Freyr - 01.07.1937, Síða 3
Aldahvörf búnaðarfélagsskapar
á íslandi.
I.
Á þessu ári eru liðin 100 ár síðan búnað-
arfélagsskapur hófst hér á landi, og eru
þá upptök hans rakin til stofnunar Suður-
amtsins Húss- og Bússtjórnar félags árið
1837, en arftaki þess félags varð Búnað-
arfélags íslands 1899.
Þeir, sem stóðu að stofnun hins fyr-
nefnda félags og að stjórn þess, munu
hafa talið það stofnað 28. janúar 1837, á
afmælisdegi Friðriks konungs VI, og þann
dag var stofnun þess félags ákveðin, og
boðið til almennrar þátttöku, en lög voru
því ekki sett fyr en 8. júlí sama ár, og þyk-
ir því rétt að líta svo á, að þá fyrst sé það
að fullu stofnað.
Við þetta síðara var miðað, er Búnað-
arfélag íslands minntist 100 ára starfsemi
búnaðarfélagsskaparins í landinu, með há-
tíðahaldi hér í Reykjavík þann 8. júlí s.l.
Boðsgestir félagsins við þetta tækifæri
voru ríkisstjórnin, skrifstofustjóri at-
vinnumálai’áðuneytisins, formenn stjórn-
málaflokkanna, skólastjórar bændaskól-
anna, stjórnarnefndarmenn búnaðarsam-
bandanna, búnaðarþingsfulltrúar, eldri og
yngri, fyrverandi stjórnarnefndarmenn
félagsins og búnaðarmálastjórar og aðrir
starfsmenn félagsins, bæði þeir, sem áður
hafa verið, og núverandi starfsmenn.
Þá var og boðið forseta Fiskifélags ls-
lands og formönnum ýmsra félaga, er sér-
staklega vinna að hagsmunum bænda, utan
búnaðarfélagsskaparins, o. fl.
Loks var allsherjar búnaðarfélögum
hinna norrænu ríkja og Færeyja boðið að
senda hingað fulltrúa í tilefni af afmæl-
inu. Finnar og Svíar gátu ekki sinnt þessu
boði. Frá Det kgl. danske Landhushold-
ningsselskab kom hér til lands, um þess-
armundir, forseti þess Dr. med. K. A.
Hasselbalch, en var norður í landi á afmæl-
isdaginn, en fyrir hans hönd mætti sendi-
herra Dana hér á landi, de Fontenay. Fyr-
ir Det kgl. Selskab for Norges Vel mætti
ritari þess, Ole Hersoug, og fyrir Föroya
Búnaðarfjelag M. Winther-Lútzen, land-
búnaðarráðunautur.
Minningarhátíðin fór þannig fram, að
komið var saman í neðrideildarsal Alþing-
is kl. 1 um daginn. Stýrði formaður fé-
lagsins, Þ. Magnús Þorláksson bóndi á
Blikastöðum samkomunni og bauð gesti
velkomna. Þá söng Karlakór Reykjavíkur,
undir stjórn Sigurðar Þórðarsonar 2 lög,
en að því búnu flutti formaður erindi það,
sem birt er hér í blaðinu. Þá flutti forsæt-
ds- og landbúnaðarnáðheíra, Hermann
Jónasson ræðu. I ræðu sinni fórust ráð-
herranum m. a. orð á þessa leið:
„Og nú, á þessum tímamótum, þegar
litið er yfir hin stóru átök Búnaðarfé-
lags Islands, og hina miklu gagnsemi
þess, á umliðnum árum, þá sjáum við