Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2004, Page 16
76 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Menntamálaráðherrans Tómasar Inga Olrich verður einkum minnst fyrir að hygla sínu fólki fyrir norð-
an og að flytja frumvarp um styttingu náms til stúdentsprófs. Minnisvarðar eru að öðru leyti fáir. Hann
mun hins vegar mæta til Parísar með sannkallaða flugeldasýningu - 30 milljónir í farteskinu ætlaða í
menningarveislu.
„Glæsileg menningarveisla verður
í París næsta haust," segir Kolbrún
Halldórsdóttir, Vinstri hreyfingunni
grænu framboði, en hún situr í
menntamálanefnd alþingis. Þessi
veisla mun standa sem hæst þegar
Tómas Ingi Olrich kemur sér fyrir í
sendiherrabústaðnum í París í októ-
ber. Herlegheitin munu kosta 30
milljónir og er að finna sem sérlið á
nýsamþykktum íjárlögum, eyrna-
merkt veislunni undir yfirskriftinni
Menningarkynning í Frakklandi. Kol-
brún telur víst að gera megi góða
veislu fyrir þann pening. „Hann kem-
ur með flugeldasýningu með sér.“
Helgi Gíslason, sendifulltrúi í
sendiráði Islands í París, segir að há-
punkturinn verði 27. september þeg-
ar sýning verður opnuð í Vísinda-
safninu í París og stendur hún fram
yfir áramót. Þar til Tómas tekur við
mun hann stunda ítölskunám því
sendiráðið í Frakklandi annast jafn-
ífamt málefni sem snúa að Ítalíu.
Tómas er málamaður og talar
frönsku sem innfæddur.
Kjördæmapotari
Tómas Ingi Olrich var kjörinn á
þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norð-
urlandskjördæmi eystra árið 1991 og
hefur gegnt embætti menntamála-
ráðherra síðan í mars 2002. Forveri
hans þar er Björn Bjamason dóms-
og kirkju-
málaráðherra. Það fylgdi sögunni að
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tæki
við af honum eins og hún hefur nú
gert. Tómas Ingi fékk í sárabætur
stöðu sendiherra í París sem þykir
góður biti. Tómas Ingi á að baki nám
í frönsku og ffönskum bókmenntum
við Montpellier-háskóla þannig að
hann ætti að una hag sínum vel í
Frakklandi.
Menntamálaráðherrann Tómas
Ingi vakti athygli fyrir gjafmildi í und-
anfara síðustu alþingiskosninga á ný-
liðnu ári. Þá skrifaði hann undir
samninga um byggingu menningar-
húsa, íþróttaaðstöðu, skólahúsnæðis
og safna að andvirði 1,7 milljarða.
Menntamálaráðherrann Tómas Ingi vakti at-
hygli fyrir gjafmildi í undanfara síðustu al-
þingiskosninga á nýliðnu ári.
Þótti þetta dæmi um klassískt
kjördæmapot. Þar af em tveir þriðju
ætlaðir í kjördæmi Tómasar Inga eða
1,162 milljónum. (Sjá meðfylgjandi
töflu.)
Fyllerí í kosningabaráttu
Fyl
skil
skilaði litlu
Gunnar I. Birgisson er flokksfélagi
Tómasar Inga og formaður mennta-
málanefndar. Gunnar segir Tómas
góðan félaga og gefur honum bestu
meðmæli. „Hann
var ekki langan
tíma í emb-
ætti og
náði að
koma
tölu-
verð-
um
Sundlaug a Laugum Þingeyjarsveit - 66 milljónir
Þrjú menningarhús á ísafirði - 251 milljónir
Ný álma við Menntaskólann á Egilsstöðum - 97 milljónir
Menningarhús á Akureyri - 720 milljónir
Menningarmál á Akureyri - 64 milljónir
Síldarminjasafnið á Siglufirði,- 35 milljónir
Menningarhús í Eyjum -180 milljónir
Safnaaðstaða í Eyjum -100 milljónir
Vetraríþróttamiðstöð á Akureyri -180 milljónir
Heimild: Fréttabladi
munum út á land í menningarhús og
slíkt." Kolbrún Halldórsdóttir segir
hann augljóslega hafa verið afar hlið-
hollan sínu fólki fyrir norðan og hún
hefði fremur viljað sjá þessa fjármuni
renna í almennari málefríi. „Svo tók
hann yfir 100 milljónir af rannsókn-
arfé Háskóla íslands og setur í púllíu,
ótilgreinda rannsóknarstaifsemi,
sem heyrir undir ráðuneytið. Fjár-
málaráðuneytið bætti reyndar við 50
milljónum og ég óttast að 150 millj-
ónir verði notaðar til að hygla sjálfs-
eignarstofnunum á kostnað þjóðar-
skólans.“
Enn einn alþingismaðurinn sem á
sæti í menntamálanefnd og þekkir
því vel til starfa Tómasar Inga er
Björgvin G. Sigurðsson Samfylkingu.
Hann segir þetta „fyllerf Tómasar í
kosningabaráttunni hafa skilað ótrú-
lega litlu í atkvæðamagni. „Þeir töp-
uðu miklu fylgi, Sjálfstæðisflokkur-
inn hlaut 2 menn í 9 manna kjör-
dæmi og misstu 1. þingmann til
Framsóknar. Á þeirra mælikvarða
hlaut hann afhroð."
Rétt slapp inn í ríkisstjórn
Ekki var sjálfgefið að Tómas Ingi
tæki við ráðherradómi í ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar. Áður en hann
lét til sín taka í pólitík var hann
kennari og skólastjóri á Akureyri og
innanbúðarmaður í Sjálfstæðis-
flokknum segir hann hafa verið
dæmigerðan kennara að norðan:
„Besservisser, stífur, kórrekt. Hann
hafði staðið sig með ágætum í
nefndum á vegum flokksins en það
sem einkum réði því að hann varð
■ ráðherra var sú staðreynd að hann
* er úr rétta kjördæminu. Hinn
kandídatinn var Sigríður Anna
Þórðardóttir en það þótti ekki við
hæfi að enn einn ráðherrann
kæmi úr hennar kjördæmi. ,,No
way“. Og þannig var það nú.“
Þessi sami heimildarmað-
ur segir að ferill Tómasar
HHk sem menntamálaráðherra
sé ekki rismikill í þeim
skilningi að hann hafi
byggt sér marga bauta-
steina. „En þannig á
það lfka að vera.
Ég vil að þessir
gaurar geri sem
minnst.“