Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004
Sport DV
Snæfellingar brutu um helgina blað í íslensku körfuboltasögunni þegar þeir urðu fyrsta liðið utan suð-
vesturhornsins til að vinna titil. Snæfell tryggði sér deildarmeistaratitilinn með því að vinna sinn tólfta
deildarleik í röð. Fyrirliði liðsins er hinn 22 ára gamli Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson er eins og klipptur úr úr íslendingasögunum. Al-
skeggjaður og stór að burðum og líkt og forfeðurnir er hann ásamt félögum
sínum í liði Snæfells að endurskrifa söguna í vetur. Snæfell er farið að
blanda sér í baráttuna í körfuboltanum, baráttu sem hefur ávallt einskorð-
ast við lið á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Deildarmeistaratitill-
inn hafði farið 13 tímabil í röð á Suðurnesin áður en Hlynur fékk fyrstur
fyrirliða af landsbyggðinni að taka á móti bikarnum við gríðarlegan fögn-
uð Hólmara sem troðfylltu íþróttahúsið á sunnudagskvöldið.
Hlynur skoraði 8 stig og tók 12
fráköst í sigrunum á Haukum og
hefur oft látið fara meira fyrir sér í
sókninni. Hann veit að vörnin legg-
ur grunninn að árangri liðsins og í
upphafi seinni hálfleiks var eins og
liðið væri að gefa eftir undan spenn-
unni sem hafði magnast í troðfullu
íþróttahúsinu með liverri mínútu
sem leið. Haukarnir skoruðu átta
stig í röð og voru komnir yfir í leikn-
um. „Ef við verðum værukærir geta
allir skorað hjá okkur. Við urðum
bara svolítið æstir og fórum að reyna
hluti sem við réðum ekki við. Þegar á
þurfti að halda héldum við áfram að
spila vörn," sagði Hlynur og viti
menn, Hólmarar lokuðu vörninni og
Haukar skoruðu ekki nema tvö stig á
næstu fimm mínútum. Snæfellingar
voru komnir með tökin á Ieiknum
sem þeir héldu út leikinn og unnu
hann síðan á mjög sannfærandi
hátt.
Ánægður með vörnina
Hlynur er líka ánægur með vörn-
ina enda er áberandi hvemig allir-
leikmenn liðsins leggja stolt sitt í
þann þátt leiksins. „Hingað til er
þetta besta vörnin á landinu en við
verðum að sjá hvernig hin liðin
verða í úrslitakeppninni. Við spilum
frábæra hjálparvörn og erum allir að
hjálpast að. Við spilum alltaf maður
á mann vörn og nennum ekki að
spila leiðinlega svæðisvörn eins og
flest önnur lið gera, vörn sem drepur
leikina niður og gerir þá hundleiðin-
lega á að horfa," segir maður með
sterkar skoðanir á svæðisvörn.
Þrátt fyrir ungan aldur og litla
reynslu í baráttu um titla gerir
Hlynur sér vel grein fyrir því að þrátt
fyrir að þessi bardagi sé að baki er
stríðið bara rétt hálfnað og það er
stutt í alvöru úrslitakeppninnar.
„Ég vil fara varlega í allar yfirlýs-
ingar. Ég myndi ekki segja að við
séum með besta liðið á landinu
strax. Við höfum verið að standa
okkur vel hingað til og verðum að
njóta þess. Flestum öðrum liðum
sem hafa verið að vinna þenan titil
undanfarin ár finnst deildarmeist-
aratitilinn kannski ekkert merkileg-
ur. Það er út af því að þau em búin
að vinna hann fimm, sex sinnum.
Við höfum aldrei prófað þetta áður
og finnst þetta mjög merkilegt. Við
hlökkum bara til úrslitakeppninn-
ar," segir Hlynur, sem hefur skorað
13,4 stig og tekið 11,8 fráköst að
meðaltali í vetur og er
óumdeilanlega einn besti íslenski
leikmaður deildarinnar.
Bíðum allir spenntir
„Við emm ekkert hættir, því við
vitum að þetta er rétt að byrja. Við
emm stoltir af því sem við emm bún-
ir að gera í deildinni en það hjálpar
okkur ekkert í úrslitakeppninni. Þetta
er ótrúleg stemning sem er búin að
myndast hér í Hólminum og það sjá
það allir sem hingað koma. Það er
líka ffábær tilfinning að spila í svona
stemningu og við bíðum spenntir eft-
ir næsta heimaleik þvf við vitum að
hún verður pnnþá meira í úrslita-
keppninni. Okkur líður best hérna og
það besta við að vera kominn með
þennan bikar í hendumar er að vita
af því að við höfum heimavallarrétt-
inn út alla úrslitakeppnina. Við erum
samt ekki famir að hugsa svo langt
strax og vitum að ef við verðum eitt-
hvað værukærir þá dettum við út í
fyrstu umferð. Ég held að við séum
nógu góðir til að vinna öll liðin. Ég
held líka að við séum ekki nógu góðir
því við getum léttilega tapað fyrir
þeim öllum líka," ságði Hlynur Bær-
ingsson, fyrirliði Snæfells, liðsins sem
er að breyta landslaginu í íslenskum
körfubolta. ooj@dv.is
„Við spilum bara
alltaf maður á mann
vörn og nennum ekki
að spila leiðinlega
svæðisvörn eins og
flest önnur lið gera."
Bikarinn kominn í réttar hendur Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfellinga, smellir sigurkossi á deildarmeistarabikarinn eftir að hann var Ihöfn á sunnudagskvöldið. Félagar hans iliðinu fagna lika vel að bikarinn sé ihöfn. DV-mynd Hari
l