemi karla, óútskýrð ófrjósemi. - Notkun gjafasæðis og gjafaegg- frumna er bönnuð. Oheimilt er að láta konu ganga með fyrir aðra. UÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.