Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004
Fréttir 3DV
Davíð stendur
á sléttu
Samkvæmt
nýrri skoðana-
könnun Gallups
stendur Davíð
Oddsson forsætis-
ráðherra á sléttu
hvað varðar
ánægju lands-
manna með störf hans.
Nær jafnmargir sögðust í
könnun Gallups vera
ánægðir og óánægðir með
störf Davíðs eða um 40% í
hvorum hópi. Ivið færri eru
ánægðir og heldur fleiri óá-
nægðir með störf Davíðs en
2001 og karlar voru nokkru
ánægðari með forsætisráð-
herrann en konur. íbúar
höfuðborgarinnar voru
ánægðari en landsbyggðar-
fólk og þeir tekjuhæstu
voru mun ánægðari en þeir
tekjulægstu. 2/3 stjórnar-
sinna voru ánægðir með
Davíð en 12% stjórnarand-
stæðinga.
Lífeyrissjóðurinn Framsýn seldi hlutabréf sin í íslandsbanka sem lið í valdabar-
áttu. Hlutinn ætlaði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulifsins að nota til að ýta
Helga Magnússyni úr stjórn íslandsbanka þar sem hann hafði starfað gegn Krist-
jáni Ragnarssyni og Bjarna Ármannssyni. Framkvæmdastjóri ASÍ óánægður með
að lifeyrir sé notaður sem skiptimynt í stórviðskiptum.
Verkamenn verða af
250 milljóaam í valda-
baráttu penmgamanna
Vantrú á
hagstjórninni
Kristján Ragnarsson for-
maður bankaráðs íslands-
banka óttast að gengi ís-
lensku krónunnar sé of
sterkt. „Því miður virðist
sem hagþróun síðasta árs
lýsi ákveðinni vantrú á hag-
stjórninni og lýsir það sér
m.a. í gengisþróun krón-
unnar," segir Kristján í árs-
skýrslu bankans. Hann seg-
ir að útflutningsfyrirtækin
hafi þurft að takast á við
hátt gengi og þannig haft
verri arðsemi og sam-
keppnisstöðu en hin sem
framleiða fyrir innlendan
markað. „Með þessum
hætti er boðið heim hætt-
unni á að ójafnvægi mynd-
ist í hagkerfinu. Slíkt ójafn-
vægi er erfítt að leiðrétta án
þess að til komi rýrnun
kaupmáttar, aukið atvinnu-
leysi og í versta falli stöðn-
un og jafnvel samdráttur. í
hratt vaxandi viðskiptahalla
undanfarið má því miður
sjá vísbendingar í þessa
átt,“ segir Kristján.
8
7,8
7,6
7,4
Lífeyrissjóðurinn Framsýn hefur orðið af 250
milljónum króna með því að selja bréf sín í ís-
landsbanka fyrir mánuði síðan í stað þess að eiga
þau áfram. DV greindi frá því í gærað baráttan
um yfirráð yfir íslandsbanka hefði haflst þegar
Kristján Ragnarsson fráfarandi formaður banka-
ráðs íslandsbanka hefði beitt áhrifum sínum til
þess að lífeyrissjóðurinn Framsýn seldi þriggja
prósenta hlut sinn til Landsbankans. í því tilviki
herma heimildir að Kristján og Ari Edwald fram-
kvæmdastjóri Samtakaatvinnidffsins og stjórnar-
formaður Framsýnar,' hafi fengið því framgengt
að Framsýn seldi umræddan hlut. Heimildar-
maður DV segir að Ari hafi sótt það hart að ná
þessu fram. Þetta var liður í brellu til að losna við
Helga Magnússon úr stjórn íslandsbanka. Helgi
hafði starfað með Víglundi Þorsteinssyni innan
bankaráðsins gegn Kristjáni formanni og Bjarna
Ármannssyni. Hann sneri þó til baka með gagn-
leik þegar hann keypti næstum 9% hlut í bankan-
um með stuðningi Landsbankans.
Ef Framsýn hefði haldið eftir þessum.þriggja
prósenta hlut en ekki selt hann sem lið í valdabar-
áttu væri sú eign nú 250 milljónum verðmætari
en hún var þá. Gengi bréfanna sem voru seld var
um 7,2 daginn sem selt var, 29. janúar en gengið í
gær var á bilinu 7,9-8.
Á ekki að nýta í
valdabaráttu
Sá sem keypti bréfin
7*1af Framsýn hefur hagn-
/t-ast um 250 miíljóriir á
viðskiptunum nú þegar.
Það var eignarhaldsfélag
Karls Wernerssonar og
systkina hans sem það
gerði. Karl hefur sagt að
7hann sé fagfjárfestir sem
kaupi og selji hlutabréf til
þess að hagnast á þeim.
29.1.2004
Verkalýðshreyfmgin brást ókvæða við því að
atvinnurekendur skyldu nota lífeyri launamanna í
valdatafl af þessu tagi en Ari er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. Gylfi Arnbjörnsson fram-
kvæmdastjóri ASÍ vill ekki leggja mat á einstök
mál en segir að lífeyri eigi ekki að nota sem skipti-
mynt í valdabaráttu í viðskiptalífinu. „Þátttaka líf-
eyrissjóða í viðskiptalífmu á ekki að vera á öðrum
forsendum en eigenda lífeyrissjóðanna, sem eru
þeir sem greiða til þeirra iögjöld," segir Gylfi.
