Akranes - 01.01.1957, Page 5

Akranes - 01.01.1957, Page 5
Verzlunar- og íbúSarhús á Bíldudal. Myndin er tekin urn tfiyo. unnt væri að halla því á hvora hlið eft- ir þörfum. Var „útmokstur“ skipa bæði seinlegt og hættulegt starf, og bar við að slys hlutust af, þótt aldrei yrði það á Bildudal.1) Fyrirkomulag þetta líkaði Thorsteins- son illa, og tók að draga skipin upp eftir „sliskjum“, og með gangspili, og stóðu þau þá skorðuð uppi á þurru landi á klossum með lofti undir kjölinn. Tók þá uppsetning og framsetning hvort um sig aðeins eitt sjávarfall. Hvort Thorsteins- ’) Sjónarvottur sagði mér frá því, að eitt sinn er hann var við útmokstur skips á önundarfirði bilaði eitthvað, svo að skipið kastaðist á öfuga lilið. Varð }>á einn maðurinn of seinn að forða sér og varð undir skipinu. Þegar búið var að rétta skipið við aftur sást aðeins klessa af líki mannsins. son hefur verið upphafsmaður þessarar nýbreytni eða ekki er mér ókunnugt um. Hitt er vist að hann mun hafa verið fyrsti maður, eða með þeim fyrstu, sem tóku hana í notkun. Thorsteinsson hafði nú þegar í byrjun stigið allstórt spor í áttina til framfara þeirra, er hann hafði í huga. En átök þessi urðu verzluninni ofraun, svo að hún komst í talsverða fjárþröng. Að henni hafði einnig stutt illt áferði, lágt verð á íslenzkum vörum o. fl. Tók nú hinum dönsku félögum Thorsteinssons ekki að lítast á blikuna og vildu losast við verzl- unina. Varð það nú úr að þeir seldu Thorsteinsson verzlunina við lágu verði, og tók hann að reka hana fyrir eigin reikning árið 1886. Nú var Thorsteinsson orðinn einráð- AKRANES 5

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.