Freyr

Volume

Freyr - 01.07.1937, Page 28

Freyr - 01.07.1937, Page 28
122 FREYE Framboðið hefir verið mjög mikið og fór sívaxandi, unz Bretar takmörkuðu inn- flutning kjöts, eftir Ottawa-samningana 1932. Vegna þessa mikla framboðs, var auðvelt fyrir kaupendur að gerast kröfu- harðir, bæði um meðferð og gæði kjötsins. Flestir innflytjendur brugðu skjótt við og bættu kjötið eftir kröfum, með bættri meðferð og ræktun fjárins, og ekki síður með strangri flokkun og bættri meðferð á kjötinu við slátrun, frystingu og flutning. Þeir sáu, að til þess að halda markaðin- um og auka hann, yrðu þeir að kaupa kjöt- inu vinsældir, með því að framleiða það, sem kaupendurnir óskuðu mest eftir, og vanda alla meðferð þess, unz hún væri óað- fiimanleg. Nýja-Sjáland stendur nú fremst í röðinni. Kaupendurnir — íbúar ensku stórborg- anna —- sækjast eftir kjöti af ungum, smá- um dilkum. Bezt að kropparnir vegi frá 10—15 kg. Þeir þurfa að vera beinasmá- ir, útlimastuttir og holdmiklir. Malir og spjaldhryggur og læri þurfa að vera mjög vel holdfyllt og þakin fitulagi niður á hækla. Kropparnir mega þó ekki vera of feitir. Það má telja gott, að lambskrokk- ar hafi 4—6 mm. þykkt fitulag yfir vöðv- anum á spjaldhryggnum. Kjötið verður að líta vel út. Marblettir eða fláningsgallar mega ekki sjást. Fitan á yfirborði kroppsins verður að vera vel hvít, og allur blærinn á kjötinu ferskleg- ur, þótt það hafi verið geymt lengi. Vissar kringumstæður hafa skapað þessa eftirspurn. Fyrir rúmum 30 árum var mest spurt eftir kjöti af spikfeitum fullorðnum sauð- um. Nú er slíkt kjöt nær óseljanlegt í Lond- on eða öðrum stórborgum. Fjölskyldur eru nú minni en áður og færra fólk í heimil- um. Áður þurfti 6—-10 punda læri í steik fyrir meðalheimili, en nú þarf aðeins 3—4 punda læri. Kjötkaupmaðurinn getur illa skipt lærum, af því að enginn vill kaupa, fullu verði, þann hlutann, sem leggurinn fylgir. Mjög mikil fita er nú ekki eftirsótt, vegna þess að fólkið í borgunum vinnur minni erfiðisvinnu en áður og þarf ekki fituna lengur sem orkugjafa. Dilkakjöt er fíngerðara en sauðakjöt, en bragðminna. Nú sækist fólk mjög eftir fín- gerðu kjöti, sem næstum rennur sundur í munninum, án þess að það sé tuggið, en gefur minna fyrir sterkt bragð. Af nefndum ástæðum hefir sauðakjötið horfið úr sögunni. Spjaldhryggur, malir og læri eru verð- mestu hlutar kroppsins, og eftirspurnin er mest eftir þeim. Kjötkaupmaðurinn getur því selt þessa hluta með góðum hagnaði pr. kg. En háls, herðar og bringu getur hann oft ekki selt, nema fyrir lægra verð pr. kg., en hann greiddi að meðaltali fyr- ir skrokkinn í innkaupi. Er því von að kjötkaupmenn vilji fá sem mest af þyngd kroppsins í afturhlutanum, en kæri sig ekki um mjög þungan framhluta. Neytendur vilja að lærin séu stutt, vel holdfyllt, sem lengst niðureftir leggnum, og alþakin fitu, vegna þess að stutt læri hefir hlutfallslega minna yfirborð, sem getur harðnað og þornað við matreiðslu og geymslu, heldur en langt og vöðvarýrt læri. Hið fyrnefnda gefur þykkar sneiðar af safaríkri, ljúffengri steik, en hið síðar- nefnda verður lítið annað en bein og þunnt lag af hálfskorpnu kjöti, eftir að það hef- ir verið steikt. Fitan á yfirborði kjötsins er fyrst og fremst nauðsynleg, til þess að verja það frá því að þorna upp við mat- reiðslu og geymslu. / Kropparnir verða að vera vel flegnir. ' Ef himnan er rifin og fitulaginu undir ákinninu er flett í burtu á blettum, þá fell-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.