Vilja stækka bankana
Ekki er gert ráð fyrir öðru en að sjálfkjör-
ið verði í stjórn Islandsbanka á aðalfundin-
um en framboðsfrestur rennur út í dag.
Þeir sem bjóða sig fram eru Einar Sveins-
son sem verður bankaráðsformaður,
Víglundur Þorsteinsson sem situr í krafti
Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Helgi
Magnússon sem ræður stærsta einstaka
hlut í bankanum, Orri Vigfússon og Karl
Wernersson, en þessir þrír hafa allir ijár-
fest í bréfum bankans íýrir háar upphæðir
nýlega. Þá eru einnig nefndir Guðmundur B.
Ólafsson og Jón Snorrason. ___ ______
Nýtt bankaráð vinnur að þróun bankans
áfram. Ljóst er að Landsbankinn hefur áhuga á
samstarfi við íslandsbanka og innan nýju
stjórnarinnar eiga þau sjónarmið hljómgrunn að
þessum bönkum beri að starfa saman með ein-
hverjum hætti. Er á það bent að takist KB banka
að kaupa breska bankann Singer & Friedlander
verði hann tvöfalt stærri en bæði Landsbankinn
og Islandsbanki og því verði bankarnir að leita að
vaxtartækifærum.
kgb@dv.is
Helgi Magnússon Vará
útleið úrstjórn Islands-
banka en Landsbankinn
studdi hann til kaupa á hlut
sem tryggir stjórnarsæti.
Gylfi Arnbjörnsson Þátt-
taka iifeyrissjóða í við-
skiptalífinu á ekki að vera á
öðrum forsendum en eig-
enda llfeyrissjóðanna.
Kristján Ragnarsson
Setti afstað atburðarás
meðAra Edwald sem var
snúið honum i óhag.
Verkalýðsforingjar innan Framsýnar
Segja lífeyri ekki notaðan í valdatafli
Örn Sigurðsson Arkitekt
„Viö íhöfuðborgarsamtökun-
um höfum verið í samvinnu
við aðra í erfiðu átaki við að
Hvað liggur á?
reyna að koma Hringbrautinni
í stokk í stað þess að færa
hana til ofanjarðar/' Örn Sig-
urðsson arkitekt og formaður
Höfuðborgarsamtakanna.
„Það er núna svolítil pása í því
máli en baráttan heldur svo
áfram mjög bráðlega. Við ætl-
um okkur að koma á fundi
með öllum kjörnum fulltrúum
borgarbúa í borgarstjórn og á
Alþingi til að ræða þetta hags-
munamál. Og ég hlakka til að
takast á við það."
„Við höfurn ekki notað lífeyri
launamanna með þessum hætti -
það er alveg klárt," segir Sigurður
Bessason formaður Eflingar stéttar-
félags en hann á sæti í stjórn Lífeyr-
issjóðsins Framsýnar. Sigurður segir
lífeyri launamanna ekki hafa verið
notaðan í valdatafli innan stjórna
annarra fyrirtækja og segir verklags-
reglur um það skýrar.
„Við erum búnir að setja skýrar
reglur um það að enginn úr okkar
umhverfi megi sitja í stjórn ann-
arra fyrirtækja. Þetta eru skýrar
verklagsregíur. Hérna áður fyrr var
það þannig að menn fóru inn í
stjórnir annarra fyrirtækja en regl-
unum hefur verið breytt á þessa
leið og þannig á það auðvitað að
vera. Við höfum fyrst og fremst
þeirra hagsmuna að gæta að hugsa
um ávöxtun þess fjár sem er í
sjóðnum en ekki taka þátt í valda-
tafli innan fyrirtækja."
Undir þetta tekur Guðmundur Þ.
Jónsson, annar varaformaður Efl-
ingar, sem á einnig sæti í stjórn
Framsýnar.
„Við höfum tekið ákvörðun um
það að skipa ekki menn úr okkar
röðum inn í stjórnir fyrirtækja," seg-
ir Guðmundur. „Það er nú ekki
meiningin að við séum að nota pen-
inga sjóðsins í þágu einskaka stjórn-
armanna til að koma sér áfram í
stjórnum annarra fyrirtækja. Okkar
hagsmunir eru að ávaxta fé og
tryggja lífeyri fyrir okkar félags-
menn. Við kaupum og seljum eftir
því sem okkur þykir henta en eigum
ekki hlut í ákveðnum fyrirtækjum til
að eiga stjórnarsæti heldur til að
græða og þannig tryggja lífeyri okkar
félagsmanna."
Guðmundur Þ. Jónsson Segirlifeyri
launamanna ekki notaðan i valdatafl at-
vinnurekenda. Hann segir markmið iifeyris-
sjóðanna að tryggja lifeyri félagsmanna.
*£ttÍÉÉÉÉsí-
f \
Sigurður Bessason Verklagsreglurum að
stjórarmenn Framsýnar megi ekki sitja i stjórn-
um annarra fyrirtækja eru skýrar að sögn Sig-
urðar sem á sæti istjórn lifeyrissjóðsins.