Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Page 41
- Óheimilt er að nota frjóvgaðar egg-
frumur (okfrumur) til annars en koma
þeim fyrir i legi þeirrar konu sem
eggið var tekið úr.
- Óheimilt er að frysta eggfrumu og
fósturvísa.
Áður en meðferð hefst á glasafrjóvg-
unardeild hafa viðkomandi farið í viðtal við
lækni deildarinnar, þar sem m.a. er ákveð-
inn meðferðarmánuður og í framhaldi af
þvi fer parið í forrannsóknir sem eru:
- hormónarannsóknir á konu
- eyðni og lifrarbólgupróf karls og konu
- sóknarskoðun konu
- sæðisrannsókn karls.
Biðlisti er eitt og hálft til tvö ár. í hveij-
um mánuði byrja u.þ.b. 25 pör í meðferð.
Gangur meðferðarinnar er í stórum
dráttum þessi:
- Viðtal - sprautukennsla.
- Blóðprufur - sæðisprufur.
- Blóðrannsóknir - sónarskoðun.
- Miðnætursprautan (egglosunarsprauta).
- Eggheimta 34-36 klst. eftir mið-
nætursprautu.
- Fósturfærsla 2-3 dögum síðar.
- Þungunarpróf 2 vikum eftir egg-
heimtu.
- Dagur 28: Sónarskoðun.
- Dagur 42: Sónarskoðun - mæðraskrá.
Á 2. eða 21. degi blæðinga í með-
ferðarmánuði hjá konunni hringir parið á
deildina og fær tíma hjá ljósmóður í við-
tal og sprautukennslu. Lyfjameðferðin
frá byrjun, að eggheimtu tekur 4-6 vikur.
I flestum tilvikum sér maðurinn um að
sprauta, og hefur það gengið mjög vel.
Einstaka kona hefur sprautað sig sjálf eða
farið á heilsugæslustöð.
I þessu viðtali er einnig farið í gegnum
gang meðferðarinnar stig af stigi. Talað
er um aukaverkanir lyfja, og álag sem
þessu fylgir, ekki síst andlegt álag. Oft
eiga þessi pör margra ára erfiða sögu að
baki, e.t.v. stórar aðgerðir, og alls konar
erfiðleika og eru raunverulega komin að
lokapunktinum með miklar væntingar í
huga.
1) Lyfin sem notuð eru Suprefakt
(buserelin) sprautað undir húð einu sinni
á dag frá 2. eða 21. degi tíðahrings.
Þetta lyf er til að slökkva á þeim hluta
hormónakerfis konunnar sem stjórnar
starfsemi eggjastokkanna. Aukaverkanir
geta komið fram, sem líkjast einkennum
á breytingaskeiði konunnar, eins og
hitakóf og skapbreytingar, höfuðverkur
og auka tíðablæðingar geta komið. Þetta
lyf er gefið eitt í fyrstu 2-4 vikurnar síðan
er lyfi
2) bætt við - en það er Pergonal
(FSH/LS) gefið í vöðva einu sinni á dag.
Þetta lyf örvar eggjastokkana og upp-
hefur aukaverkanir Suprefacts - hitakóf
hverfa og skapið lagast, en þrýstings-
óþægindi um neðanverðan kvið geta
komið þegar líða fer á Pergonal-
meðferðina en hún tekur 12-16 daga.
Á meðan lyfjameðferð stendur er
fylgst með hormónamagni (E2) í blóði
konunnar á vissum tímum meðferðarinn-
ar og gerðar vaginalsónar skoðanir.
Þegar eggbúin hafa náð ákveðinni stærð
og fjölda og hormónamagn er nægilega
hátt, þá er konan tilbúin til egg-
heimtuaðgerðar (á 12-16 degi Pergonal-
meðferðar), fær hún þá gefna „mið-
nætursprautu" (Profasi - HCG) sem lýkur
þroska eggbúanna. 34-36 tímum síðar er
gerð eggheimta.
Þennan tíma, meðan parið er í með-
ferð, reynum við ljósmæðurnar að hafa
sem best samband við þau og reynum að
aðstoða við vandamál, sem upp koma,
_________________________________ 39
ljósmæðrablaðið