Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 47

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Qupperneq 47
SIGFRÍÐUR INGA KARLSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur, B.Sc., ljósmóðir: Feður og mébganga Á tímum hins breytta þjóðfélags- skipulags og með aukinni þátttöku karla á meðgöngutíma konunnar og við barna- uppeldi vakna margar og sumar ef til vill nokkuð broslegar hugmyndir um við- brögð karla við þessum aðstæðum. Er komin tími til þess að við ljósmæður leggjum meiri áherslu á það í mæðraeftir- litinu að verðandi feður gangi e.t.v. líka í gegnum miklar breytingar og mikið álag? I þessari grein ætla ég að fjalla aðeins um andleg og líkamleg einkenni sem hefur verið talað um að sumir verðandi feður fengju á meðgöngutíma konunnar. Sumir fræðimenn hafa viljað tala um hina ófrisku fjölskyldu en ekki bara hina ófrísku konu vegna allra þeirra breytinga sem stundum verða hjá þeirri fjölskyldu sem á von á barni. Á þessu tímabili byrj- ar hver einstaklingur innan þessarar fjöl- skyldu að velta fyrir sér nýju hlutverki sem bíður hans, þegar nýr einstaklingur bætist í hópinn. Þau tengsl sem em milli ein- staklinganna í fjölskyldunni breytast oft og oft em gerðar aðrar og nýjar kröfur til ein- staklinganna innan fjölskyldunnar s.b. þú ert nú að verða stóri bróðir og svo fr.v. (5). Á meðan á meðgöngunni stendur, stendur hinn verðandi faðir frammi fyrir nýjum aðstæðum, konan hans kann að virka allt önnur manneskja vegna and- legra viðbragða hjá henni vegna með- göngunnar. Oft fer konan að skoða sjálfsmynd sýna á þessum tíma, hún á sýna dagdrauma, þörf hennar fyrir hvíld EJÓSMÆÐRABLAÐIÐ __________________ eykst og áhugi hennar á kynlífi breytist oft. Sumir karlmenn segja að þeir upplifi skrítna samkeppnistilfinningu gagnvart barninu, því allt í einu snúist allt i kringum barnið. Hann kann að finna fyrir meira fjárhagslegu álagi vegna aukinna útgjalda og það eykur oft á áhyggjur hans. Ef til vill finnur hann líka fyrir auknum þrýst- ingi gagnvart því að þess sé krafist af honum að hann hagi sér eins og verðandi pabba sæmir, (hvað sem það svo þýðir). Duvall setti fram ákveðna þætti sem væru hugsanleg viðbrögð verðandi pabba ann- ars vegar og verðandi móður hins vegar á meðgöngutíma konunnar. Af þeim má sjá að það virðist vera nokkuð ólíkt hvað það er sem verðandi pabbar hafa áhyggjur af á meðgöngunni annars vegar og hins vegar hvaða áhyggj- ur verðandi mæður hafa (5). Ef við snúum okkur svo aðeins að þeim líkamlegu þáttum sem hefur verið talað um að fylgi stundum hinum verð- andi föður þá var þar til nýlega litið svo á að ýmis líkamleg og andleg einkenni á meðgöngu væru eingöngu bundin hinni verðandi móður. Ekki var gert ráð fyrir neinum slíkum einkennum hjá hinum verðandi föður. En nú síðustu árin hafa heyrst háværar raddir um það að mörg þessara einkenna séu lika bundin karl- manninum. Margar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar í því skyni að athuga hvaða líkamleg og andleg einkenni komu fram _________________________________ 45

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.