Akranes - 01.01.1957, Síða 4

Akranes - 01.01.1957, Síða 4
steinsson eins og hann gerði æ síðan. Mun reglusemi og skapfesta Wendels hafa haft áhrif á hann, og tók skjótt að hera á góðum verzlunarhæfileikum hans. Var hann síðan nokkur ár við verzlun þessa, ýmist á Dýrafirði eða á skrifstofu Grams í Kaupmannahöfn. Tók nú brátt að vakna löngun hjá honum til þess að verzla sjálfur, en efnin vantaði. Á Bíldudal hafði þá Hákon Bjarna- son (prests á Söndum, Gíslasonar) verzl- að um nokkurra ára skeið, en var nú dáinn. Átti því Jóhanna, ekkja hans, verzlunina og vildi selja. Bundust nú nokkrir danskir menn i Kaupmannahöfn í félagsskap við Pétur Thorsteinsson um að kaupa verzlun þessa og reka þar einnig fiskveiðar. Voru til þess tvö skip, Tialfe, sem var skonnorta, og gömul jakt, sem María hét. Skyldi Thorsteinsson stjóma verzluninni heima á Bíldudal, en þeir félagar hans í Kauprnannahöfn hafa á hendi kaup og sölu á vörum er- lendis, og hafa þeir að öllum líkindum haft aðalstjórnina í sínum höndum, enda lögðu þeir féð til að mestu leyti. Tók Thorsteinsson nú við verzluninni árið 1880. Sama ár giftist hann Ásthildi Guð- mundsdóttur prófasts á Breiðabólsstað, Einarssonar. Var hún hið mesta val- kvendi og sannur bjargvættur fátækra og nauðstaddra manna þeirra, er hún náði til. Var og gestrisni mikil á heim- ili þeirra hjóna þótt oft væri margt um manninn. Þegar Thorsteinsson kom að Bíldudal var fremur eyðilegt um að litast. Voru þar aðeins tvö verzlunarhús. Var annað íbúðarhús kaupmanns, en hitt verzlunar- búð fremur lítil (9X6 m). Var hún þrí- skipt. Nyrst var krambúð, vörugeymsla í miðið, en saltstía í suðurenda. Hafði danskur kaupmaður Ölsen að nafni rifið einokunarhúsið gamla og byggt hús þessi. Auk þess var gamalt hús frá einokunar- tímanum, sem kallað var Beykishús. Lít- ill fiskhúskofi og hjallur stóðu nokkru neðar á plássinu. 1 fjörunni var lítil bátabryggja sem 4—6 menn gátu borið á milli sin. Þetta voru öll þau mann- virki, sem Thorsteinsson tók við, þá er hann kom að Bíldudal. Thorsteinsson sá nú fljótt, að ef um einhvern verulegan verzlunarrekstur ætti að verða að ræða í framtíðinni yrði að hefjast handa með ýmsar endurbætur. Lét hann nú gera bryggju 60 m langa og tveggja m breiða ofan til, en 7 m brciða fyrir endann, og lá trappa breið og mikil upp á bryggjuna. Gat milliferðaskip leg- ið við bryggjuhausinn, en sitt fiskiskipið hvoru megin í einu. Járnbraut lá eftir bryggjunni upp að búðinni og síðan út- eftir eyrinni að fiskreitunum. Einnig byggði hann tvilyfta búð um 12 m á lengd og 8 m á breidd. Stóð hún í beina línu suður af íbúðarhúsinu og var 9 m breitt sund á milli. Auk þess byggði liann fiskhús allstórt á reitnum utan til við Oddalækinn sem svo var nefndur. Þar er nú Niðursuðuverksmiðjan. Þegar þilskip voru sett upp á þeim tímum voru þau „mokuð upp“ sem kall- að var. Var það gert þannig, að gryfja, sem var rúmlega jafnbreið skipinu, var mokuð lárétt framan úr framfjöru og um skipslengd upp fyrir stórstraums- flæði. Var skipinu síðan fleytt með flóði upp í gryfjuna svo hátt sem komizt varð. Bar sjórinn síðan sand og möl upp i hrófið, svo að skipið sat þar fast. Var þetta þó leikur einn hjá því að ná skip- inu út aftur með vorinu. Varð þá að grafa niður fyrir kjöl skipsins báðum megin, svo að það gæti sigið sem lengst niður í gryfjuna, svo að unnt væri að fleyta þvi út. Voru hafðar taugar um toppinn og langt út frá skipinu, svo að 4 A K R A N E S

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.