Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 9
Skiptirsér
ekki affjöl-
miðlanefnd
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráð-
herra segist ekki skipta sér
af nefnd sem forveri hennar
skipaði til að athuga hvort
setja þyrfti lög um eignar-
hald á fjölmiðlum. Nefndin
átti að skila niðurstöðum nú
um mánaðamótin. Björgvin
G. Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, spurði
ráðherra á Alþingi í gær
hvort hún ætlaði ekki að
tryggja að niðurstöðurnar
skiluðu sér sem fyrst til að
minnka óvissu þeirra sem
standa í fjölmiðlarekstri.
Hún sagðist hafa fengið þau
skilaboð að nefndin ætlaði
að skila niðurstöðum síðar í
mánuðinum og eðlilegt væri
að hún fengi til þess þann
tíma sem hún þyrfti.
Viðgerðar-
maður
í lögreglu-
vanda
Skömmu eftir hádegi á
sunnudag barst lögreglunni
í Reykjavík tilkynning um
grunsamlegar mannaferðir
við hús í austurborginni.
Var lögreglunni sagt að
þarna væri maður á ferð
með verkfæratösku að
stússa eitthvað fyrir utan
útidyr á húsi áður en hon-
um tókst að komast inn í
húsið. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu kom í
ljós er lögreglumenn komu
á staðinn að þarna var um
að ræða viðgerðarmann í
löglegum erindum. Lögregl-
an segir að þarna hafí ná-
grannar brugðist rétt við
þegar þeir urðu varir við að
einhver sem þeir könnuðust
ekki við væri að fara inn í
húsið.
Vilja
vinnufrið
Lögreglunema sem
gleymdi sér í ástaratlotum
inni á
Hverfis-
barnum
var vísað
úr lög-
regluskól-
anum á
föstudag-
inn. Félag-
ar hans
töldu hann
ganga of
langt þegar
ung stúlka
brá sér undir borð og hafði
við hann munnmök. Heim-
ildir DV herma að neminn
íhugi að kæra brottrekstur-
inn en Arnar Guðmunds-
son, skólastjóri Lögreglu-
stjórans, segir það „ekki
hafa komið til tals". Skóla-
stjórinn vildi ekki svara
fleiri spurningum, sagði:
„Nú viljum við einfaldlega
vinnufrið". Rósant Birgis-
son, skemmtanastjóri
Hverfisbarsins, segir lög-
reglumenn vera fastakúnna
á staðnum og ávallt til
sóma.
Auglýsingastofan Gott fólk gerði það gott á auglýsingahátíðinni um helgina og
vann í sjö flokkum af tíu. Það kom því flatt upp á framkvæmdastjórann þegar þrír
af mikilvægustu mönnum fyrirtækisins sögðu upp með símskeyti.
Gott fólk McCann við Laugaveg
Ekki eins glatt á hjalla og ætla mætti eftir sig-
urgöngu á imarkhátiöinni. Þrír lykilmenn
sögðu upp og varviðskilnaðurinn hinn hrá-
slagalegasti. Þeir voru umsvifalaust sviptir
fyrirtækjasimum og óljóst hvort þeir vinna
uppsagnarfrest.
Þpíp lykilmenn
gange írá Gððu íólki
„Þetta kom mér í opna skjöldu. Þeir hafa ekki
gefið mér neina formlega skýringu á þessu. Ég fékk
bara sent símskeyti þar sem stóð: Ég undirritaður
segi hér með upp störfum hjá Góðu fólki. Óneitan-
lega svolítið sérstakt eftir þennan frábæra árangur
okkar á IMARK-hátíðinni," segir Gunnlaugur Þrá-
insson, framkvæmdastjóri Góðs fólks McCann.
Þrír af lykilmönnum auglýsingastofunnar, en
þar starfa rúmlega 30 manns, þeir Sveinn L. Jó-
hannsson, Hjörvar Harðarson og Dagur Hilmars-
son, sögðu störfum sínum lausum og var viðskiln-
aðurinn fremur hráslagalegur. Þeir þrír hafa verið
mikilvægir í starfseminni og allir eiga þeir að baki
áralangan feril hjá Góðu fólki. „Auövitað hefði ég
viljað hafa þá áfram, en hér er hver maður mikil-
vægur," segir Gunnlaugur.
Dagur Hilmarsson vildi lítt tjá sig um þetta mál
í samtali við DV í gær. „Ég er búinn að vera á sama
staðnum í sjö ár og oft hugleitt hvort ekki væri
kominn tími á þetta. Er einn af elstu mönnunum á
staðnum. Ég stend á tímamótum prívat og per-
sónulega."
Dagur hafði gert ráð fyrir því að vinna út upp-
sagnarfrestinn, sem er 3 mánuðir, en ekki er farið
fram á það og þá voru fyrirtækjasímar þeir sem
þremenningarnir höfðu umsvifalaust teknir af
þeim. Dagur segist vera að ná áttum eins og er.
