Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 45

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 45
ATyVí> V ekki mjólkað eftir fæðingu (4,6). í einni rannsókn kom fram að sumar konur voru hræddar um að brjóstin yrðu aftur stór og þung ef þær mjólkuðu. En í ljós hefur komið að ekki varð mikil stækkun á brjóstunum eftir brjóstagjöf, heldur hangi brjóstin eins og hjá öðrum konum, sem hafa haft barn á brjósti (7). Brjóstagjöf eftir fæöingu Eðlilegt þan (stálmi) verður á brjóst- unum og mjólkurmyndun verður í þeim hluta þar sem kirtilvefur er til staðar. Þau svæði sem ekki geta tæmt sig rýrna, kirtl- arnir hætta að framleiða og mjólkur- myndunin gengur til baka (resorberast) (2,6). Það virðist vera svipað ferli eins og hjá þeim konum, sem hafa svokallað aukabrjóst þ.e. brjóstvef sem ekki hefur útfærslugang, sem oftast er staðsettur undir holhönd. En einnig er talað um þann möguleika að mjólkurgangarnir endurbyggist (2). Álitið er að lítil mjólk- urmyndun tengist því hvað brjóstin stæk- ka á meðgöngutímanum og einnig ef lítið þan (stálmi) verður eftir fæðinguna. Það Setur sagt til um hversu mikill kirtilvefur er til staðar og þroska hans á meðgöng- unni. Þær konur sem hafa minni stækkun hafa minni starfandi kirtilvef og þar af leiðandi minni mjólk (6). Mikilvægt er að leggja barnið sem fyrst á brjóst, helst innan einnar klst. frá fæðingu til að örva mjólkurmyndun, og á tveggja til þriggja klst. fresti eftir það. Dregur einnig úr stálma. Ræða þarf við konuna að barnið gæti þurft fljótt ábót. Benda á hjálpartæki sem fæst í apótekum, sem er þannig hannað að barnið fær mjólk úr brúsa sem hangir um háls móðurinnar en frá brúsanum er slanga, sem sett er inn í munn bamsins jafnframt því sem það sýgur brjóstvörtuna og örvar mjólkur- framleiðslu brjóstsins. Nauðsynlegt er að konan hafi rólegt og notalegt umhverfi það auðveldar mjólkurlosun. Konan þarf síðan áframhaldandi stuðning eftir heim- komu. Fylgjast þarf vel með þyngd barnsins (4,6,7). Helstu niðurstöður úr rannsóknum I flestum tilfellum er talað um ein- hverja stækkun á brjóstunum á með- göngu, og konurnar undirbjuggu brjóstin eins og áður sagði. Og í öllum tilfellum mjólkuðu konurnar, en mismikið þó (4,7,8). Sumar hættu ef þær mjólkuðu lítið og þurftu því fljótt að gefa pela. Flest börnin fengu ábót frá sex vikna aldri, en sumar mæðurnar mjólkuðu allt upp í sex mánuði og þá oft bara ánægjunnar vegna. Börnin þyngdust í flestum tilfel- lum hægt, talin vera nægjanleg mjólk ef þau þyngdust 28,5 gr. á dag (7). Mikið er talað um hvað hvatning og eftirlit hafi góð áhrif á konurnar. Ein kona er nefnd sem fékk brjóstastíflu og bólgu í brjóst. Hún var meðhöndluð með ampicillini, hitabökstrum og brjóstagjöf með góðum árangri (4). Samantekt úr viðtölum mínum við 43 ejósmæðrablaðið

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.