Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Blaðsíða 21
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 21
Stóri Sam
ekki hættur
Sam Allardyce, stjóri
Bolton, hélt áfram að hella
úr skálum reiði sinnar í
garð Mikes Riley í gær en
hann var ekki par hrifinn af
frammistöðu dómarans í
úrslitum deildarbikarsins.
„Því meira sem ég hugsa
um málið, þeim mun meira
finnst mér að það hafi verið
farið illa með okkur. Ég er
enn á því að Mike Riley hafi
verið okkur mjög óhlið-
hollur og við fengum að
borga fyrir slíkt í úrslita-
leik. Það sjá það allir.
Ekkert mun breyta minni
skoðun í þessu máli,“ sagði
stóri Sam Allardyce.
Morales lamdi
Chaves
Erik Morales fór illa með
Jesus Chaves í heimsmeist-
arabardaga í fjaðurvigt um
helgina. Bardaginn fór alla
leið en yfirburðir Morales
voru miklir og hann vann
sannfærandi á stigum.
Morales fór illa með Jesus
og lamdi hann meðal
annars tvisvar í strigann en
alltaf kom Chavez til baka.
„Ég vissi að hann kæmi
alltaf til baka. Meira að
segja eftir að ég sló hann
niður í Seinna skiptið,"
sagði Morales, sem fékk vel
að finna fyrir granítkjálka
Jesusar. „Ég lýg engu þegar
ég segi að ég hafi fundið til í
hendinni í hverju höggi.“
Chavez var tapsár og vill
keppa aftur. „Ég vil að hann
haldi sér í þessari þyngd því
þegar ég hef jafnað mig í
öxlinni vil ég annan
bardaga," sagði Chavez.
Phillips
sektaður
Kevin Phillips, fram-
herji Southampton, var í
gær sektaður um 2.000
pund fyrir þátt sinn í
slagsmálunum gegn Jens
Lehmann, markverði
Arsenal, um daginn.
Phillips var einnig varaður
við því að álíka hegðun í
framtíðinni myndi leiða til
frekari refsingar. Lehmann
hefur þegar verið sektaður
urn 10.000 pund vegna
slagsmálanna.
Valsmaðurinn Markús Máni Mikaelsson kom á sunnudag heim frá Þýskalandi þar
sem hann æfði með Dússeldorf. Markús á von á tilboði frá félaginu en ekki er víst
að hann fari þangað, þar sem félög í Frakklandi og Danmörku hafa líka áhuga.
Valsmenn munu þó ekki bera skarðan hlut frá borði fái Markús einhverju ráðið.
Það ætti ekki að vera mikið
vandamál hjá Markúsi Mána
Mikaelssyni að finna sér félag til
þess að spila með næsta vetur.
Hann hefur hug á því að reyna fyrir
sér erlendis og nú þegar hafa fjögur
félög sett sig í samband við hann og
lýst yfir áhuga.
Markús var í síðustu viku til
skoðunar hjá þýska 2. deildar-
félaginu Dússeldorf en það á góða
möguleika á því að komast í
Bundesliguna.
„Það gekk bara mjög vel og þeir
voru mjög sáttir við mig,“ sagði
Markús Máni í samtali við DV Sport
í gær en hann á von á því að félagið
geri sér samningstilboð um leið og
ákveðin atriði hafa verið til lykta
leidd innan félagsins.
„Þeir verða fyrst að koma sér upp
um deild og svo þurfa þeir að sanna
að þeir hafi efni á því að spila í efstu
deild því íjárhagsstaða félagsins er
ekkert allt of góð í augnablikinu en
þeir segjast vera á réttri leið með að
bjarga því. Ef það gengur allt eftir
hjá félaginu býst ég fastlega við því
að þeir bjóði mér samning. Bæði
framkvæmdastjórinn og þjálfarinn
sögðu við mig að þeir vildu fá mig
þannig að ég á ekki von á öðru,“
sagði Markús.
Trúrsínu félagi
Samningur Markúsar við
Valsmenn rennur út næsta sumar og
því gæti þýska félagið fengið hann
án greiðslu en það vill Markús ekki
hafa og ædar hann að sjá til þess að
Valur fái borgað fyrir að ala hann
upp.
„Eg set það sem skilyrði að Valur
fái góða upphæð fyrir mig. Ef það
gengur ekki þá sem ég bara aftur við
Val svo þeir þurfi að borga fyrir mig.
Mér finnst það algjört lágmark enda
hefúr Valur alið mig upp sem
handboltamann," sagði Markús en
slíkt viðhorf er ekki algengt meðal
íþróttamanna í dag og Markúsi til
mikils sóma.
Aron ber víurnar í Markús
Eins og áður segir hafa fleiri félög
sýnt Markúsi áhuga og koma tvö
þeirra frá Frakklandi.
„Paris Saint-Germain hefur verið
að spyrjast fyrir um mig, sem og St.
Raphael sem er í annarri deild og á
leiðinni upp í efstu deild,“ sagði
Markús en Gunnar Berg Viktorsson
lék sem kunnugt er með Paris Saint-
Germain áður en hann fór til
Þýskalands. PSG er f sjötta sæti
frönsku deildarinnar en St. Raphael
er í öðru sæti í 2. deildinni.
