Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 50

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1993, Side 50
maður upplifi mismunandi væntingar til föðurhlutverksins þá eru ákveðnir þættir sem taldir eru sameiginlegir hjá flestum þeirra. Margar greinar hafa verið skrif- aðar um væntingar til föðurhlutverksins og um þá þætti sem skifti máli í sambandi við það hvernig karlar eru tilbúnir til þess að takast á við föðurhlutverkið. I grein sem May skrifaði árið 1984 talar hún um fjóra þætti sem séu ríkjandi áhrifavaldar í því hvernig karlar upplifa breytt hlutverk sitt sem feður (8). Þessir þættir eru: 1. Fjárhagslegt öryggi. 2. Hvort það hafi verið ósk karl- mannsins að verða faðir. 3. Hvort karlmaðurinn er sáttur við að barnlausu tímabili sé lokið. 4. Stöðugleiki í sambandi hjóna/pars. Mjög trúlegt er að einhverjir af þess- um þáttum, ef ekki allir, hafi áhrif á það hvernig karlar upplifa það hlutverk sitt að verða feður. Margir greinarhöfundar hafa einnig bent á, að hversu mikinn þátt karlmaðurinn taki í meðgöngu konunnar og það hversu snemma hann fær að finna hreyfingar barnsins hafi mikil áhrif á það að hann þrói hugmyndir um föðurhlutverkið á jákvæðan hátt og sé tilbúnari en ella til að takast á við það (6). Til umhugsunar Með aukinni fræðslu og þátttöku karla á meðgöngutíma konunnar hafa þær kröfur sem til þeirra eru gerðar orðið meiri og meiri. Ef til vill er það orsökin fyrir því að nú er talað um að þessi einkenni sem konan fær á meðgöngu séu e.t.v. ekki aðeins bundin henni einni. í fyrstu gæti okkur þótt mjög svo undarlegt að verðandi faðir kvartaði undan ógleði 48 __________________________________ og uppköstum á meðgöngutíma konu sinnar. Það leiðir aftur hugann að því hvort líkaminn og sálin séu ekki mun tengdari en við gerum okkur grein fyrir í dag. Um frekari vangaveltur varðandi orsök og afleiðingar þessara einkenna læt ég ykkur eftir. Heimildir 1. Brown M.A. (1987). How fathers and moth- ers perceive prenatal support. American Journal of Maternal Child Nursing; 12 (6): 414-8. 2. Brown M.A. (1986). Social support, stress and health: A comparison of expectant mothers and fathers. Nursing Research; 35 (2): 72-6. 3. Chapman L. (1991). Expectant fathers role during labor and birth. Journal of Obstetric Gynecologic, and Neonatal Nursing; 21 (2): 114-120. 4. Conner G.K. & Denson V. (1990). Expectant fathers response to pregnancy; Review of lit- erature and implicatíons for research in high- risk pregnancy. Journal of Perinatal & Neonatal Nursing; 4 (2) 33-42. 5. Edelman, C.D. & Mandle, C.L. (1990). Health promotion: Throughout the lifespan. Mosby company. 6. Ferketich S.L. & Mercer R.T. (1989). Men’s health status during pregnancy and early fatherhood. Research in Nursing & Health; 12 (3): 137-148. 7. Glazer G. (1989). Anxiety and stressors of expectant fathers. Western Journal of Nursing Research; 11 (1): 47-59. 8. Lemmer S.C. (1987). Becoming a father: A review of nursing research on expectant fatherhood. Maternal Child Nursing Journal; 16 (3): 261-75. 9. Strickland O.L. (1987). The occurance of symptoms in expectant fathers. Nursing Research; 36 (3): 184-189. LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.