Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Side 23
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR2. MARS 2004 23 «
Fannst greinilega mörgum sem það
væri orðið löngu tímabært að hann
hlyti verðlaunin, en svo virðist sem
hann hafi verið viljandi sniðgenginn
hingað til, ekki bara vegna stjórn-
málaskoðana heldur líka vegna þess
að hann hefur lítið viljað taka þátt í
stjörnuleik Hollywood. Var meira að
segja dregið í efa að hann myndi
mæta á hátíðina, þar sem hann hef-
ur ekki mætt í fyrri skiptin sem hann
var tilnefndur og mætti ekki á
Golden Globe um daginn. En Penn
og akademían virðast nú vera búin
að taka hvort annað í sátt, og Penn
sagði við afhendinguna að þetta
væri hluti af lífi hans sem hann væri
rétt byrjaður að njóta.
í fangelsi fyrir að lemja auka-
leikara
Sean Penn var lengi talinn vand-
ræðagemlingur í HoUywood, og
hefðu fáir spáð því að ferill hans yrði
jafn langlífur og raun ber vitni. Hann
sást fyrst í unglingamyndum á borð
við Taps, Fast Times at Ridgemont
High og hinni réttnefndu Bad Boys í
upphafi 9. áratugarins. Það var ef til
viU fyrst með njósnamyndinni The
Falcon and the Snowman og At
Close Range þar sem hann lék á
móti Christopher Walken sem hann
gaf til kynna að hann myndi vaxa
upp úr slíkum hlutverkum, en báðar
komu út um miðjan áratuginn.
Myndirnar hlutu lof gagnrýnenda
en litla aðsókn. Um svipað leyti gift-
ist hann Madonnu og var um tíma
þekktastur sem eiginmaður hennar.
Er jafnvel talið að ein ástæðan fyrir
þvf að þau skildu árið 1989 hafi verið
að hann var orðinn þreyttur á að
vera kallaður hr. Madonna í fjöl-
miðlum. Eitthvað hefur hann að
minnsta kosti verið pirraður meðan
á hjónabandinu stóð, því árið 1987
var hann dæmdur í 32 daga fangelsi
fyrir að lemja aukaleikara sinn.
Hjónin léku saman í hinni afar
slöppu Shanghai Surprise, en Penn
sýndi betri tilþrif í Colors í leikstjórn
Dennis Hopper. Sonur Penn, Hopp-
er Jack, er skírður í höfuðið á bæði
Jack Nicholson og Dennis Hopper.
Helsta hetja hans mun þó vera Ro-
bert De Niro. Þeir léku saman í
myndinni We’re No Angels árið
1989, en það var fátt í henni sem gaf
til kynna að hann myndi nokkurn
tímann komast almennilega úr
skugga Madonnu.
Farinn að róast og hættur að
reykja
Með nýjum áratug gekk honum
þó allt í haginn, lék í hinni stórgóðu
glæpamynd State of Grace og var
nær óþekkjanlegur í Carlito’s Way.
Árið 1991 gekk hann í sambúð með
kærustu Forrest Gump, Robin
Wright, og giftust þau 5 árum
seinna. Um miðjan áratuginn kom
svo fyrsta óskarstilnefningin. Penn
hefur einnig sýnt umtalsverða hæfi-
leika sem leikstjóri, en hann hefur
leikstýrt myndunum Indian Runner,
Crossing Guard ogThe Pledge, þeim
tveimur síðastnefndu með Jack
Nicholson í aðalhlutverki.
Penn hefur, líkt og karakter hans
í Mystic River, talsvert róast síðustu
árin og hætti meira að segja að
reykja á 40 ára afmælisdegi sínum
árið 2000. Hann og Hollywood-að-
allinn hafa loksins tekið hvorn ann-
an í sátt. Spurningin er hvort það
leiði til þess að hann taki að sér
meiri „mainstream‘'-hlutverk í
ffamtíðinni. Svo þarf þó ekki að
vera, því í næstu mynd sinni leikur
hann mann sem reynir að myrða
Nixon forseta með því að fljúga flug-
vél á Hvíta húsið, sem verður að telj-
ast fremur djarft í ljósi atburða und-
anfarinna ára.
Sean Penn og Madonna meðan allt lék
í lyndi Bæði hafa þó fundið ástina aftur,
Penn með leikkonunni Robin Wright og
Madonna með leikstjóranum Guy Ritchie.