Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2004, Síða 25
I>V Fókus ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 25 wr Uppselt á Korn Miðasala á tónleika bandarísku rokksveitarinnar Korn í Laugardals- höll 30. maí gekk vonum framar og nú er uppselt á tónleikána. Að sögn Kára Sturlusonar tónleikahaldara voru miðar boðnir til sölu á nokkrum stöðum úti á landi og seldust þeir upp á nokkrum mínút- um. Miðar í verslunum Skffunnar á höfuðborgarsvæðinu seldust upp á um klukkustund að sögn Kára. Erf- iðar gekk með miða sem ætlaðir voru í símasölu fyrir landsbyggðina því sfmkerfið hrundi fljótt. Af þeim sökum voru þeir miðar seldir í gær og gekk sú sala vel. Kári segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort boðið verði upp á aðra tón- leika með Korn en sá möguleiki sé vissulega fyrir hendi og verði kann- aður, enda hafi mikið af fólki misst af því að ná sér í miða í gær og fyrradag. Rögnvaldur Sigurjónsson píanóleikari látinn íslensk pjóö stendur í stópkostlegri bakkarskuld „Ég mat þennan mann óendanlega mikils og það er enginn vafi á því að hann er í hópi merk- ustu tónlistarmanna sem íslendingar eignuðust á hanstíð," sagði Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra í gær um vin sinn Rögnvald Sigurjóns- son píanóleikara sem er nýlátinn. „Hann var einn af allra bestu vinum mínum," sagði Gylfi ennfremur. „Og hann bar hróður íslands víða um lönd." Valinn í ólympíulið í sundknattleik Rögnvaldur fæddist á Eskifirði 15. október 1918 og var því á 86. aldurári þegar hann lést. Hann var á unga aldri ekki síður efnilegur íþrótta- maður en tónlistarmaður og var valinn í íslenska sundknattleiksliðið á ólympíuleikunum í Berlín 1936. Ári síðar lauk hann prófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík og hélt utan til náms. Rögnvald- ur nam píanóleik í París og New York í tæpan ára- tug auk náms í hljómsveitarútsetningum við Julli- ard School of Music í New York 1944. Hann kenndi svo píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavlk í ijörutíu ár og voru margir helstu pí- anóleikarar landsins meðal nemenda hans. Árið 1986 varð hann yfirkennari við Nýja tónlistarskól- ann í Reykjavík og starfaði þar til æviloka. Rögnvaldur Sigurjónsson kom fram með hljómsveitum í útvarpi og sjónvarpi hér heima, á Norðurlöndunum, í Ameríku og Evrópu auk þess að leika inn á fjölda hljómplatna. Hann skrifaði tónlistargagnrýni í Morgunblaðið, Tímann og Þjóðviljann. Útvarpsþættir hans Túlkun í tónlist 1985-1988 nutu gífúrlegra vinsælda en þar fjallaði hann um sígilda tónlist á hressilegri og skörulegri hátt en hlustendur voru vanir. Rögnvaldur Sigurjónsson var heiðursfélagi Fé- lags íslenskra tónlistarmanna, heiðursborgari í Winnipeg í Kanada 1963 og hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til menningarmála árið 1974. Furðulegt að slíkur listamaður starfi á íslandi Guðrún Egilson skrásetti tvær endurminn- ingabækur eftir Rögnvaldi, Spilað og spaugað og Með lífið í lúkunum. Gylfi Þ. skrifaði eitt sinn um Rögnvald að hann hefði eflaust haldið fleiri hljómleika erlendis en nokkur annar íslenskur listamaður. Að loknum hljómleikum í Listasafn- inu í Washington kvaðst Gylfi hafa heyrt marga kunnáttumenn í tónlist segja, að furðulegt væri að slíkur listamaður starfaði úti á íslandi. „Þeir spurðu, eins og Bandaríkjamönnum er títt, hvers vegna svona maður væri ekki á heimsmarkaðn- um. Við Rögnvaldur vorum þá löngu orðnir nán- ir vinir. Ég held að ég hafi sagt, þegar ég svaraði þeim, að þótt Rögnvaldur væri auðvitað mikill listamaður, væri hann þó fyrst og fremst íslend- ingur og vildi starfa á íslandi. Að lokum skrifaði Gylfi Þ. Gíslason: „Og ís- lensk þjóð stendur í stórkostlegri þakkarskuld við Rögnvald Sigurjónsson fyrir það, að hann skuli hafa helgað henni það starf og þá list, sem sómt hefði heiminum öllum." Eiginkona Rögnvaldar, Helga Egilson, lést 2001. Þau áttu þau tvo syni. Verk sem við öll skiljum „Það eiga allir fslendingar að sjá hann Ólaf Elíasson. Sýn- ingin