Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Síða 35
°g Hrefnu Einarsdóttur þá þurftum við
á stuðningi að halda og gat ég leitað til
kollega minna í MFS. En eftir þessa
reynslu finnst mér persónulega þessi
feðingarstelling vera varhugaverð, alla
Vega þarf að fá konuna hratt niður á
annað hnéð ef hún ætlar sér að fæða
svona. Mér er líka hugsað til þess að
þar sem fæðingin var konunni svo ljúf,
°g barninu líka, hormónalega séð, þá
var hún ekki tilbúin að hefja lífið utan
bkama móður sinnar, þ.e. að grípa
andann sjálf. Það var eins og hún áttaði
sig ekki á að hún væri fædd.
Til gamans tók ég saman stærð
barna, kyn og fleira til að skoða
Stærsta barnið 4714 g
4500 gr - 5000 gr 4
4000 gr - 4500 gr 15
3500 gr - 4000 gr 34
3000 gr - 3500 gr 13
Minnsta barnið 3100 gr
Skemmtilegir punktar
* Drengir 23
Stúlkur 23
Legvatn fer snemma á 1. stigi
sótt ekki byrjuð að ráði 3
Grænt legvatn, þ.e. vel grænt 1
* Folgrænt, rennandi 2
’ Tært 53
* Methergin 9 konur
Syntocinon sprey 7 konur
54 börn yfir 7 í apgar
~ börn undir 7 í apgar - vökudeild
Lelgir sprengdir eða rifna sjálfir eftir
9 cm útvíkkun hjá öllum konunum.
Blæðing meira en 500 ml 4 konur.
^llar aðrar með áberandi litla blæð-
^ ingu 50 - 150 ml
F*rjóstagjöf; öll börn á bijósti í
»tímaleysi“
er þarf ekki mikilla útskýringa við, ég
Lef syntocinon úða í kollhríð ef ég þarf
að Fá sterka hríð og ef konunni hefur
blætt áður, síðan fær sú kona inj. Met-
hergin. Þannig að fáar konur fengu
sprautu hjá mér eftir fæðinguna. Belgir
rofnuðu sjálfir í /við fæðingu eða ég
opnaði belginn til að flýta íyrir ef brún-
in var lengi að hverfa.
í lokin fyrir ykkur sem hafið áhuga á
að taka á móti heima.
„Tricks of the trade“ sem ég hef lært.
• Alút staða 2. stig, góð stelling góð
opnun grindarinnar og gott að nudda
og fylgjast með spangarsvæðinu
• Handklæði á brún til að þurrka sér,
eitt íyrir mig líka
• Kaldur poki á brún
• Barnaskemill, ofan í
• Boltar litlir í hendi, eða greiður í lófa
• Stórir uppblásnir boltar til að sitja á ,
eða liggja, (ein var með barnaörygg-
isbelti fyrir vatn)
• Nuddtæki ýmiss konar, gæti dugað
vel málningarrúlla (ónotuð!)
• Ilmolíur, kerti
• Ljós, ennisljós við saumaskap
• Spegill
• Vínber frosin
• Bekken til að setjast á ef fæðir ekki í
vatninu
• „Miðjan í húsinu,“ þar sem ég hef
töskurnar því að fæðingin getur verið
ansi hreyfanleg og endað þar sem
konuna síst grunar í byrjun.
• Barnafot á ofninn
• Hitapoki í ból/vöggu inni í handklæði
• Lak stórt til að setja undir kúlu ef hún
vill standa.
• Systkini undirbúin, fyrirfram ákveðið
þeirra hlutverk og ábyrgð t.d. fötin á
ofninn, ljósmyndataka og fleira
• Aðrir til taks, að allir viti sitt hlut-
verk.
• Pabbinn frír
Langur listi og örugglega alls ekki tæm-
andi. En gaman samt að huga að því.
Það var ansi fróðlegt að gefa sér tíma
í að skoða allar þessar mæðraskrár og
Sigurkuflinn opnaður. Friðrik Arnar, fœddur
4.4. 2003.
sjá það svart á hvítu að útkoma heima-
fæðinga á íslandi er bara þó nokkuð
góð enda hafa fjölmargar rannsóknir
sýnt fram á að heimafæðingar eru góð-
ur valkostur ef vel er að þeim staðið,
unnið eftir fyrirfram gefnum ramma, og
reyndar ljósmæður sem sinna þeim.
Það er orðið ansi brýnt mál að fleiri
ljósmæður taki að sér að sinna heima-
fæðingum, því eins og fram hefiir kom-
ið í fréttum s.l. vikur þá stefnir nú í
metár og við þurfúm að geta orðið við
óskum kvenna og fjölskyldna þeirra.
Fæðing er fjölskylduatburður og skiptir
miklu máli að geta orðið við þeim
væntingum
Barnið er að fæðast inn í „hring-
faðm“ fjölskyldunnar og sá staður er
yndislegur heima þar sem allir taka á
móti því pabbinn, systkini ,afar og
ömmur og jafnvel vinkonur og vinir og
ljósmóðirin.
LANDSPÍTALI
hAskólasjúkrahús
Kvennasvið Landspítala óskar öllum Ijósmæðrum
og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.
Ljósmæðrablaðið maí 2004 35