Gunnlaugur segir áhöld um hvort þeir vinni upp-
sagnarfrestinn og býst við þeim til starfa í dag.
Hins vegar sé erfitt að hafa menn sem eru að vinna
gegn fyrirtækinu innan dyra, einkum þegar svo
viðkvæmur bransi sem auglýsingageirinn er ann-
ars vegar.
Hjörvar segir hafa verið kominn tíma á þetta.
„Sambandið milli okkar, jahh, hjónabandið var
bara búið, menn höfðu fjarlægst. Ekki ætlunin að
fara með skelli en það fór öðruvísi en maður von-
aði. Og meira viðbrögðin sem kalla á það en ann-
að. í sjálfu sér hefðum við viljað klára uppsagnar-
frestinn," segir Hjörvar og að ekki hafi verið tekin
„Ég fékk bara sent símskeyti
þarsem stóð: Ég undirritaður
segi hér með upp störfum hjá
Góðufólki."
um það ákvörðun að setja á fót nýja auglýsinga-
stofu heldur ætli menn að klára sín mál hjá Góðu
fólki McCann fyrst.
„Sveinn og Hjörvar hafa í um hálfan mánuð
verið að tala um að kaupa hlut í fyrirtækinu og sett
afarkosti. Dagur hins vegar hafði látið í það skína
að hann stæði mín megin og því kom það mér
mjög á óvart að hann væri með þeim í þessum
uppsögnum," segir Gunnlaugur. Hann sendi þeim
SMS-skeyti á IMARK-hátíðinni þar sem hann gaf
þeim kost á að láta þetta gleymt og grafið en þeir
vildu ekki íhuga það. jakob@dv.is
Ákærður en stefnir Lífeyrissjóðnum Framsýn vegna riftunar á starfslokasamningi
Vill tíu milljónir og vexti frá Framsýn
Karl Benediktsson, fyrrverandi
ffamkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins
Framsýnar, hefur stefnt sjóðnum
fyrir riftun á starfslokasamningi.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Framsýn gerði starfslokasamning
við Karl í júní árið 2000. í desember
árið 2001 taldi lögmaður lífeyris-
sjóðsins að Karl hefði gerst brotlegur
í starfi sfnu á meðan hann gegndi
því. Hætt var að greiða Karli sam-
kvæmt starfslokasamningnum ffá
og með maí 2002. Mánaðarlegar
greiðslur áttu að nema tæpum 500
þúsund krónum. Kröfur Karls nema
alls 10,1 milljón króná, auk dráttar-
vaxta.
Karl sagðist í bréfi til stjórnar
Framsýnar í maí 2002 telja samning-
inn í fullu gildi. í aprfl 2003 sendi
Karl sjóðstjórninni aftur bréf og
óskaði eftir því að hann fengi greitt
samkvæmt samningnum. „Einnig
bað ég sjóðstjórn að hlutast til við
Fjármálaeftirlitið um að það aftur-
kallaði beiðni sína til lögreglu um
skoðun á tilteknum málum," segir í
enn öðru bréfi sem Karl skrifar til
Framsýnar í október sfðastliðins:
„Þessi tilmæli hafa verið virt að
vettugi. Ég er því tilneyddur til þess
að stefna sjóðstjóm til greiðslu sam-
kvæmt starfslokasamningnum,"
sagði Karl.
I stefnu lögmanns Karls, Sveins
Andra Sveinssonar, segir að greiðsl-
urnar samkvæmt samningnum séu í
eðli sínu lífeyrisgreiðslur: „Slíkur
samningur er ekki uppsegjanlegur,"
segir lögmaðurinn.
I áðurnefndu bréfi frá í október
gerir Karl að umræðuefni hversu
slaka ávöxtun Framsýn hafi haft á
árunum 2000 til 2002. Áður hefur
verið sagt frá því í DV að Karl telur
fjárfestingarstefnu Framsýnar á
þessu tímabili hafa verið ranga. Fé
hafi verið bundið erlendis í stað þess
að fá á það betri ávöxtun hér innan-
lands. Karl segist því tilneyddur að
kæra sjóðsstjórnina fyrir brot á lög-
um um lífeyrissjóði.
„Sjóðstjórn sakar mig að ósekju
um að tapa nokkrum milljónum
króna en á sama tíma er hún að hafa
af okkur sjóðfélögum þúsundir
milljóna króna," segir framkvæmda-
stjórinn fyrrverandi og bætir við:
„Málaferli og kærur vegna vari-
efnda vegna málefna lífeyrissjóðsins
eru ekki til þess fallnar að efla ímynd
hans og auka tiltrú sjóðfélaga á
trausta stjórnun og trausta meðferð
á fé hans.“
gar@dv.is
11
Karl Benediktsson Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Framsýnar segist tilneyddur
að stefna lifeyrissjóðnum vegna vanefnda á
starfslokasamningi i kjölfar ásakana um brot
i starfi.