hans er stórkostleg og hreyfir við manni. Þetta er ekki bara fyrir einhverja listaaka- demíu-gæja heldur einnig hinn almenna borgara. Þess vegna hittir hann stöngin inn með boltanum. Síðustu 25 ár hafa verið skóflur upp á veggjum og þvottur á snúrum sem listaverk og ljósmýndir og hefur þótt voðalega flott. En nú kemur Ólafur og sýnir verk sem við öll skiljum." Magnús Theodór Magnússon, Teddi, mynd- listarmaöur Skærasta íþróttastjarna okkar með Jóni Gnarr og Tóta í Man of the Match Rögnvaldur Sigurjónsson píanó- leikari íslensk þjóð stendur istór- kostlegri þakkarskuld við Rögnvald Sigurjónsson fyrirþað, að hann skuli hafa helgað henni það starfog þá list, sem sómt hefði heiminum öllum. jj| j| ■ Jón Gnarr og Eiður Smári saman í bíómynd Jon i-jomir Thoroddsen Vinn- ur að nýrri islenskri kvikmynd með Jóni Onarr og Þórhalli Sverrissyni auk þess sem Eiður Smári mun leika sjálfan sig i henni. „Þetta er búið að vera nokkuð lengi í undirbúningi þó við höfum ekki mikið verið ___________að tala um þetta. Þetta er sem sagt gamanmynd sem þeir Þórhallur Sverrisson og Jón Gnarr leika í og Eiður Smári verður þarna í litlu hlutverki," segir Jón Fjörnir Thoroddsen kvikmynda- framleiðandi um kvikmyndina Man of the Match sem hann er að vinna að með Jóni Gnarr og Þórhalli Sverrissyni. „Þessi mynd er samvinnuverk- efni okkar þriggja, míns, Tóta og Gnarrs, og er komin mjög langt. Það er búið að skrifa margar útgáfur af myndinni en ástæðan fyrir því að við höfúm frestað gerð hennar er sú að hún á að vera flott og vel gerð og útpæld. Þetta er svona vega- mynd, hún fjallar um menn sem eru að fara að horfa á fótboltaleik," segir Jón sem segir aðspurður að myndin gerist í Grindavík og á Englandi. „Þetta er „mistaken comedy", aulinn verður hetja. Eiður Smári er þarna í litlu hlutverki og leikur sjálfan sig.“ Jón segir tökur ekki enn hafnar en myndin verði tekin upp seinna á þessu ári. Hann segir að þeir ætli sér tíma fram á vorið til að ganga end- anlega frá leikaravalinu enda sé á þessum tímapunkti ekki ljóst hvaða leikurum þeir komi til með að hafa efni á. „Það verða þarna enskir leik- Jón Gnarr Leikur i annarn fótboltamynd sem ætlunin er að selja til útlanda. arar og þetta er eiginlega spurning um hversu stórir og dýrir þeir munu verða," segir hann. Myndin heitir Man of the Match og segir Jón Fjörnir að hann og nafni hans Gnarr séu skráðir leikstjórar hennar. „Svo fáum við örugglega einhvern með okkur í það síðar. Við erum ekki enn búnir að velja þann aðila." Aðspurður segir hann að þeir hafi fengið enskt fjármögnunarfyrir- tæki til liðs við sig til að kosta mynd- ina. „Þetta er samt óháð mynd þar sem þetta er ekki eitt af þessum stærri ensku fyrirtækjum eða útibú frá bandarísku fyrirtæki." Man of the Match er bæði á ensku og íslensku enda koma allra þjóða kvikindi við sögu að sögn Jóns Fjörnis. Hann útilokar ekki heldur að þeir ætli sér meira með myndina en bara að koma henni í íslensk kvikmyndahús. „Það er náttúrulega ástæðan fyrir því að við erum ekki enn búnir að taka hana upp með einhverju lélegu rnixi. Okkur langar að gera þetta vel og vonumst að sjálfsögðu til þess að einhverjir aðilar hafi áhuga á mynd- inni." hdm@dv.is llya They Died For Beauty ★ ★"* fj Virgln/Skífan Bristol er höfuðborg trip-hop-tónlistarinnar. Þaðan komu bæði Massive Attack, Tricky og Portishead og þaðan kemur líka trip- hop-tríóið Ilya sem er skip- að Nick Pullin, Dan Brown og söngkonunni Joanna Swan. Þau hafa starfað sam- an síðan árið 2000 og vöktu mikla athygli fyrir EP-plöt- una The Revelation sem kom út í fyrravor. They Died For Beauty er fyrsta stóra plata Ilya og það verður að segjast eins og er að hún veldur nokkrum vonbrigð- um. Þó að sveitin eigi alveg sína spretti, hér og takist stundum að töfra fram stemningu, þá hljómar of margt of kunnuglega og platan heldur ekki alveg at- hyglinni. Fyrstu tvö lögin Bellissimo og Quattro Neon eru samt fín. Trausti Júlfusson Gott í myndlist /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.