Fyrir utan þessi lið hefur danska
stórliðið Skjern verið í sambandi við
Markús en Aron Kristjánsson er
einmitt að taka við aðstoðarþjálfara-
stöðu hjá félaginu í sumar. •
„Aron hefur verið í sambandi við
mig og þeir hjá Skjern vilja skoða
mig. Það hefði verið gaman að kíkja
á þá en ég á þess ekki kost eins og
staðan er núna en ég kíki kannski til
þeirra eftir að tímabilinu lýkur hér
heima. Þetta er flott félag og væri
spennandi að kíkja á aðstöðuna hjá
þeim," sagði Markús, sem reyndar
játaði að hann væri spenntastur fyrir
því að spila í Þýskalandi enda af
þýsku bergi brotinn og talar reip-
rennandi þýsku.
Það er því ljóst að Markús leikur
ekki á íslandi næsta vetur en hvar
hann verður skýrist væntanlega ekki
fyrr en í byrjun sumars. henry@dv.is
Á leiðinni út
Markús Máni
Mikaelsson er á
leið i atvinnu-
mennsku i
handknattleik
en fjögur lið eru i
myndinni eins og
staðan er i dag.
Skjern vill skoöa Markús
Skagamenn eru ekki ánægðir með Fylkismenn eftir að þeir létu Garðar Gunnlaugs-
son spila æfingaleik með liðinu án leyfis. Það fór ekki betur en svo að Garðar
meiddist eftir fimm mínútur og Ólafi Þórðarsyni, þjálfari ÍA, var ekki skemmt.
Þjálfara Fylkis til háborinnar skammar
Forsaga málsins er sú að Garðar
fékk leyfi til þess að æfa með Fylki í
vetur þar sem hann er slæmur í
hnjánum og getur ekki æft á því
undirlagi sem Skagamenn æfa á
reglulega. Skagamenn segjast ekki
hafa gefið leyfi fyrir því að Garðar
mætti spila með liðinu og Ólafur
Þórðarson, þjálfari ÍA, er reiður út í
kollega sinn hjá Fylki, Þorlák
Árnason.
„Ég var negldur niður eftir fimm
mínútna leik og tognaði á ökkla.
Þetta er samt ekkert alvarlegt og ég
verð klár aftur eftir tvær til þrjár
vikur," sagði Garðar í samtali við DV
Sport í gær. „Ég spurði ekkert um
leyfi til þess að spila leikinn. Ég hélt
ég væri að fara á eðlilega æfingu en
þá kom í ljós að það var
æfingaleikur. Láki [Þorlákur
Árnason, þjálfari FylkisJ bað mig um
að spila síðari hálfleikinn og ég gerði
það bara. Ég hafði ekki snert bolta
lengi og vantaði smá æfingu þar sem
það var leikur daginn eftir.“
Óli reiður
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, tók
málinu ekki eins létt og Garðar.
„Ég leyfði honum að æfa með
Fylki en ég leyfði honum ekki að
spila með Fylki,“ sagði Ólafur í
samtali við DV Sport í gær en
Þorlákur Árnason er klárlega ekki á
leið á jólakortalistann hjá ðlafi í ár.
„Ég er ekki par hrifinn af þessari
framkomu. Ég hef ekki ákveðið
hvort ég geri eitthvað í málinu en
það kemur í ljós. Mér finnst það til
háborinnar skammar af þjálfara
Fylkis að stilla honum upp í leik,“
sagði Ólafur reiður en það er víst
ekki algengt að þjálfarar tefli fram ■*
leikmönnum í æfingaleikjum sem
eru samningsbundnir öðru félagi.
Ólafur segir að Garðar muni ekki
æfa áfram í Arbænum. „Það er alveg
ljóst að hann æfir ekki meira með
þeim. Það er fyrir neðan allar hellur
hjá Fylkismönnum að haga sér
svona."
Þorlákur hissa ■*
DV Sport setti sig í samband við
Þorlák Amason, þjálfara Fylkis, og
spurði hann út í málið. Þorlákur
varð hissa á ummælum Ólafs enda
hafði hann ekki heyrt af því að hann
væri eitthvað ósáttur.
„Það er að þeirra ósk að hann er
að æfa hjá okkur og við höfum verið
að gera ÍA greiða með því að leyfa
honum að æfa hjá okkur. Mér finnst
það undarlegt ef Ólafur er eitthvað
fúll því við vorum að gera honum og
Garðari greiða. Það kemur mér mjög
á óvart að heyra þetta. Mér finnst
ummæli Ólafs fáranleg og ekki svara
verð. Hann verður að eiga þetta við
sjálfan sig,“ sagði Þorlákur Árnason, .
þjálfari Fylkis í knattspyrnu. <
henry@dv.is
Strákurinn minn! Ólafur Þórðarson villekki
að Garðar Gunnlaugsson leiki með öðru félagi
en ÍA. Hann er ósáttur við Þorlák Árnason og
\ j&H,' vandar honum ekkikveðjurnar.
<