Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Síða 32
/
Heimafæðingar á Islandi
úttekt á heimafæðingum síðastliðinna 10 ára
Á ráðstefnu Ljósmæðrafélagsins, er bar
yfirskriftina „Eðlilegar fæðingar í nú-
tíma samfélagi" er haldin var á Grand
Hótel þann 12. september 2003 sl. var
ég beðin um að flytja innlegg er fjallaði
um útkomu heimafæðinga minna er
spönnuðu tímabilið frá 1992 til 2003.
Þar sem ég hef haldið nákvæma
skráningu og á ljósrit af öllum mæðra-
skrám kvennanna var ekki erfitt að fara
að rýna í gögnin og gera afturvirka
athugun á útkomu þeirra fæðinga er ég
hef aðstoðað við heima en útkoman
kom mér á óvart. Vissulega veit ég eins
og þið að heimafæðingar eru góður val-
kostur fyrir heilbrigðar konur í eðlilegri
meðgöngu og um það verður ekki fjall-
að nánar hér heldur skoða ég áhuga-
verðar staðreyndir er komu í ljós. Aftur
á móti gat ég ekki alveg stoppað við
mínar fæðingar heldur kallaði til Ás-
laugu Hauksdóttur til að koma með
heildarútkomu er varðaði sérstaklega
ijölda vatnsfæðinga og hvernig útkoma
spangarsvæðisins var hjá þeim konum.
En lítum fyrst á þróun heimafæðinga
sl. 10 ár. Kemur þá í ljós að umtalsverð
flölgun átti sér stað eftir 1999. Stofnun
Félags áhugafólks um heimafæðingar
má vera skýringin en vissulega einnig
breyttar áherslur í fæðingarhjálp al-
mennt og jákvætt viðhorf síðustu árin
bæði hjá fagstéttum og almennt í þjóð-
félaginu.
Guðrún Ólöf Jónsdóttir Ijósmóðir
og hjúkrunarfræðingur
Heildarfjöldi heimafæðinga er ekki
lagður saman heldur tek ég út Stór-
Reykjavíkursvæðið og dreifbýlið og
leyfi mér að sýna fram á fjölda fæðinga
sem við Áslaug Hauksdóttir höfúm
sinnt.
Þá sést að einhverju er nú ábótavant
við árin 1994 og 1995. Þar virðist vanta
skráningu á 2 fæðingum (tölur fengnar
frá kvennadeild LSH).
Hjá okkur Áslaugu luku 113 konur
fæðingunni heima og þær fæðingar
voru aðallega skoðaðar með tilliti til
fæðingaraðferðar, þ.e. vatnsfæðing eða
, jarðbundin“ og hvort um væri að ræða
frumbyrju eða fjölbyrju (sjá töflu 2).
Einnig lék okkur hugur á skoða hvernig
útkoma fæðingarinnar væri hjá þeim
m.t.t. spangarsvæðisins, sérstaklega þar
sem okkar tilfinning fyrir útkomu
spangarinnar hefur ekki verið í takt við
umræður sl. ára. (sbr litla könnun er var
Tafla 2.
Vatnsfæðingar vs jarðbundnar, (þe ekki vatnsfæðingar)
Heimaf 1 sðingar 3
Vatnsfæðingar 65 Jarðbundnar 48
Frumbyrjur 28 Fjölbyrjur 85
1 Vatnsfræðing 1 jarðbundnar i Vatnsfæðing 1 jarðbundnar
13 15 52 33
Mynd 1 Heimafæðingar frá 1992 - 2003 (sept)
1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003
Samtals 8 S-Rvk 148 7 9 8 9 9 6 17 31 19 25 ?
Af þeim 113
Guðrún Ólöf 56 1 0 6 2 5 5 2 1 13 8 7 6
Aslaug 57 0 0 0 0 0 1 2 7 8 10 16 13
Landið 2 4 7 3 3 2 4 4 0 1
Heildarfjöldi 148 1992- 2002 Áslaug 57 og Guðrún Ólöf 56 = 113
gerð í Keflavík). Af þeim 113 heima-
fæðingum voru vatnsfæðingar mun al-
gengari valkostur hjá konunum, enda er
það ein af mörgum ástæðum þess að
konur velja heimafæðingu. Reyndar
fæddu 14 konur hjá mér áður en að
fyrsta vatnsfæðingin átti sér stað, en
eftir að ég eignaðist fæðingarlaugina
árið 1998 þá varð stórkostleg breyting á
bæði hvað varðaði verkjameðferð fyrir
konuna og útkomu fæðingarinnar. Það
er fæðingin gekk hraðar fyrir sig og ég
sá ekki þessa uppgjöf hjá þeim eins og
áður.
Ef við lítum nú nánar á mínar 5ó
fæðingar þá kemur í ljós að þær sem
32 Ljósmæðrablaðið maí 2004